Fotbolti.net
Besta deildin
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Besta-deild karla
Würth völlurinn
Fínt hitastig og smá sól en ansi hvasst.
Fylkir
Fylkir
1 - 1
KA
KA
0 - 117' Harley Bryn WillardÓlafur Karl Finsen (víti) 52'1 - 1
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

SKÝRSLAN: KA í neðri hlutann

Hvað réði úrslitum?

Eftir að KA komst yfir í fyrri hálfleiknum verðskuldað voru Fylkir mikið mun betri og hefðu með smá heppni getað stolið sigrinum. Jafntefli þó líklega sanngjarnt því að KA fékk sín færi.

Bestu leikmenn

1. Elís Rafn Björnsson

Bestur á vellinum í dag. Kom sér virkilega vel inn í leikinn í seinni hálfleik og var ógn hægra meginn. Var nálægt því að skora eitt af mörkum tímabilsins. Skilar góðu verki báðum meginn á vellinum.

2. Ólafur Karl Finsen

Fínasti leikur hjá Óla. Sækir vítið og skorar úr því. Ógnar manna mest og fékk tækifæri til að skora sigurmarkið en átti skalla yfir.

Atvikið

Spretturinn hjá Sveini Gísla Þorkelssyni í lok leiks var flottur en hann fór allt of illa með þá stöðu. Hljóp upp allan völlinn úr hafsentinum og var tveir á einn með Pétri en sendingin á Pétur var ekki nógu góð hjá Breiðhyltingnum knáa.

Hvað þýða úrslitin?

KA spila í neðri hlutanum eftir að hafa lent í 7. sæti. Fylkir einnig en þeir tóku það níunda.

Vondur dagur

KA spila í neðri hlutanum í ár. Það hljóta að vera vonbrigði. Menn geta alveg borið fyrir sig bikarinn og Evrópu en deildin var ekki ásættanleg.

Dómarinn - 6

Ekkert spes dómgæsla í dag. Flæðið skrýtið og mörg dæmi um ranglega dæmdar horn og markspyrnur. Hallaði á Fylki í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.