Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Valur
Valur
Besta-deild kvenna
Origo völlurinn
Sól en smá hvasst. Geggjað fótboltaveður!
4 - 1
Keflavík
Keflavík
Ásdís Karen Halldórsdóttir 23'1 - 01 - 129' Anita Lind Daníelsdóttir (víti)Bryndís Arna Níelsdóttir 50'2 - 1Þórdís Elva Ágústsdóttir 85'3 - 1Fanndís Friðriksdóttir 89'4 - 1
Dómari: Marit Skurdal

SKÝRSLAN: Varamenn Vals sáu um Keflavík í dag

Hvað réði úrslitum?

Líkt og báðir þjálfararnir töluðu um eftir leik að þá breyttist leikur Vals með varamönnunum. Keflavík var lengi vel inni í þessum leik áður en Valskonurnar kláruðu leikinn í lokin með tveimur mörkum sem varamennirnir áttu þátt í.

Bestu leikmenn

1. Ásdís Karen Halldórsdóttir

Var gjörsamlega geggjuð á hægri kantinum í dag. Leggur upp eitt og skorar eitt og hætti aldrei að ógna. Ein af þeim sem var ekki tekin útaf í lokin en hún er einn besti leikmaður Vals, það er ljóst. Fanns hún líka getað skorað fleiri mörk ef eitthvað er. Fékk gott færi í fyrri hálfleik sérstaklega, ef mér skjátlast ekki.

2. Melanie Claire Rendeiro

Var með þeim bestu leikmönnum Keflvíkinga í dag. Spilaði allan leikinn og átti stórleik frammi og á miðsvæðinu. Tók föstu leikatriðin hjá Keflavík og með hreinum ólíkindum að Keflavík skoraði ekki úr þessum hornspyrnum. Fiskaði einnig vítið sem Keflvíkingar skoruðu úr. Frábær í dag, vægast sagt.

Atvikið

Á 69. mínútu var Sandra Sig næstum því búin að gefa Keflvíkingum mark þegar hún fékk boltann og misst hann næstum undir sig og í markið. Mark þá og staðan væri 2-2 og Keflvíkingar hefðu fengið eitthvað mommentum. Það má líka spurja sig afhverju Sandra byrjaði í dag. Fanney auðvitað búin að byrja alla leikina í sumar og búin að fá á sig fæstu mörkin í deildinni. Sandra kom auðvitað til Vals á dögunum sem bráðabirgðar markmaður en ekki sem byrjunarliðsmarkmaður. Var þetta góðgerðarstarfsemi? Ég ætla ekki að trúa því en það má alltaf pæla í því.

Hvað þýða úrslitin?

Keflvíkingar eru ennþá í 9. sæti sem þýðir að þær verða í fallsæti þegar umspilið hefst. Það er hinsvegar allt annað með Val þar sem þær eru á toppnum með 8 stiga forystu þegar umspilið byrjar.

Vondur dagur

Ég bara veit ekki alveg hvern ég á að velja hér. Fannst Keflvíkingarnir fínir fram að 80. mínútu þegar Valur skoruðu tvö mörk í lokin. Valur er náttúrulega bara Valur. Ég bara treysti mér ekki að velja einhvern. Það væri bara ósanngjarnt. Vondur dagur fer á mig!

Dómarinn - 10

Á erfitt með að finna eitthvað gegn teyminu í dag. Dæmdu leikinn mjög vel saman og nelgdu allar ákvarðanirnar, þá sérstaklega stóru ákvarðanirnar líkt og vítið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.