SKÝRSLAN: Tvö rauð í sigri ÍBV á Dalvík/Reyni
Hvað réði úrslitum?
ÍBV byrjuðu leikinn miklu betur en Dalvíkingar tóku yfir leikinn eftir að þeir urðu manni fleiri. Þeir hins vegar náðu ekki að skapa sér nein færi og Eyjamenn vörðust virkilega vel þrátt fyrir að vera manni færri.
Bestu leikmenn
1. Oliver Heiðarsson
Dalvíkingar réðu ekkert við hraðan í Oliver, enda gera það fáir. Skoraði eina mark leiksins og var sífelt ógnandi.
2. Hjörvar Daði Arnarsson
Varði virkilega vel nokkrum sinnum og átti rosalega vörslu eftir skot frá Áka í lok fyrri hálfleiks.
Atvikið
Rauðu spjöldin bæði, seinna rauða var rosalega skrýtið. 2 gul á Bissi sem var eins og hann var að reyna að láta senda sig útaf í lokinn. Hann fer svo til Þórðar dómara og hvíslar eitthverju að honum.
Hvað þýða úrslitin?
Taflan breytist ekkert, ÍBV nálgast Njarðvík og Fjölni á toppnum en þetta er farið að líta ansi illa út fyrir Dalvíkinga.
Vondur dagur
Hermann Þór Ragnarsson fær rautt í fyrri hálfleik sem gerir leikinn erfiðari en hann þurfti að vera. Eins leiðinlegt og mér finnst að setja hann í þennan dálk þá veit hann upp á sig sökina og lærir að þessu.
Dómarinn - 8
Duglegur að spjalda en ég held að það hafi nánast verið allt rétt. Fannst fyrra gula á Bissi kannski full ósanngjarnt. Dalvíkingar vildu líka fá vítaspyrnu í síðari hálfleik þegar Áki fer niður í baráttu við Sigurð Arnar. Sá það ekki nógu vel þannig ég get ekki sagt til um það.


