SKÝRSLAN: 10 KR-ingar unnu Fylki
Hvað réði úrslitum?
Varnarlega voru KR mjög þéttir og áttu Fylkismenn erfitt með að finna glufur í gegn. Þrátt fyrir ungt hafsentapar þá var mikil ró yfir þeim og stigu þeir varla feilspor. Þó svo að Fylkir hafi verið manni fleiri nánast allan síðari hálfleik þá sköpuðu þeir sér lítið af færum, varnarleikur KR-inga til fyrirmyndar í dag.
Bestu leikmenn
1. Kristinn Jónsson
Kiddi Jóns var geggjaður í dag, skoraði skemmtilegt mark, fyrirgjöf úr aukaspyrnu sem fór í gegnum allan pakkann og í netið. Kiddi lagði svo upp seinna mark KR með frábærum bolta í gegn á Sigurð Bjart sem kláraði vel.
2. Finnur Tómas Pálmason
Þó svo að Finnur Tómas hafi bara komið inná sem varamaður þá var hann óaðfinnanlegur í þessar 25 mínútur sem hann var inná. Skallaði alla bolta í burtu og enginn gat komist framhjá honum, geggjuð innkoma.
Atvikið
Auðvelt val, rauða spjaldið á Aroni Snæ
Hann greip boltann sirka meter fyrir utan teig og fékk að launum rautt spjald.
Algjör heilaþoka þarna hjá Aroni, einungis 23 sekúndur búnar af seinni hálfleik þegar þetta gerðist.
Hvað þýða úrslitin?
KR eru svo gott sem komnir í efri hluta tvískiptingunnar. KA þarf að vinna báða leikina sína og KR að tapa sínum leik svo að þeir verði ekki í efri hlutanum.
Fylkir eru 3 stigum frá fallsæti en ÍBV á leik til góða á Fylki.
Vondur dagur
Aron Snær gerði sig sekann um skelfileg mistök þegar hann greip boltann og var rekinn af velli í kjölfarið.
Sóknarmenn Fylkis áttu ekki sinn besta leik, þeir áttu erfitt með að opna KR-ingana og náðu ekki að skora manni fleiri í 45 mínútur.
Dómarinn - 7
Jóhann Ingi var flottur í dag, gaf Aroni Snæ réttilega rautt spjald. Eina sem ég get sett út á var að stundum fannst mér að hann mætti spjalda fyrir ákveðin brot sem hann gerði ekki.




