SKÝRSLAN: Bæði lið fara heim í fýlu frá Meistaravöllum
Hvað réði úrslitum?
Þetta voru að mínu mati sanngjörn úrslit, tölfræðin segir mögulega annað en Stjörnumenn fengu heilt yfir betri færi þótt tækifæri KR-inga voru fleiri.
Bestu leikmenn
1. Aron Sigurðarson
Þessi gæi er bara galið góður í fótbolta, leggur upp markið hjá Axel og hann var bara lang bestur inn á vellinum í dag, allur sóknarleikur KR fór nánast í gegnum hann
2. Mathias Rosenörn / Róbert Frosti
Gat ekki valið á milli en þeir voru báðir geggjaðir. Rosenörn mjög yfirvegaður í markinu og átti eina geggjaða vörslu í fyrri hálfleik. Róbert lagði upp mark Garðbæinga virkilega vel og var mjög sprækur.
Atvikið
Þegar að Mathias Rosenörn skoraði næstum frá sínum eigin vítateig, skoppaði yfir Guy Smit í markinu og boltinn fór svona meter framhjá markinu, ótrúlegt atvik og hefði gjörsamlega klárað leikinn fyrir Stjörnuna en þetta gerðist í stöðunni 0 - 1
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan eru í 6.sæti deildarinnar með 17 stig en liðin bakvið þá eiga leik til góða allavega. KR-ingar eru í 8 sæti með 14 stig þannig eitt stig gerir alveg rosalega lítið fyrir bæði lið. Bæði lið án sigurs í langan tíma og þrjú stig í dag hefði verið rosalega sterkt fyrir annað hvort liðið
Vondur dagur
Benoný Breki var í krummafót í dag. Var hvergi sjáanlegur í fyrri hálfleik og fékk fimm færi í heildina en ekkert mark í dag frá honum. Ég geri bara kröfur á Benó inn í teig andstæðingana og hann gerir það eflaust sjálfur og hann hefði líklega átt að skora í dag.
Dómarinn - 7
Elías bara fínn í dag ásamt hans teymi, ekkert eitthvað mikið að setja út á hann og aðstoðarmenn hans.




