SKÝRSLAN: ÍBV jafnar aftur í lok leiks
Hvað réði úrslitum?
Vindurinn. Erfiðar aðstæður og óútreiknanlegar. Lítið um fagurfræði í þessum leik og leikmenn réðu illa við miklar hviður eins og gefur að skilja.
Bestu leikmenn
1. Kristinn Jónsson
Leggur upp fyrsta mark KR eftir góða syrpu upp vinstri kantinn og er einhvernveginn alltaf solid.
2. Guy Smith
Varði nokkrum sinnum mjög vel í marki Eyjamanna og eins og gegn HK í síðasta leik hélt hann ÍBV inn í leiknum.
Atvikið
Lokamark leiksins kemur pínu gegn gangi leiksins en Eyjamenn sýna annan leikinn í röð að þeir gefast ekki upp og munu berjast fram á síðustu stund.
Hvað þýða úrslitin?
KR heldur sér í efri hluta og berst um Evrópusætið og ÍBV nælir sér í mögulega mikilvægt stig í komandi fallbaráttu.
Vondur dagur
Veðurguðinn. Erfiðar aðstæður og lítið um fallegan fótbolta. KR greyin þurftu að koma frá Þorlákshöfn deginum áður og í Þorlákshöfn beint eftir leik aftur í skítaveðri. En ÍBV þarf svo sem að gera þetta marg oft.
Dómarinn - 8
Lítið út á hann að setja. Stjórnaði leiknum vel.



