SKÝRSLAN: Auðvelt hjá Stjörnunni gegn Keflvíkingum
Hvað réði úrslitum?
Stjarnan stýrði leiknum í fyrri hálfleik, héldu boltanum mun betur og opnuðu Keflvíkinga vel og skoruðu 2 mörk út frá því. Stjarnan misstu aðeins dampinn í seinni hálfleik en Keflvíkingar náðu ekki að nýta sér það.
Bestu leikmenn
1. Eggert Aron Guðmundsson
Eggert lagði upp fyrsta markið og skoraði annað markið, geggjaður í dag. Einn skemmtilegasti leikmaður deildarinnar, fáir betri að taka menn á en hann í deildinni.
2. Jóhann Árni Gunnarsson
Stjarnan hélt mun betur í boltann, sérstaklega í fyrri hálfleik og þá var Jóhann Árni lykillinn í uppspili Stjörnunnar. Jóhann átti einnig góða stoðsendingu þegar hann senti Eggert einn í gegn.
Atvikið
Mjög áhugavert atvik gerðist á Samsungvellinum í dag. Það var manni vikið úr stúkunni vegna ofdrykkju, einstaklingurinn ögraði víst stuðningsmönnum Keflvíkinga og var með almenn leiðindi.
Stúkan fagnaði mikið þegar manninum var vísað út.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan er í harðri baráttu um 4. sætið sem gefur Evrópusæti ef KA tapar úrslitum Mjólkurbikarsins.
Útlitið er ansi svart fyrir Keflvíkinga það eru 7 stig í öruggt sæti og eru nú aðeins 5 leikir eftir.
Vondur dagur
Það var ekki mikið sem gekk upp hjá Keflvíkingum í dag og voru nánast allir ekki á sínum degi.
Maður gerir meiri kröfur á Sami Kamel hann hefur verið besti leikmaður Keflvíkinga á tímabilinu. Kamel sást varla í leiknum en hann var svo tekinn af velli í hálfleik.
Dómarinn - 8
Vilhjálmur Alvar og félagar flottir í dag. Þórður Arnar flaggaði sýndist mér réttilega rangstöðu þegar Keflavík skoraði.




