Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Vængir Júpiters
Vængir Júpiters
Fótbolti.net bikarinn
Fjölnisvöllur - Gervigras
1 - 3
Árbær
Árbær
0 - 119' Andi Andri Morina0 - 244' Agnar GuðjónssonDaníel Smári Sigurðsson 53'1 - 21 - 374' Djordje Panic
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Vængirnir flugu ekki hátt

Hvað réði úrslitum?

Mér fannst Vængirnir betri heilt yfir í fyrri hálfleiknum en einhvern veginn var staðan 2-0 fyrir Árbæ í hálfleik. Seinni hálfleikurinn byrjaði svo frábærlega fyrir Vængina, mark og leikmaður Árbæjar sendur í sturtu. En ef eitthvað var urðu Árbæingar betri í stöðunni 10 á móti 11. Þeir náðu svo þriðja markinu en heilt yfir fengu gestirnir hættulegri færi í seinni hálfleiknum.

Bestu leikmenn

1. Agnar Guðjónsson

Klárlega maður leiksins. Fyrirliðinn steig upp í dag og var frábær. Spilaði þrjár stöður og skoraði 2-0 markið sem var ekkert smá stórt í stöðunni sem Árbær var í. Klárlega maður leiksins.

2. Bartosz Matoga

Margir sem koma til greina hér eins og t.d. Ragnar Páll en ég ætla að gefa Bartosz þetta. Mjög solid milli stanganna í dag. Var að stýra liðinu og lét alltaf í sér heyra. Mjög flottur.

Atvikið

Þriðja markið gerði Árbæingum kleift að anda hægar og innsiglaði sigurinn fyrir bleikklæddu gestina.

Hvað þýða úrslitin?

Árbæingar verða í pottinum þegar dregið verður í undanúrslitin en Vængirnir geta gleymt þeirri yngstu og sprækustu og einbeitt sér að deildinni.

Vondur dagur

Ástþór fær gult í fyrri, brýtur rétt fyrir utan teig og úr þeirri aukaspyrnu kom mark, brýtur aftur skömmu eftir það og fær rautt. Skelfileg byrjun á seinni hálfleiknum hjá honum og þrátt fyrir eina mjög fína stoðsendingu var hann eitthvað off í dag. En samt sem áður voru Árbæingar bara betri 10 en þeir voru 11.

Dómarinn - 8

Ekkert mikið hægt að setja út á Twana þannig séð. Svona nokkur atvik reyndar sem mér fannst ekkert smá spes en ekkert sem réði úrslitum leiksins að mínu mati.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.