Fotbolti.net
Besta deildin
Halldór Gauti Tryggvason
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
4 - 2
Tindastóll
Tindastóll
0 - 110' Jordyn RhodesFreyja Karín Þorvarðardóttir 36'1 - 1Kristrún Rut Antonsdóttir 40'2 - 1Kristrún Rut Antonsdóttir 47'3 - 13 - 274' Birgitta Rún FinnbogadóttirKristrún Rut Antonsdóttir 76'4 - 2
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Myndir: Tryggvi Már Gunnarsson
Leik lokið!
Þróttur vinnur í Laugardalnum!
Fjörugur leikur að baki! Þróttarar með verðskuldaðan sigur.

Skýrsla og viðtöl koma seinna í kvöld!
92. mín
Þróttur fær aukaspyrnu úr við hornfána.
90. mín
Það eru 5 mínútur í uppbótartíma.
Þróttur R.
90. mín
InnBrynja Rán Knudsen
ÚtFreyja Karín Þorvarðardóttir
Tindastóll
86. mín
InnElísabet Nótt Guðmundsdóttir
ÚtBirgitta Rún Finnbogadóttir
83. mín
Rétt framhjá!
María með skot fyrir utan teig í átt að marki Tindastóls. Fast skot en boltinn fer rétt framhjá.
81. mín
Svakalegar mínútur
Frábær leikur hér í Laugardalnum. Tvö mörk með stuttu millibili!
Þróttur R.
76. mín
InnMaría Eva Eyjólfsdóttir
ÚtLea Björt Kristjánsdóttir
Tindastóll
76. mín
InnSaga Ísey Þorsteinsdóttir
ÚtAldís María Jóhannsdóttir
Þróttur R.
76. mín
Gult spjald

Brynja Rán Knudsen

Þróttur R.
76. mín
KRISTRÚN MEÐ ÞRENNU!

Kristrún Rut Antonsdóttir

Þróttur skorar! Aukaspyrna inn á teiginn og Kristrún skallar hann í markið

Hvílíkur leikur!

4-2!
Tindastóll
74. mín
Þær minnka munin!

Birgitta Rún Finnbogadóttir

Þetta er orðinn leikur!

FLott mark hjá Birgittu Rún er hún vippar boltanum yfir Monicu í markinu

3-2!!
71. mín
Frábær varsla!
Leah kominn í gegn eftir frábæra sendingu frá Kristrúnu. Leah skýtur á markið en Monica ver glæsilega!
67. mín
Gott úthlaup hjá Mollee er Tindastóll var við það að komast í góða stöðu.
60. mín
Tindastóll fær horn.

Gott horn og gestirnir ná skalla. Skallinn góður en boltinn fer famhjá markinu.
Tindastóll
59. mín
InnHugrún Pálsdóttir
ÚtLara Margrét Jónsdóttir
59. mín
Þróttur R. fær horn.

Tindastóll hreinsar.
55. mín
Mini myndaveisla
Tryggvi Már Gunnarsson, ljósmyndari, er á leiknum.

Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson


Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson


Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson



Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson

54. mín
Þróttur fær horn.

TIndastóll hreinsar.
51. mín
Hætta!
Þarna skall hurð nærri hælum! Mollee fær boltann í fætur enn rennur beint fyrir framan nefið á Jordyn Rhodes. Jordyn nær til boltanns en nær ekki að nýta sér mistökin.
Þróttur R.
47. mín
MAAAAARK

Kristrún Rut Antonsdóttir

Þær eru komnar í 3-1!

Seinni hálfleikur nýbyrjaður og Þróttarar strax búnar að auka forystuna. Annað mark Þróttara sem kemur eftir hornspyrnu. Gott horn sem endar á kollinum á Kristrúnu. Hún skallar hann fast í netið!

3-1!
47. mín
Þróttur R. fær horn.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Tindastóll byrjar með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur í Laugardalnum!
Fjörugur fyrri hálfleikur að baki! Tindastóll komst yfir snemma leiks eftir mark frá Jordyn Rhodes. Þróttarar náðu hins vegar að koma til baka og leiða 2-1 er gengið er til búningsklefa. Fáum vonandi skemmtilegann seinni hálfleik!
45. mín
+1
Það eru tvær mínútur í uppbótartíma.
43. mín
Skalli á mark.
Þróttarar halda áfram að ógna! Góður bolti inn á teiginn og boltinn skallaður í átt að marki. Tiltölulega auðvelt fyrir Monicu í markinu.
Þróttur R.
40. mín
Þær eru komnar yfir!

Kristrún Rut Antonsdóttir

MAAAARK!

Þróttarar ekki lengi að snúa leiknum við! Kristrún fær boltann úti vinstra megin og á gott skot sem hafnar í netinu. Vel skotið og gott mark hjá Þrótturum!

2-1!
Þróttur R.
36. mín
Þróttarar jafna!!

Freyja Karín Þorvarðardóttir

MAAAARK!

Allt orðið jafnt í Laugardalnum. Vel útfært horn hjá Þrótti er Freyja stígur út úr þvögunni og stangar boltann í netið! Þróttarar verið betri síðastliðnar mínútur og er óhætt að segja að þetta sé verðskuldað mark.

1-1!
36. mín
Þróttur R. fær horn.
32. mín
Þróttur að ógna
Þróttarar hafa svo sannarlega unnið sig inn í þennan leik. Leita enn að jöfnunarmarki.
30. mín
Vel spilað!
Góð sókn hjá Þrótti. Freyja fær hann inn í teig og skýtur. Monica ver í horn.

Gott horn og ná Þróttarar skalla á mark en Monica grípur boltann.
Tindastóll
27. mín
Gult spjald

Lara Margrét Jónsdóttir

25. mín
Freyja Karín liggur eftir samstuð og þarf aðhlynningu. Vonum að hún geti haldið leik áfram.

Leikurinn byrjaður aftur og Freyja getur haldið áfram
22. mín
Hætta!
Gott horn beint inn á miðjan teig gestanna. Þar stekkur Freyja hæst og skallar boltann. Skallinn fínn en boltinn framhjá.
17. mín
Gott skot!
Vel spilað hjá Þrótti. Caroline Murray fær boltann úti vinstra megin og lætur vaða fyrir utan teig. Hittir boltann vel en Monica grípur boltann.
16. mín
Sláin!
Önnur skyndisókn hjá gestunum. Jordyn Rhodes er allt í öllu það sem af er leiks. Nú fær hún boltann úti hægra meginn og á fast skot í átt að marki. boltinn hafnar í slánni.
15. mín
Þróttur R. fær horn.

Monica grípur boltann.
Tindastóll
10. mín
Gestirnir taka forystuna!

Jordyn Rhodes (stoðsending: Aldís María Jóhannsdóttir)

MAAAARK!

Tindastóll komið yfir í Laugardalnum. Hröð sókn hjá gestunum og fær Aldís María frábæran bolta inn fyrir varnarlínu Þróttar. Hún sendir hann beint fyrir markið og klárar Jordyn færið vel. Vel unnin sókn hjá Gestunum

0-1!
8. mín
Tindastóll fær horn.

Hættuleg hornspyrna. Lara nær til boltann og stangar hann í átt að marki. Boltinn hafnar í varnarmanni og Þróttarar hreinsa.
5. mín
Frábært hlaup
Jordyn Rhodes með svakalegan sprett upp allan völlinn. Prjónar sig framhjá varnarmönnum gestanna og uppsker horn.

Ekkert verður úr horninu.
4. mín
Þróttur R. fær horn.

Tindastóll hreinsar.
1. mín
Snemmbúið færi!
Jordyn Rhodes komin í góða stöðu inni á teig Þróttara. Sendir fyrir en enginn nær til boltans. Markspyrna frá marki Þróttar.
1. mín
Leikur hafinn
Komið í gang!
Þróttur byrjar með boltann.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja!
Liðin ganga inn á völlinn. Styttist óðfluga í upphafsflautið!
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús
Þjálfarar liðanna hafa birt byrjunarliðin! Þau má sjá hér til hliðar.
Fyrir leik
Frábærar aðstæður í Laugardalnum!
8°C, sólskin og lítill sem enginn vindur! Fáum vonandi skemmtilegan leik hér í dag!
Fyrir leik
Hildur Antons spáir í spilin
Hildur Antonsdóttir er spámaður umferðarinnar!
Hún spáir jöfnum leik í Laugardalnum í dag!

Þróttur 1 - 1 Tindastóll
„Þetta verður jafn leikur milli tveggja liða sem eiga nóg inni. Þróttarar hafa ekki verið að ná í úrslitin en eru að spila leikina vel. Tindastóll hafa verið að taka stig af liðunum í kringum sig en ég held að liðin munu skipta stigunum á milli sín. Leikurinn fer 1–1. Freyja Katrín skorar fyrir Þrótt og Hugrún Páls fyrir Tindastól.“

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Dómarateymið
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson dæmir leikinn hér í kvöld og verða það þeir Nour Natan Ninir og Kjartan Már Másson sem verða honum til aðstoðar. Eftirlitsmaður er Ólafur Ingi Guðmundsson og varadómari er Stefán Ragnar Guðlaugsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Tindastóll
Tindastól var spáð 8. sæti í deildinni af spekingum fótbolta.net fyrir mót. Tindastóll er með sex stig fyrir leikinn í kvöld og er komið með þrjá sigra hingað til. Tindastóll mætti sterku liði Þór/KA í síðustu umferð. Þór/KA sigraði leikinn 5-0. Tindastóll er núna sínu öðru tímabili í röð í efstu deild og það verður áhugavert að sjá hvort liðið haldi sér aftur uppi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þróttur R.
Þróttur R. er í síðasta sæti deildarinnar fyrir leikinn í kvöld. Þróttarar hafa ekki verið að ná í úrslitin í sumar og eru enn án sigur í deildinni. Þróttarar gengu í gegnum mikið af breytingum síðastliðinn vetur, bæði á leikmannahóp og þjálfarateymi. Þeim var spáð 6. sætinu fyrir mót en augljóst er að eitthvað vantar upp á í Laugardalnum. Stigasöfnunin hefur ekki verið góð hjá Þrótturum í sumar. Þróttur mætti liði Keflavíkur í síðustu umferð þar sem Keflvíkingar höfðu betur og sigruðu 1-0. Það verður gaman að sjá hvort Þróttur nái að rétta úr kútnum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heil og sæl!
Góðan dag og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu á viðureign Þróttar R. og Tindastóls í Bestu deild kvenna! Leikurinn fer fram á Avis-vellinum og hefst kl. 16:15
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.