Fotbolti.net
Besta deildin
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
ÍA
ÍA
Besta-deild karla
ELKEM völlurinn
8 - 0
HK
HK
Jón Gísli Eyland Gíslason 5'1 - 0Erik Tobias Tangen Sandberg 23'2 - 0Jón Gísli Eyland Gíslason 34'3 - 0Viktor Jónsson 45'4 - 0Viktor Jónsson 72'5 - 0Viktor Jónsson 75'6 - 0Viktor Jónsson 83'7 - 0Johannes Björn Vall 88'8 - 0
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Áttavilltir HK-ingar áttu ekki breik á Skaganum

Hvað réði úrslitum?

ÍA gengu í raun og veru bara á lagið frá upphafi til enda og eftir að Skagamenn komust yfir strax á fimmtu mínútu þá var þetta aldrei spurning og keyrðu Skagamenn yfir andlausa HK-inga. ÍA hélt áfram frá upphafi til lokaflauts og Skagamenn voru með allt í botni allar 90 mínúturnar.

Bestu leikmenn

1. Johannes Vall (ÍA)

Johannes Vall var stórkostlegur í dag. Var upp og niður vinstri vænginn hjá ÍA í dag og Johannes Vall fullkomnaði sinn dag með því að skora áttunda mark Skagamanna eftir sendingu frá VIktori Jónssyni.

2. Viktor Jónsson (ÍA)

Viktor veður bara að fara í þennan glugga. Skoraði fjögur mork í dag og lagði upp eitt. Jón Gísli gerir einnig tilkall í þennna glugga en hann var einnig frábær í dag og skoraði tvö.

Atvikið

Fyrsta markið bara sem setti Akranesvélina að alvöru í gang þegar Jón Gísli setti boltann í netið á vítateigslínunni og eftir það var þetta aldrei spurning.

Hvað þýða úrslitin?

ÍA er í fjórða sæti deidlarinnar með 23.stig og er liðið aðeins fjórum stigum á eftir Val sem situr í öðru sæti deildarinnar. Liðið á leik til góða. HK situr í níunda sæti deildarinnar og er liðið með 13.stig.

Vondur dagur

HK liðið í heild sinni en það var gríðarlegt andleysi hjá HK ingum í dag og liðið hafði engan áhuga á því að verjast í þessum leik.

Dómarinn - 8

Ekki erfiður leikur að dæma og Sigurður Hjörtur og hans menn voru flottir í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.