PSG tilbúið að borga metfé fyrir Yamal - Man Utd í viðræðum við De Ligt
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 1
0
Grindavík
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 2
5
Afturelding
Besta-deild karla
Víkingur R.
LL 2
1
Fram
FH
1
0
Breiðablik
Ástbjörn Þórðarson '42 1-0
28.06.2024  -  19:15
Kaplakrikavöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: Sól og smá vindur
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 787
Maður leiksins: Ólafur Guðmundsson (FH)
Byrjunarlið:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
4. Ólafur Guðmundsson (f)
5. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ('87)
7. Kjartan Kári Halldórsson ('92)
9. Sigurður Bjartur Hallsson ('77)
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Ísak Óli Ólafsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('77)
33. Úlfur Ágúst Björnsson
34. Logi Hrafn Róbertsson

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
6. Grétar Snær Gunnarsson ('77)
11. Arnór Borg Guðjohnsen ('77)
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('87)
25. Dusan Brkovic
27. Jóhann Ægir Arnarsson
37. Baldur Kári Helgason ('92)

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Kristján Finnbogi Finnbogason
Guðmundur Jón Viggósson
Andres Nieto Palma
Kjartan Henry Finnbogason
Benjamin Gordon Mackenzie

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
FH vinnur sanngjarnan sigur. Blikarnir bara lélegir. FH er með 20 stig í fimmta sæti á meðan Blikar eru áfram í öðru sæti en þeir eru fjórum stigum á eftir Víkingum. Vont tap fyrir þá grænu í toppbaráttunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
98. mín
HVERNIG? Bjarni Guðjón allt í einu sloppinn aleinn í gegn en hann fer alveg ótrúlega illa með færið. Fer fram hjá Antoni en snertingin er alltof þung og þetta rennur út í sandinn.
97. mín
Nei, nei, skallað frá.
97. mín
Jæja, Breiðablik fær horn. Ná þeir að gera eitthvað við þetta?
96. mín
Það eru þrjár mínútur eftir af uppbótartímanum og lítið að frétta.
93. mín
Hættuleg fyrirgjöf hjá Blikum en Dagur Örn missir af boltanum og hann fer í innkast hinum megin.
92. mín
Inn:Baldur Kári Helgason (FH) Út:Kjartan Kári Halldórsson (FH)
90. mín
Níu mínútum bætt við! Jahá!
89. mín
Úlfur Ágúst með skot rétt fram hjá!! FH-ingar eiga að vera búnir að skora annað mark.
87. mín
Inn:Bjarni Guðjón Brynjólfsson (FH) Út:Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (FH)
Bjarni Guðjón fær nokkrar mínútur!
87. mín
Inn:Dagur Örn Fjeldsted (Breiðablik) Út:Aron Bjarnason (Breiðablik)
Aron Bjarna nánast ósýnilegur í þessum leik.
87. mín
FH-ingar eru líklegri til að bæta við en Breiðablik að jafna.
86. mín
Kjartan Kári með aukaspyrnu inn á teiginn sem Grétar skallar áfram. FH fær hornið.
85. mín Gult spjald: Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)
Brýtur á Grétari.
83. mín Gult spjald: Halldór Árnason (Breiðablik)
Json Daði sleppur með spjaldið en bekkurinn hjá Blikum fær það.
82. mín
Jason Daði fer í ansi groddaralega tæklingu. Elías Ingi ræðir við aðstoðardómarann.
80. mín
Tíu mínútur eftir en ekkert sem bendir til þess að Breiðablik jafni. Þeir hafa ekkert getað í þessum leik. Ekki neitt.
77. mín
Inn:Arnór Borg Guðjohnsen (FH) Út:Vuk Oskar Dimitrijevic (FH)
77. mín
Inn:Grétar Snær Gunnarsson (FH) Út:Sigurður Bjartur Hallsson (FH)
74. mín
Andri Rafn stoppar flotta sókn hjá FH. Blikar reyna að snúa vörn í sókn í kjölfarið, en það gerist ekki. Boltinn út af.
72. mín
Logi Hrafn með langan skalla sem Anton Ari grípur.
71. mín
Blikar eru ekki búnir að skapa eitt færi í þessum seinni hálfleik.
71. mín
Vuk vinnur hornspyrnu fyrir FH.
70. mín
Kristófer Ingi að komast á ferðina en Ólafur stoppar hann með flottri tæklingu. Stuðningsmenn FH elska þetta, það er rosalegur gír í mönnum hérna.
67. mín
Sigurður Bjartur er staðinn upp eftir að hafa fengið höfuðhögg. Hann fær mikið lófaklapp.
65. mín Gult spjald: Damir Muminovic (Breiðablik)
Damir fer alltof hátt með fótinn þegar hann brýtur af Sigurði Bjarti. Þeir liggja báðir eftir.
63. mín
Blikar hafa bara ekki gert nokkurn skapaðann hlut í þessum seinni hálfleik. Frammistaða þeirra mikil vonbrigði.
61. mín
Logi Hrafn með frábæran bolta út til vinstri á Kjartan Kári. Hann á sendingu fyrir en Damir skallar frá.
59. mín
Stuðningsmenn FH virkilega ánægðir með frammistöðuna hjá sínum mönnum.
56. mín
VUK!!! Með frábæran sprett og er kominn í stórhættulega stöðu. Reynir skot en það fer rétt fram hjá markinu. Þarna mátti alls ekki miklu muna, frábær tilraun!
56. mín
Alvöru skilaboð hjá Dóra, greinilega ekki sáttur með leik sinna manna. Og það skiljanlega.
55. mín
Inn:Arnór Gauti Jónsson (Breiðablik) Út:Benjamin Stokke (Breiðablik)
55. mín
Inn:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik) Út:Oliver Sigurjónsson (Breiðablik)
55. mín
Inn:Jason Daði Svanþórsson (Breiðablik) Út:Alexander Helgi Sigurðarson (Breiðablik)
55. mín
Inn:Kristinn Steindórsson (Breiðablik) Út:Patrik Johannesen (Breiðablik)
55. mín
Blikar að gera fjórfalda skiptingu!
55. mín
Patrik liggur eftir baráttu við Ísak og heldur um höfuð sitt.
54. mín
Gyrðir er kominn aftur inn á.
53. mín
Gyrðir liggur eftir og þarf aðstoð. Spurning hvort hann haldi leik áfram.
51. mín
Höskuldur með hættulega aukaspyrnu inn á teiginn en FH-ingar ná að koma boltanum frá.
48. mín
FH-ingar að koma af krafti út í seinni hálfleikinn og stuðningsmenn liðsins taka við sér.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur í Kaplakrika og FH leiðir með einu marki gegn engu í frekar tíðindalitlum leik. Bara nokkuð sanngjarn staða. Verið meiri kraftur í FH. Blikarnir aðeins vaknað eftir að hafa byrjað afskaplega dapurlega, en þeir eru einu marki undir.
45. mín
Oliver með mjög tæpa sendingu til baka en Anton Ari nær að bjarga þessu.
45. mín
Tveimur mínútum bætt við fyrri hálfleik
45. mín
Benjamin Stokke með skalla sem fer lengst yfir markið. Var í engu jafnvægi.
44. mín
Kjartan Kári með fyrirgjöf úr aukaspyrnu sem fer beint aftur fyrir endamörk.
43. mín
Ég held að fólk á vellinum hafi um það bil verið að deyja úr leiðindum áður en þetta mark kom.
42. mín MARK!
Ástbjörn Þórðarson (FH)
MARK!!!! FH tekur forystuna undir lok fyrri hálfleiks!

Eftir frekar langa sókn, þá berst boltinn til hægri þar sem Ástbjörn er aleinn. Skotið er ekki frábært en það endar í markinu.

Heimamenn gleðjast!
41. mín
Patrik við það að komast í fínt færi en varnarmenn FH ná að trufla hann nógu mikið. Skotið ekki gott.
40. mín
Vá, hvað þetta hefur verið leiðinlegur leikur.
38. mín
Logi Hrafn með fyrirgjöf og Gyrðir Hrafn stekkur hæst, en ekki nógu hátt.
35. mín
Ísak Óli liggur eftir í teignum og þarf aðhlynningu. Sýnist að það verði nú allt í lagi með hann.
34. mín Gult spjald: Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik)
Höskuldur tekur hornspyrnuna en Viktor brýtur af sér og fær gult spjald.
33. mín
Benjamin Stokke tekur aukaspyrnuna óvænt og setur boltinn í varnarvegginn. Sindri Kristinn er farinn í hitt hornið en boltinn fer fram hjá markinu.
32. mín
Breiðablik fær aukaspyrnu á góðum stað, rétt fyrir utan vítateig. Þetta er skotfæri.
28. mín
Aron Bjarna stingur Sigurð Bjart af og leggur hann svo út á Viktor Karl sem er við það að komast í frábært skotfæri, en þá er Sigurður Bjartur mættur til að loka á skotið. Flott vinnusemi þarna hjá sóknarmanninum.
25. mín
það verður að segjast eins og er: Þetta hafa ekki verið skemmtilegar 25 mínútur. Því miður.
23. mín
Aron Bjarna reynir utanfótar skot sem endar næstum því í innkasti hinum megin. Jahérna!
22. mín
Viktor Karl í fínu skotfæri en Ólafur nær að henda sér fyrir skotið hans.
19. mín
Á hinum enda vallarins á Ástbjörn frábæra tæklingu.
18. mín
Kjartan Kári við það að komast á flug en Oliver stoppar hann.
14. mín
Blikarnir eru bara sofandi. Hafa varla verið með hingað til.
14. mín
Ísak Óli einn og óvaldaður inn á teignum eftir aukaspyrnu en Anton Ari nær að verja skalla hans. Svo er dæmd rangstaða.
11. mín
Kjartan Kári með fast skot sem Höskuldur nær að koma sér fyrir. Það liggur á Blikunum, FH-ingar að hóta.
11. mín
Úlfur næstum því búinn að þræða Sigurð Bjart í gegn. Munaði litlu.
10. mín
FH-ingar kraftmeiri þessar fyrstu tíu mínútur.
9. mín
Ástbjörn stingur boltanum inn á Vuk sem á svo fyrirgjöf, en hún endar beint í höndunum á Antoni Ara.
7. mín
Böðvar tekur hornspyrnuna en Höskuldur skallar frá.
7. mín
Vuk reynir skot inn á teignum en hann sækir hornspyrnu.
6. mín
Ólafur reynir annað langt innkast en Viktor Karl, sem er fyrsti maður í teignum, skallar frá.
4. mín
Óli Guðmunds með langt innkast sem endar beint í markspyrnu. Jahá!
3. mín
Svona eru Blikar að stilla upp
Mynd: Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. mín
Gyrðir Hrafn með flottan sprett upp völlinn og leggur hann út í teiginn, en Sigurður Bjartur missir af boltanum.
2. mín
Svona er FH að stilla upp
Mynd: Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
1. mín
Leikur hafinn
Gleðilegt föstudagskvöld!
Fyrir leik
Liðin að ganga út á völl. Allir leikmenn með bolta í hönd sem þeir sparka svo upp í stúku. Krakkarnir skemmta sér vel.
Fyrir leik
Leikmenn farnir inn eftir upphitun og fólk búið að koma sér vel fyrir í stúkunni. Flautað á eftir smá.
Fyrir leik
Það er búið að vökva vel og Kaplakrikavöllur lítur hrikalega vel út.
Fyrir leik
Það er sólríkt í Kaplakrika og varla ský á lofti, en það er nokkuð hvasst. Leikmenn eru að mæta út á völl í upphitun þegar 45 mínútur eru í leikinn.
Fyrir leik
Byrjunarlið Breiðabliks 1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
6. Alexander Helgi Sigurðarson
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
9. Patrik Johannesen
11. Aron Bjarnason
20. Benjamin Stokke
21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman
Fyrir leik
Byrjunarlið FH 1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
4. Ólafur Guðmundsson (f)
5. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Sigurður Bjartur Hallsson
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Ísak Óli Ólafsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
33. Úlfur Ágúst Björnsson
34. Logi Hrafn Róbertsson
Fyrir leik
Björn Daníel í banni og Jason á bekkinn Búið er að opinbera byrjunarliðin fyrir þennan leik.

FH gerir eina breytingu frá sigurleiknum gegn Fylki á dögunum. Björn Daníel Sverrisson er í leikbanni og kemur Gyrðir Hrafn Guðbrandsson inn í hans stað.

Breiðablik gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn ÍA. Alexander Helgi Sigurðarson, Patrik Johannesen og Andri Rafn Yeoman koma inn á meðan Kristinn Steindórsson og Jason Daði Svanþórsson fara á bekkinn. Kristinn Jónsson er ekki í hóp.

Það er áhugavert að Jason Daði fer á bekkinn en hann er núna orðaður við Grimsby Town á Englandi.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Elías Ingi með flautuna
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir


Elías Ingi Árnason dæmir þennan leik. Hann hefur verið einn besti dómari sumarsins. Honum til aðstoðar eru Ragnar Þór Bender og Guðmundur Ingi Bjarnason. Gylfi Þór Orrason er eftirlitsmaður og Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er varadómari.
Fyrir leik
Spáir Blikasigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Júlíus Mar Júlíusson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net skotmark félaga úr Bestu deildinni en hann er leikmaður Fjölnis sem er með jafnmörg stig og Njarðvík á toppi Lengjudeildarinnar. Hann spáir í Bestu deildina.

FH 1 - 2 Breiðablik
Ekki mikið að frétta í þessum leik, bæði lið passív en Blikarnir á endanum sterkari og vinna þessa skák.

Fyrir leik
„Frammistaða Blika síðustu tvo leiki stuðar mig“ Valur Gunnarsson sérfræðingur Innkastsins segir að lykilmenn Breiðabliks séu að bregðast þegar mest er undir. Hann kallar eftir því að leikmenn liðsins stígi upp.

Fyrir leik
Blikar brugðust Breiðablik harkaði út sigur gegn KA á dögunum og gat svo komist á topp Bestu deildarinnar síðast sunnudag en náði með naumindum stigi gegn ÍA á Kópavogsvelli, Skagamenn klúðruðu dauðafæri í lokin. Þeir hefðu getað sent frá sér yfirlýsingu en tókst það ekki.

Síðustu fimm leikir Blika:
Breiðablik 1 - 1 ÍA
Breiðablik 2 - 1 KA
HK 0 - 2 Breiðablik
Breiðablik 1 - 1 Víkingur R.
Fram 1 - 4 Breiðablik

Blikar hafa aðeins tapað tveimur deildarleikjum í sumar og eru að berjast á toppnum. Þeir eru í öðru sæti núna, fjórum stigum á eftir toppliði Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Miðlungs hjá FH Þetta hefur verið frekar mikið miðlungs sumar fyrir FH til þessa en þeir sitja í fimmta sæti Bestu deildarinnar með 17 stig eftir ellefu leiki. Þeir hafa skorað 21 mark og fengið á sig 21 mark. FH hefur tekið einn sigur í síðustu fimm leikjum sínum í deildinni.

Síðustu fimm leikir FH:
FH 3 - 1 Fylkir
Stjarnan 4 - 2 FH
FH 3 - 3 Fram
Valur 2 - 2 FH
FH 1 - 2 KR

Það er samt stupp upp í fjórða sæti fyrir Fimleikafélagið en þeir eru með jafnmörg stig og ÍA fyrir leiki kvöldsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Umferðin hófst í gær Tólfta umferð Bestu deildarinnar hófst í gær með þremur leikjum. Fram vann útisigur á Vestra, Víkingur fór illa með Stjörnuna og KR gerði jafntefli við Fylki í Vesturbænum.


Það eru svo aðrir þrír leikir í kvöld.

föstudagur 28. júní
18:00 HK-KA (Kórinn)
19:15 ÍA-Valur (ELKEM völlurinn)
19:15 FH-Breiðablik (Kaplakrikavöllur)
Fyrir leik
Góða kvöldið! Og verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik FH og Breiðabliks í Bestu deild karla. Leikið er á Kaplakrikavelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson ('55)
4. Damir Muminovic
6. Alexander Helgi Sigurðarson ('55)
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
9. Patrik Johannesen ('55)
11. Aron Bjarnason ('87)
20. Benjamin Stokke ('55)
21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
2. Daniel Obbekjær
10. Kristinn Steindórsson ('55)
14. Jason Daði Svanþórsson ('55)
16. Dagur Örn Fjeldsted ('87)
23. Kristófer Ingi Kristinsson ('55)
24. Arnór Gauti Jónsson ('55)

Liðsstjórn:
Halldór Árnason (Þ)
Marinó Önundarson
Særún Jónsdóttir
Eyjólfur Héðinsson
Haraldur Björnsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Helgi Jónas Guðfinnsson

Gul spjöld:
Viktor Örn Margeirsson ('34)
Damir Muminovic ('65)
Halldór Árnason ('83)
Andri Rafn Yeoman ('85)

Rauð spjöld: