SKÝRSLAN: Góður sigur Eyjamanna gegn spræku Leiknisliði
Hvað réði úrslitum?
Gæði Vicente í eina marki leiksins sem réði úrslitum hérna í dag. Fór illa með varnarmenn Leiknis og lagði hann laglega í markið.
Bestu leikmenn
1. Vicente Rafael Valor Martínes
Var allt í öllu inn á miðsvæðinu hjá Eyjamönnum. Stjórnaði sóknarleik liðsins og vann marga bolta varnarlega. Hann skoraði svo eina mark leiksins þar sem hann sýndi mikil gæði.
2. Tómas Bent Magnússon
Var líka öflugur inn á miðju ÍBV. Hann var mjög góður varnarlega og eins og oft áður öflugur í loftinu. Hann kom sér oft í fínar stöður inni í teig Leiknismanna og hefði kannski átt að setja mark.
Atvikið
Á lokamínútum leiksins fengu Eyjamenn tvö dauðafæri þegar bæði Víðir og Sigurður Grétar voru einir í gegn frá miðju vallarins . Afar illa farið með færi sem hefði getað lokað leiknum en sem betur fer fyrir þá, þá héldu Eyjamenn út með eina marki Vicente.
Hvað þýða úrslitin?
Eyjamenn hafa unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum og eru komnir enn nær tveimur efstu liðunum. Leiknismenn tapa sínum fyrsta leik undir stjórnn Ólafs Hrannar, þrátt fyrir fína tilburði og eru áfram í níunda sæti.
Vondur dagur
Arnór Ingi Kristinsson. Þrátt fyrir fínan leik, þá sérstaklega í fyrri hálfleik þá fær hann gult spjald og svo stuttu síðar fer hann í glæfralega tæklingu sem að menn eiga ekki að gera á gulu spjaldi. Þar af leiðandi var honum vikið af velli.
Dómarinn - 7
Fínasti leikur hjá Jóhanni Inga og lítið um vafaatriði. Töluvert mikið af spjöldum fóru á loft en erfitt að segja að þau hafi ekki verið sanngjörn fyrir utan spjaldið sem Hermann Þór Ragnarsson fékk, þar sem það leit úr fyrir að vera árekstur en ekki brot.


