Fotbolti.net
Besta deildin
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
11 gráður og sólin skín
KA
KA
1 - 0
Valur
Valur
Viðar Örn Kjartansson 45'1 - 059' Frederik August Albrecht Schram
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Leik lokið!
KA með frábæran sigur! Valsarar voru betri ef eitthvað er manni færri en náðu ekki að skapa sér neitt
Valur
92. mín
Gult spjald

Aron Jóhannsson

91. mín
Stubbur handsamar boltann. Sex mínútur í uppbótatíma.
KA
90. mín
InnHarley Bryn Willard
ÚtHallgrímur Mar Steingrímsson
90. mín
Valur fær horn. Fáum við dramatík?
KA
84. mín
Gult spjald

Jakob Snær Árnason

Fyrir töf. Þóttist taka innkastið en lagði boltann frá sér
Valur
83. mín
InnHörður Ingi Gunnarsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
82. mín
Gylfi með skot framhjá
KA
79. mín
InnKári Gautason
ÚtHrannar Björn Steingrímsson
Valur
76. mín
InnAron Jóhannsson
ÚtTryggvi Hrafn Haraldsson
Valur
73. mín
Gult spjald

Tryggvi Hrafn Haraldsson

KA
67. mín
InnÁsgeir Sigurgeirsson
ÚtViðar Örn Kjartansson
Viðar þarf að fara af velli
66. mín
Viðar Örn leggst niður. Finnur eitthvað til aftan í læri!
63. mín
Hallgrímur Mar með skot í slá beint úr aukaspyrnu
Valur
61. mín
InnÖgmundur Kristinsson
ÚtJónatan Ingi Jónsson
Jónatan Ingi þarf að víkja
Valur
59. mín
Rautt spjald

Frederik August Albrecht Schram

Viðar Örn sleppur í gegn og Frederik er lengi að koma út á móti honum og tekur hann niður. KA fær aukaspyrnu nánast á vítateigslínunni. Ögmundur Kristinsson á leiðinni í rammann hjá Val.
57. mín
Jakob Franz Pálsson fær boltann í höfuðið af stuttu færi. Hann er sem betur fer staðinn upp.
55. mín
Daníel með gott skot en glæsileg varsla hjá Frederik. KA fær horn.
53. mín
Hallgrímur Mar með skot framhjá, boltinn breytti aðeins um stefnu á leiðinni. KA menn byrja seinni hálfleikinn mjög sterkt.
49. mín
Viðar Örn fylgir eftir skoti Hallgríms og setur boltann í netið en er dæmdur rangstæður.
48. mín
Stubbur grípur fyrirgjöfina úr aukaspyrnunni
KA
46. mín
Gult spjald

Ívar Örn Árnason

Valur fær aukaspyrnu við endalínu á hægri kanti.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Gylfi og Rodri lentu saman rétt áður en KA skoraði og menn voru ekki sáttir að fá ekki neitt fyrir það. Sá það ekki alveg en Gylfi eða Sigurður Egill fékk spjald fyrir mótmæli.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til loka fyrri hálfleiks um leið og miðjan er tekin
KA
45. mín
VIÐAR SKORAR

Viðar Örn Kjartansson

KA er komið yfir! Daníel Hafsteinsson með slakt skot en boltinn berst til Viðars sem stýrir boltanum í netið.
44. mín
Tryggvi Hrafn með skalla yfir markið.
39. mín
Ívar Örn fær sendingu inn á teiginn og ætlar að klippa boltann en hittir hann ekki.
31. mín
Viðar Örn Kjartansson með skot sem fer af varnarmanni og Frederik á ekki í vandræðum
Valur
29. mín
Gult spjald

Kristinn Freyr Sigurðsson

Uppsöfnuð brot
24. mín
Valsmenn að banka fast
Tryggvi Hrafn með skot í varnarmann og Bjarni Mark fær boltann í D-boganum og á fast skot sem Stubbur ver vel.
21. mín
FÆRI!
Tryggvi Hrafn Haraldsson gerir hrikalega vel, aleinn á kantinum og fær boltann, leikur á Ívar Örn og á skot í fjærhornið sem Stubbur ver vel. Jónatan náði frákastinu en skaut yfir markið úr dauðafæri
13. mín
Verið rólegt undanfarnar mínútur. Valur verið með boltann en KA menn þéttir til baka.
6. mín
Tryggvi Hrafn Haraldsson með góðan sprett inn á teiginn, boltinn berst svo til Sigurðar Egils sem nær ekki valdi á boltanum og KA kemur boltanum í horn, ekkert kemur út úr því.
4. mín
Hans Viktor Guðmundsson með skalla yfir markið eftir fyrirgjöf frá Darko Bulatovic. KA menn að byrja vel.
2. mín
Daníel Hafsteinsson fær boltann nánast inn á markteig og á skot sem Frederik nær að blaka yfir.
1. mín
Leikur hafinn
Hallgrímur Mar Steingrímsson kemur þessu af stað
Fyrir leik
Þetta er að bresta á!
Liðin eru að ganga út á völl
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Það eru þrjár breytingar á liði heimamanna sem gerði gríðarlega svekkjandi 2-2 jafntefli gegn KR í síðustu umferð.

Jakob Snær Árnason, Hrannar Björn Steingrímsson og Hans Viktor Guðmundsson koma allir inn í liðið en snýr aftur eftir að hafa tekið út leikbann. Kári Gautason, Harley Willard og Ásgeir Sigurgeirsson fá sér sæti á bekknum.

Srdjan Tufegdzic, Túfa, stýrir Val í fyrsta sinn í kvöld gegn sínum gömlu félögum. Það eru þrjár breytingar á liðinu sem féll úr leik í Sambandsdeildinni gegn St. Mirren á dögunum. Orri Sigurður Ómarsson, Birkir Már Sævarsson og Gylfi Þór Sigurðsson, sem hefur jafnað sig af meiðslum, koma inn í liðið. Hörður Ingi Gunnarsson, Guðmundur Andri Tryggvason, Lúkas Logi Heimisson. Hörður Ingi og Lúkas eru á bekknum en Guðmundur Andri ekki í hóp.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Jóhann Ingi Jónsson verður með flautuna hér í kvöld. Þórður Arnar Árnason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage verða honum til aðstoðar. Sveinn Arnarsson verður á hliðarlínunni og Ingvar Örn Gíslason er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þjálfarabreyting
Arnar Grétarsson, fyrrverandi þjálfari KA, var látinn taka pokann sinn hjá Val strax eftir að liðið féll úr leik í Sambandsdeildinni á dögunum. Túfa, einnig fyrrum þjálfari og leikmaður KA, var ráðinn í hans stað. Hann mætir því aftur til Akureyrar í dag en hann var aðstoðarþjálfari liðsins frá 2012-2015 og aðalþjálfari frá 2015-2018. Hann lék með liðinu frá 2006-2012.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Túfa, fyrrum þjálfari og leikmaður KA
Fyrir leik
Fyrri viðureignir
Liðin hafa mæst tvisvar í sumar. Fyrri leikur liðanna í deildinni á N1 vellinum endaði með 3-1 sigri Vals þann 11. maí. Hólmar Örn Eyjólfsson kom Val yfir en Hallgrímur Mar Steingrímsson jafnaði með marki úr vítaspyrnu. Patrick Pedersen skoraði tvö og innsiglaði sigur Vals. KA náði fram hefndum í undanúrslitum Mjólkurbikarsins hér á Greifavellinum. Liðið vann 3-2 þar sem Hallgrímur Mar, Jakob Snær Árnason og Daníel Hafsteinsson skoruðu mörkin. Patrick og Birkir Már Sævarsson skoruðu mörk Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Úr leik liðanna í bikarnum
Fyrir leik
Góða kvöldið
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og Vals í Bestu deildinni. Leikurinn er liður í 17. umferð en hann fer fram á Greifavellinum á Akureyri.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.