SKÝRSLAN: Þróttarar á hvínandi siglingu
Hvað réði úrslitum?
Þróttarar einfaldlega miklu sterkari aðilinn í dag og áttu þennan sigur fyllilega skilið. Eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik var meiri ógn að marki Þórsara í seinni hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Tryggði Þrótturum sigurinn með góðu marki og var mjög sprækur í leiknum.
2. Þórir Guðjónsson
Þróttarar á góðu skriði og þá er frábært að fá reynslumikinn leikmann inn. Þórir spilaði sinn fyrsta leik í byrjunarliðinu á tímabilinu og gerði það með stakri prýði.
Atvikið
Það var tíu mínútna stopp í leiknum þegar Auðunn Ingi Valtýsson og Kári Kristjánsson lentu í samstuði undir lok venjulegs leiktíma. Auðunn yfirgaf völlinn í sjúkrabíl, vonandi verður í lagi með hann.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur fer uppfyrir Þór eftir fjórða sigurleikinn í röð. Þróttur er komið í 5. sæti deildarinnar en Þór situr í 7. sæti. Liðinu hefur ekki tekist að tengja saman tvo sigra í deildinni í sumar.
Vondur dagur
Eins og segir hér fyrir ofan þá hafa Þórsarar ekki tengt saman tvo sigra í deildinni. Liðið er aðeins með átta stig úr fimm leikjum á heimavelli sem oft er talinn gríðarlega erfiður fyrir gestaliðin. Sóknarleikurinn var ekki til staðar í dag og það var skjálfti í vörninni og menn gleymdu sér þegar Vilhjálmur skoraði.
Dómarinn - 8
Vel dæmdur leikur hjá Ívari


