Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Keflavík
Keflavík
Besta-deild karla
HS Orku völlurinn
Vestan strekkingur, sól og um 13 gráðu hiti
0 - 0
Fram
Fram
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Fallið lúmir yfir Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Heppni eða óheppni? Gæðaleysi? Magir samverkandi þættir sem bera þar eflaust ábyrgð en hafandi horft á leikinn átti hvorugt liðið líklega sigurinn skilið.

Bestu leikmenn

1. Nacho Heras

Afmælisbarnið stóð sína plikt vel í vörn Keflavíkur og var í raun óheppinn að skora ekki. Sennilega skásti maður vallarinns heilt yfir í leik sem bauð ekki upp á mikið.

2. Aron Jóhannsson

Kom sér í fínar stöður og átti hörkuskot í slá, en eins og hjá öðrum leikmönnum féll þetta ekki fyrir hann í dag.

Atvikið

Markið sem dæmt var af Keflavík þegar Stefan flikkar boltanum yfir Ólaf í markinu og er dæmdur brotlegur. Nú er ég búinn að horfa á atvikið og skil ekki á hvað er dæmt. Vissulega snerting en eitthvað sem aldrei yrði flautað brot á ef atvikið ætti sér stað á miðjunni.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík er límt við botninn og situr þar með tólf stig, sjö stigum frá öruggu sæti í deildinni. Fram í tíunda sæti með nítján stig.

Vondur dagur

Skemmtanagildi leiksins var afar lítið og fengu áhorfendur lítið fyrir aðgangseyrinn. Þá ber að nefna Erni Bjarnason sem þurfti að yfirgefa völlinn á börum sem að aldrei telst gott.

Dómarinn - 6

Nokkuð hlutlaust hjá Elíasi og Helga. Mér finnst Elías gera mistök að dæma af mark Keflavíkur í fyrri hálfleik en hver sér sitt með eigjn augum. Helgi kom inn í síðari hálfleikinn og við það breyttist lína leiksins aðeins sem skiljanlegt er og gerði mér erfiðara fyrir að meta störf þeirra heilstætt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.