Fotbolti.net
Besta deildin
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þór/KA
Þór/​KA
Besta-deild kvenna
VÍS völlurinn
0 - 3
Breiðablik
Breiðablik
0 - 135' Agla María Albertsdóttir 0 - 253' Vigdís Lilja Kristjánsdóttir0 - 394' Andrea Rut Bjarnadóttir
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Gerði gæfumuninn á gamla heimavellinum

Hvað réði úrslitum?

Blikarnir byrjuðu leikinn vel en komust yfir eftir ansi skrautlegt mark. Þór/KA vann sig aldrei almennilega inn í leikinn og sanngjarn útisigur staðreynd.

Bestu leikmenn

1. Heiða Ragney Viðarsdóttir

Frábær í dag. Uppalin í Þór/KA og Jóhann Kristinn hrósaði henni í hástert. Taldi hana vera muninn á liðunum sem hægt er að taka undir.

2. Agla María Albertsdóttir

Átti frábæran leik og fullkomnaði hann með marki og stoðsendingu.

Atvikið

Fyrsta markið var ansi skrautlegt. Agla María með misheppnaða fyrirgjöf en boltinn sveif yfir Shelby Money í marki Þór/KA og í netið.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA hefði þurft að næla í einhver stig hérna. Blikar komnar með sex stiga forystu á Norðankonur og Valur komið í 2. sætið eeftir sigur sinn á Stjörnunni.

Vondur dagur

Lið Þór/KA var alls ekki tilbúið í þennan leik. Liðið ætlar sér að berjast á toppnum en hefur nú tapað gegn toppliðunum tveimur. Shelby Money í marki Þór/KA var í allskonar vandræðum. Átti að gera mun betur bæði í marki eitt og tvö.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.