SKÝRSLAN: Sannfærandi Stjörnusigur
Hvað réði úrslitum?
Stjörnukonur voru þolinmóðar og biðu aðeins eftir fyrsta markinu en um leið og það kom var þetta aldrei spurning. Þær voru allan tímann líklegri til þess að bæta í en Selfoss að koma til baka og gerðu það í tvígang.
Bestu leikmenn
1. Andrea Mist Pálsdóttir
Maður þarf ekki að spila allar mínútur til að vera bestur á vellinum maður þarf bara að nýta þær mínútur sem maður fær og það gerði Andrea Mist svo sannarlega í dag. Skoraði auðvitað tvö mörk og hefði getað náð þrennunni en svo spilaði hún líka bara mjög vel fyrir utan það. Kom með auka kraft inn á miðsvæðið hjá Stjörnunni og var að dreifa boltanum vel.
2. Sædís Rún Heiðarsdóttir
Sædís er svona leikmaður sem er geggjað að hafa með sér í liði af því hún skilar alltaf frammistöðu. Gríðarlega mikilvæg í uppspilinu en líka frábær varnarmaður. Ótrúlega spennandi leikmaður sem verður gaman að fylgjast með.
Atvikið
Fyrsta markið sem Stjarnan skoraði kláraði eiginlega leikinn. Eins og áður segir voru Selfoss aldrei neitt sérstaklega líklegar til þess að klóra eitthvað í bakkann eftir það.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan færist nær Blikum, sem töpuðu stigum í dag, og eru ennþá í fínum séns að ná öðru sætinu. Selfyssingar hins vegar þurfa kraftaverk til að halda sér í deildinni en þær eru 7 stigum frá öruggu sæti þegar þrír leikir eru eftir.
Vondur dagur
Eftir að hafa staðið vörnina vel í fyrri hálfleik þá leit varnarlína Selfoss ekkert sérstaklega vel út í fyrsta marki Stjörnunnar og þá kannski sérstaklega Sif. Hún átti sendinguna sem Ingibjörg komst inn í og svo var það hún sem reyndi að verjast Ingibjörgu áður en hún kom boltanum í netið.
Mætingin í stúkuna átti líka slakan dag en það er annað mál.
Dómarinn - 7
Heilt yfir fannst mér Óli Njáll gera þetta ágætlega í dag en það voru tvær stórar ákvarðanir sem ég var ekki sannfærð um. Fyrst var mögulegt víti fyrir Stjörnuna ekki dæmt og síðan dæmdi hann mark af þeim þegar hann taldi Gunnhildi Yrsu vera brotlega. Þetta hafði þó ekki áhrif á lokaniðurstöðu leiksins og því þarf ekki að velta sér upp úr þessu.



