Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Besta-deild karla
Framvöllur
Það blæs aðeins og hitastigið er ekkert til að hrópa húrra yfir.
Fram
Fram
2 - 3
Víkingur R.
Víkingur R.
Peter Oliver Ekroth (sjm) 28'1 - 01 - 130' Birnir Snær Ingason1 - 239' Aron Elís Þrándarson (f)Aron Snær Ingason 53'2 - 22 - 387' Danijel Dejan Djuric
Dómari: Guðgeir Einarsson

SKÝRSLAN: Draumamark Dani tryggði Víkingum þrjú stig

Hvað réði úrslitum?

Einstaklingsgæði fyrst og fremst. Leikurinn var opinn og skemmtilegur og fín færi á báða bóga. Jafntefli hefði eflaust ekkert verið ósanngjörn úrslit en að því er einfaldlega ekki spurt. Meira um sigurmark Víkinga neðar.

Bestu leikmenn

1. Birnir Snær Ingason

Síógnandi þó það hafi oft orðið meira úr því sem hann hafði fram að færa. Tekur mikið til sín og skilar alltaf góðu verki fram á við.

2. Jannik Pohl

Vinnsla og aftur vinnsla í fremstu víglínu. Barátta hans við Oliver Ekroth í leiknum var afar skemmtileg áhorfs og þeir tókust mjög hart á.

Atvikið

Þetta aukaspyrnumark Dani Djuric var algjört konfekt. Af 20 metrum eða setur hann boltann yfir vegginn sem tekur svo dýfu undir slánna og í netið. Hefur líklega horft á ófá myndböndin af spyrnutækni portúgalsks spyrnusérfæðings í gegnum árin. Glæsilegt mark.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar halda sínu 14 stiga forskoti á toppi deildarinnar nú þegar deildinni verður skipt upp. Þurfa aðeins tvö stig í viðbót til að tryggja sér titilinn formlega. Fram í 10 sæti og heldur sér fyrir ofan strikið á markatölu.

Vondur dagur

Erlingur Agnarsson hefur oft átt betri daga í Víkingstreyjunni en í dag. Gekk fátt upp hjá honum í dag sóknarlega en skilar alltaf sínu varnarlega.

Dómarinn - 5

Á heildina litið var leikurinn alls ekki illa dæmdur. En eitt atvik dregur hann niður fyrir mér. Mér fannst Fram eiga að fá vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks þegar togað var í Jannik Pohl í upplögðu marktækifæri. Jannik reyndi að standa af sér atlöguna og náði skoti á markið sem Ingvar varði glæsilega. Pínu súrt á tímum þegar mikið er talað um dýfur í mörgum leikjum ef mönnum er svo refsað fyrir það að reyna að standa af sér tæklingar og annað þó þeir séu klárlega að tapa á því. Þannig sé ég þetta atvik en það má vel vera að ég hafi rangt fyrir mér hvað það varðar og myndi ég þá hækka einkunn Guðgeirs í sjö.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.