Fotbolti.net
Besta deildin
Bogi Sigurbjörnsson
Tindastóll
Tindastóll
Besta-deild kvenna
Sauðárkróksvöllur
0 - 0
Þór/KA
Þór/​KA
Dómari: Helgi Ólafsson

SKÝRSLAN: Markalaust jafntefli á Króknum í síðasta leik fyrir umspilið.

Hvað réði úrslitum?

Það má nú seigja að Þór/KA hafi verið betri í dag og þá sérstaklega í seinni hálfleik, í seinni hálfleik fengu gestirnir mikið af færum en samt ekki mikið af dauða færum, þrátt fyrir öll þessi færi náðu þær ekki að skora og 0-0 því niðurstaðn.

Bestu leikmenn

1. Monica Elisabeth Wilhelm

Monica var mjög solid í dag, varði oft mjög vel og yfirhöfuð bara mjög örugg í öllum sínum aðgerðium

2. Sandra María Jessen

Sandra var mjög góð í dag, mér fannst hún svoldið eiga miðsvæðið og mér fannst einmitt miðjan vera þar sem Þór/KA voru betri en heimastelpur

Atvikið

Það var svosem ekki eithvað ákveðið atvik sem stóð upp í dag, en ég get þá talað um besta færið sem fékk að líta ljósins í dag, það var þegar Aldís komst eina á móti markmanni en Mellissa gerði vel í að verja frá henni.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA eru áfram í 6. sæti, voru öruggar með sæti í efra umspilinu og taka þátt í því. Á meðan Tindasóls stelpur komust upp í sjöunda sæti eftir að úrslit í öðrum leikjum féll með þeim, en þær eru ekki öruggar með sæti í deildinni fyrir umspilið.

Vondur dagur

Það er kannski erfitt að setja vondan dag á einhverja eina en mér fannst miðjan hjá Akureyringum vera betri en hjá stólunum þannig ef ég þyrfti að velja myndi ég setja vondur dagur hjá miðju Stólana

Dómarinn - 7

það er ekkert hægt að setja út á Helga í dag, ekkert vafaatriði og leikurinn fékk að fljóta frekar vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.