Fotbolti.net
Besta deildin
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
Snjókoma, -2 gráður
KA
KA
1 - 1
HK
HK
Rodrigo Gomes Mateo 8'1 - 01 - 120' Atli Þór Jónasson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
+7
Þetta er búið. Jafntefli niðurstaðan. Viðtöl og skýrsla væntanlegt inn á síðuna á eftir.
HK
90. mín
+6

Karl Ágúst Karlsson

90. mín
+4
Elfar Árni með skallann alveg út við stöng en nokkuð laus og Arnar Freyr hefur tíma til að mæta á svæðið og handsama knöttinn.
90. mín
+3
Hrannar Björn með hörku skot en boltinn yfir markið
90. mín
+3
Það fer hver að verða síðastur. KA fær horn.
HK
90. mín
+2

George Johannes Nunn

90. mín
+2
Sex mínútur í uppbótatíma
HK
90. mín
Gult spjald

Birnir Breki Burknason

KA
89. mín
InnElfar Árni Aðalsteinsson
ÚtBjarni Aðalsteinsson
HK
89. mín
Gult spjald

Atli Arnarson

Sparkar boltanum í burtu eftir að Helgi Mikael var búinn að flauta
87. mín
Viðar Örn með skallann en boltinn, hittir hann alls ekki vel og boltinn fer hátt yfir markið.
HK
85. mín
Gult spjald

Leifur Andri Leifsson

Gerði sig líklegan til að taka aukaspyrnu á miðjum vellinum en hætti við og fær gult spjald, sennilega fyrir töf.
HK
84. mín
InnKarl Ágúst Karlsson
ÚtAtli Þór Jónasson
KA
83. mín
Gult spjald

Daníel Hafsteinsson

80. mín
George Nunn lætur loksins til sín taka og það var hörku tilraun en boltinn fór í slána
78. mín
Sveinn Margeir gerir hrikalega vel að koma sér í fínt skotfæri en skotið alls ekki nógu gott og boltinn rúllar vel framhjá.
KA
76. mín
InnViðar Örn Kjartansson
ÚtÁsgeir Sigurgeirsson
VÖK er kominn inn á!
HK
75. mín
InnBirnir Breki Burknason
ÚtTumi Þorvarsson
74. mín
Nokkuð rólegt síðustu mínútur...
69. mín
Sveinn Margeir með fínt skot en Arnar Freyr ver, frábær frammistaða hjá markverðinum í dag.
HK
66. mín
Gult spjald

Ívar Örn Jónsson

Ívar Örn Jónsson fer af mikilli hörku í Ingimar Stöle og aukaspyrna dæmd. ívar mótmælir og segist hafa komist í boltann sem er rétt en aukaspyrnan dæmd. Ekkert kom út úr henni.
KA
64. mín
InnHarley Bryn Willard
ÚtAndri Fannar Stefánsson
63. mín
Ásgeir Sigurgeirsson í færi en HK bjargar í horn
61. mín
Andri Fannar með flott viðstöðulaust skot en Arnar Freyr ver vel.
60. mín
Leifur Andri í smá basli í vörninni og Ásgeir Sigurgeirs kemst í gott færi en HK bjargar í horn.
55. mín
Maaar... Nei rangstaða..
KA fékk aukaspyrnu. Daníel Hafsteins fær boltann inn á teignum og skallar boltann á Hans Viktor sem setur boltann í netið af stuttu færi en hann er fyrir innan og rangstaða dæmd.
53. mín
DANÍEL
Daníel Hafsteinsson gerir frábærlega að komast framhjá Þorsteini Aroni og sleppur í gegn. Enn og aftur stendur Arnar Freyr vel í marki HK og sér við honum.
HK
52. mín
InnAtli Arnarson
ÚtArnþór Ari Atlason
Arnþór getur ekki haldið leik áfram
50. mín
Arnþór Ari hefur líklega lokið leik. Hefur verið að kvarta undan eymslum nokkrum sinnum í leiknum.
46. mín
Síðari hálfleikur farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
+6
Jafnt í hálfleik. Komum að vörmu spori með þann síðari.
KA
45. mín
+5

Hans Viktor Guðmundsson

HK brunar upp í skyndisókn í kjölfarið en Hans Viktor stöðvar Tuma Þorvarsson og fær réttilega gult
45. mín
Ásgeir Sigurgeirsson með laglega sendingu inn fyrir vörn HK á Andra Fannar sem sleppur í gegn en lætur Arnar Frey verja frá sér úr dauðafæri.
45. mín
+1
Fjórar mínútur í uppbótatíma
44. mín
Ingimar Stöle með hörku skot en boltinn fer ofan á þaknetið.
43. mín
KA fær horn
39. mín
Hættuleg sókn hjá HK. Arnþór Ari með sendinguna fyrir, boltinn berst til Hrannars Steingríms sem nær að hreinsa á síðustu stundu.
35. mín
Nálægt!
Bjarni Aðalsteinsson með skalla í stöngina eftir hornspyrnu!
31. mín
Ívar Örn Árnason skallar boltann hátt yfir markið í baráttunni við nafna sinn hjá HK sem liggur eftir að hafa fengið högg á miðsvæðið. Er staðinn upp og heldur leik áfram.
27. mín
Hrannar Björn fær boltann við vítateiginn eftir aukaspyrnu af kantinum. Með lúmskt skot en Arnar Freyr sér við honum.
KA
24. mín
Gult spjald

Steingrímur Örn Eiðsson

Það var ósætti með markið á KA bekknum og gult spjald fór á loft.
HK
20. mín
MAAAARK

Atli Þór Jónasson

Ingimar Stöle skallar boltann eftir aukaspyrnuna og hann dettur inní markteiginn þar sem margir KA menn eru en Atli Þór er fyrstur á boltann og skallar hann í netið.
19. mín
HK fær aukaspyrnu
15. mín
Rólegt þessa stundina. Leikurinn fer fram á vallarhelmingi HK en gestirnir verjast þétt, með alla leikmennina fyrir aftan boltann.
KA
8. mín
MAAAARK

Rodrigo Gomes Mateo (stoðsending: Bjarni Aðalsteinsson )

Bjarni með frábæra fyrirgjöf beint á kollinn á Rodri sem kemur KA yfir!
6. mín
Daníel Hafsteinsson með hörku skot en frábær markvarsla hjá Arnari Frey. KA fær horn.
4. mín
Sveinn Margeir Hauksson með skotið en boltinn fer rétt framhjá markinu
3. mín
KA fær hornspyrnu
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir koma þessu af stað
Fyrir leik
Það styttist í þetta
Búið að hreinsa völlinn en hann var þakinn snjó í morgun. Það er byrjað að snjóa aftur hérna fimm mínútum fyrir leik.
Fyrir leik
Hallgrímur veikur
Það er mikið áfall fyrir KA að Hallgrímur Mar Steingrímsson er ekki með í dag en veiktist illa á dögunum og útskrifaðist af sjúkrahúsi í vikunni.
   03.04.2024 14:59
Hallgrímur glímt við erfið veikindi og missir af fyrstu leikjunum
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Hans Viktor Guðmundsson gekk til liðs við KA frá Fjölni í vetur. Hann er í byrjunarliðinu í dag. Viðar Örn Kjartansson er hins vegar á bekknum.

George Nunn, 22 ára gamall enskur framherji, gekk til liðs við HK á dögunum og hann fer beint í byrjunarliðið. Varnarmaðurinn Þorsteinn Aron Antonsson sem er á láni frá Val er einnig í byrjunarliðinu.
Mynd: KA

Fyrir leik
Hitað var rækilega upp fyrir fyrstu umferðina í útvarpsþættinum Fótbolti.net - Hægt að hlusta á þáttinn í öllum hlaðvarpsveitum
Fyrir leik
Gummi Ben spáir í spilin
Guðmundur Benediktsson, þáttastjórnandi Stúkunnar á Stöð 2 Sport spáði í leikina í 1. umferðinni en hann spáir heimasigri og að Viðar Örn Kjartansson muni byrja sterkt.

KA 2 - 0 HK
Vök skorar ef hann spilar þennan leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spáin
Fótbolti.net spáir því að KA endi í 6. sæti deildarinnar en HK er spáð neðsta sætinu. Áhugaverðar breytingar hafa orðið á báðum liðum á undanförnum dögum og vikum en Viðar Örn Kjartansson gekk til liðs við KA á dögunum og George Nunn, enskur framherji, gekk til liðs við HK en hann var eitt sinn á mála hjá Chelsea.

1. Valur
2. Víkingur R.
3. Stjarnan
4. Breiðablik
5. KR
6. FH
7. KA
8. Fram
9. ÍA
10. Vestri
11. Fylkir
12. HK

   06.04.2024 11:35
George Nunn í HK (Staðfest)

   29.03.2024 10:43
Viðar Örn í KA (Staðfest)
Fyrir leik
Það er komið að þessu!
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og HK í fyrstu umferð Bestu deildarinnar þetta sumarið. Leikurinn átti upphaflega að fara fram klukkan 17 en var færður og fer fram klukkan 13 á Greifavellinum á Akureyri.
Mynd: Fótbolti.net

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.