Fotbolti.net
Besta deildin
Bogi Sigurbjörnsson
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Sauðárkróksvöllur
Tindastóll
Tindastóll
1 - 1
Keflavík
Keflavík
0 - 110' Kristrún Ýr Holm Beatriz Parra Salas 60'1 - 1
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: 1-1 jafntefli þegar Keflvíkingar mættu á Krókinn

Hvað réði úrslitum?

Keflavík byrjuðu leikinn betur og skorðu á 10 mínútu eftir lélegan varnarleik Stólana eftir fast leik atriði. Eftir það gáfu Stólanir í og voru betri það sem eftir var að leiknum, héldu boltanum mjög vel en náðu samt ekki að skapa nógu mikið af hættilegum færum. Markið var flott frá Beatriz og átti hún mjög góðan leik.

Bestu leikmenn

1. Beatriz Parra Salas

Beatriz var frábær á miðjunni í dag og bjó til nokkur fín færi, meðal annars markið þegar hún kemst inn í hreinsun frá Veru og lætur hún vaða á markið.

2. Gwendolyn Mummert

Gwendolyn átti frábæran leik í dag, Vörn stólana var mjög góð í dag fyrir utan markið hjá keflavík, þá leit bara út fyrir að það hafi slökvnað á öllum. En gwendolyn var góð í vörninni og góð að koma boltanum úr vörninni og svo upp völlinn.

Atvikið

Atvikið í dag var mark Keflvíkinga, þær fá aukaspyrnu út á kanti og það er eins og það hafi alveg slökvnað á Tindastóls stelpu, en Kristrún ýr fær galopið skot í teignum og klára vel í hornið.

Hvað þýða úrslitin?

Tindastóls stelpur fara í 20 stiginn og eru enþá í 7 sæti, á meðan Keflavík fara í 18 stig og eru jafnar ÍBV í 8 sæti en ÍBV á en eftir að spila sinn fyrsta leik eftir skiptingunni á deildinni.

Vondur dagur

Vera Varis markmaður Keflavík átti ekki góðan leik í dag, hún var ekki örugg í aðgerðum sínum í dag og hún gaf markið, hún ætlar að hreinsa boltan en sendir beint á Beatriz sem á frábært skot sem flýtur yfir Veru.

Dómarinn - 5

Alls enginn stór mistök frá Sveini Arnarssyni en mér fannst vera of mikið af litlum ákvörðunum hjá honum sem hann náði vitlaust.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.