Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Fótbolti.net bikarinn
Fjölnisvöllur - Gervigras
Vængir Júpiters
Vængir Júpiters
1 - 3
Árbær
Árbær
0 - 119' Andi Andri Morina0 - 244' Agnar GuðjónssonDaníel Smári Sigurðsson 53'1 - 21 - 374' Djordje Panic
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Leik lokið!
ÁRBÆINGAR ERU Á LEIÐINNI Í UNDANÚRSLITIN!
Skýrsla og viðtöl koma seinna í kvöld. Þangað til næst, takk fyrir mig!
90. mín
Þetta er að fjara út fyrir Vængina.
90. mín
Bartosz kýlir frá og Árbæingar bruna upp!
90. mín
Vængirnir fá horn!
90. mín
Heimamenn liggja á Árbæingum þessa stundina!
86. mín
Fáum við drama?!
Eftir ekkert smá góða byrjun á leiknum hafa Vængirnir verið frekar slakir 11 á móti 10 verð ég að segja. Eitt mark samt og þetta er orðinn leikur!
Árbær
80. mín
InnAndrija Aron Stojadinovic
ÚtJonatan Aaron Belányi
Árbær
80. mín
InnHörður Kárason
ÚtDaníel Gylfason
78. mín
Vængirnir fá horn!
Árbær
74. mín
EKKERT SMÁ STÓRT MARK!

Djordje Panic (stoðsending: Jordan Chase Tyler)

Það var leikmaður nr 8 sem skoraði og hann er ekki á skýrslu, heyrði Árbæinga kalla markaskorarann Djordje þannig þetta hlýtur að vera hann. Jorjan Tyler fær boltann inni á teignum frá Marko Panic og kemur honum til hliðar á Djordje. Djordje snýr og tekur skotið sem lekur í stöngina og inn. Eyþór Daði gerði hetjulega tilraun að bjarga þessu en hann var ekkert smá óheppinn. Eru Árbæingar á leiðinni í undanúrslitin?
Vængir Júpiters
71. mín
InnJacques Sylvain Diémé
ÚtAnton Breki Óskarsson
68. mín
Horn beint af æfingarsvæðinu sem endar í innkasti hinum meginn.
67. mín
Árbær að fá horn!
Árbær
66. mín
InnJordan Chase Tyler
ÚtElvar Freyr Jónsson
65. mín
Dauðafæri Árbæinga!
Daníel Gylfason með skalla sem fer rétt yfir eftir sendingu frá Ragnari Páli! Þarna hefði Marko Panic átt að öskra á hann á fjærstönginni að láta boltann fara en gann var í mun betri stöðu.
Vængir Júpiters
64. mín
Hárrétt spjald

Kristófer Heimisson

61. mín
Vængirnir trylltir!
Leikmaður Vængi Júpíters, sá ekki hver, er tekinn niður í teignum og Twana er við það að flauta og benda á punktinn en leyfir leiknum að halda áfram þar sem Vængirnir voru með boltann. Það endar með því að þeir taka skot sem fer langt yfir og markspyrna sem Árbæingar eiga. Vængirnir trylltir og botna ekki afhverju gann flautaði ekki og ég skil það svosem.
60. mín
Langar mínútur fyrir Árbæinga
Þetta er alvöru suffer mode sem Árbæingar eru komnir í núna.
Árbær
59. mín
InnDmytro Bondarenko
ÚtEyþór Ólafsson
Leikmaður nr 8 kom inn á hjá Árbæ en það er enginn á bekknum nr 8. Giskaði bara á Dmytro.
Árbær
59. mín
InnMarko Panic
ÚtAndi Andri Morina
Leikmaður nr 8 kom inn á hjá Árbæ en það er enginn á bekknum nr 8. Giskaði bara á Dmytro.
Árbær
54. mín
Annað gult og rautt!

Ástþór Ingi Runólfsson

Búinn að taka tvær lélegar tæklingar í seinni hálfleiknum og fær gult núna. Skelfileg byrjun á hálfleiknum hjá Ástþóri, sem gaf líka aukaspyrnuna sem Vængirnir skoruðu úr, og hjá Árbæ! Þetta er svakaleg byrjun á seinni hálfleiknum!
53. mín
Engin vallarklukka
Ég klikkaði á því að byrja tímann í símanum fyrir seinni hálfleikinn þannig ég er meira og minna að skjóta á hvað eru margar mínútur liðnar.
Vængir Júpiters
53. mín
Beint úr aukaspyrnu!

Daníel Smári Sigurðsson

Djöfull virkaði þetta auðvelt fyrir Daníel sem bara lyfti boltanum yfir vegginn og í netið fór hann! Þetta er orðinn leikur!
52. mín
Hann sleppur með spjald!
Ástþór brýtur af sér rétt fyrir utan teig á gulu spjaldi en hann sleppur með spjald og Vængirnir tryllast!
50. mín
Byrjar rólega
Þetta fer mjög rólega af stað þannig séð
46. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn!
Gestirnir koma þessu í gang á ný!
45. mín
Gestirnir leiða í hálfleik
Árbær
44. mín
Risamark!

Agnar Guðjónsson (stoðsending: Andi Andri Morina)

Haukur Óli ver stórkostlega einn á einn gegn Andi Morina en framherjinn fær boltann aftur. Hann rennir honum út í teiginn á Agnar sem klárar á nær. Ekkert smá stórt mark rétt fyrir hálfleik!
Vængir Júpiters
40. mín
Fyrir dýfu

Rafael Máni Þrastarson

Dettur niður í teignum og fær spjald! Mjög ósammála þessum dómi.
38. mín
Leikurinn hefur aðeins róast
Bæði lið klappa á boltanum en fá færi seinustu mínútur.
31. mín
Ekkert að falla með Vængjunum þessa stundina
Daníel Smári með skot sem fer í varnarmann og rétt framhjá. Ég fullyrði að þessi var á leiðinni inn!
Árbær
27. mín
Gult spjald

Ástþór Ingi Runólfsson

Árbæingar missa boltann aftarlega og Ástþór brýtur. Klókt brot.
Árbær
23. mín
Fyndið spjald

Eyþór Ólafsson

Fær högg og liggur lengi niðri. Dómarinn stoppar svo leikinn hálfri mínútu síðar og kannsr stöðuna á Eyþóri. Þegar hann er kominn að Eyþóri spyr Eyþór dómarann einfaldlega: Hey Ref I want to adk you something, are you joking? Og hann fær spjaldið.
Árbær
19. mín
Stöngin, stöngin inn!

Andi Andri Morina (stoðsending: Ástþór Ingi Runólfsson)

Skelfileg mistök hjá Vængjunum! Sending hjá Vængjunum aftarlega á vellinum sem Ástþór kemst fyrir, rétt fyrur utan teig Vængjanna. Ástþór kemur þá með gullfallega sendingu inn fyrir á Andi Morina sem klárar stöngin, stöngin inn! Menn voru lengi að bíða eftir að bolti leki í netið. Andi er núna markahæsti leikmaðurinn í .net bikarnum eins og staðan er núna!
17. mín
Rétt yfir hjá Vængjunum
Almar Máni gerir glæsilega á boltanum og kemur honum til hliðar á Anton Breka sem köttar inn á völlinn og tekur skotið rétt yfir.
14. mín
Skallað yfir markið
13. mín
Vængirnir að fá horn!
13. mín
Vængirnur vaðandi í færum
Veit ekki hversu mörg skot þeir eru búnir að taka seinustu mínútur en Almar Máni var að taka skot rétt framhjá rétt í þessu.
12. mín
Færi á báða boga
Bæði lið byrja þennan leik af krafti og eru að skapa sér færi. Vængirnir verið betri þessar undanfarnar mínútur.
10. mín
Bjarki Fannar tekur spyrnuna inn á teiginn sem Árbæingar skalla frá.
9. mín
Vængirnir að fá horn!
7. mín
Staðan?
Mynd: Sölvi Haraldsson
5. mín
Fjör í þessu
Andi Morina er tekinn niður í teignum og fær ekki víti. Hvernig skil ég ekki en svo bruna Vængirnir í skyndisókn og eiga skot í slá!
1. mín
Þá er þetta komið í gang hjá okkur! Vængurbir byrja með boltann og sækja í átt að Viðey.
0. mín
Draumaaðstæður
Gervigrasið er rennandi blautt eftir rigninguna í sag og sólin er heldur betur byrjuð að skína. Ég varla trúi þessu ekki!
0. mín
8-liða úrslitin í yngstu og sprækustu á sama tíma!
Sannkölluð fótboltaveisla sem við erum að fá í kvöld! 8-liða úrslit fótbolta.net bikarsins eru í kvöld en allir fjórir leikirnir eru spilaðir á sama tíma, klukkan 18:00. Við erum með fólk á þremur af þessum leikjum. Undirritaður verður á Vængir Júpíter - Árbær í Grafarvoginum. Logi Freyr Gissurarson verður á Selfoss - Haukar á Selfossi. Bogi Sigurbjörnsson verður á Tindastóll - Kári á Króknum. Fjórði leikurinn fer fram í Fífunni þar sem KFA-menn kíkja í heimsókn til Augnablik. Fótbolti.net bikarinn - Sú yngsta og sprækasta!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Draumadrátturinn
Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar, talaði um það í hinu víðfræga viðtali eftir Víkings Ólafsvíkur leikinn að draumadrátturinn hans væri að fá Vængi Júpíters. Hann óskaði sér reyndar þess að fá þá á heimavelli en fékk það ekki í gegn.
0. mín
Spámaður góður
Ástríðukóngurinn Sverrir Mar Smárason heldur áfram að spá í leikina í .net bikarnum. Hingað til er hann búinn að spá 20 af 24 réttum liðum áfram sem er ansi vel gert. Vængir 3 - 4 Árbær Vængirnir eru svona lið, maður getur ekki annað spáð en einhverri þvælu. Fullt af mörkum, liðin skiptast á að leiða en svo skiptir Baddi sér sjálfum inná í framlengingu og skorar sigurmarkið.
0. mín
Tríóið
Dómari þessa leiks er hann Twana Khalid Ahmed en honum til halds og trausts verða þeir Daníel Ingi Þórisson og Eðvarð Eðvarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Árbæingar
Árbæingar slógu Elliða út í 32-liða úrslitunum og savo Víking Ólafsvík í 16-liða úrslitunum. Báðir leikirnir hafa verið heimaleikir en þeir hafa verið bráðskemmtilegir og það er vonandi að við fáum einhverja svipaða veislu í kvöld í Grafarvoginum. Þrír leikmenn eru markahæstu leikmenn .net bikarsins til þessa en einn af þeim er leikmaður Árbæjar, Andi Andri Morina. Hann er með 3 mörk í keppninni. Líkt og Vængirnir að þá leika Árbæingar í 3. deildinni en þeir eru í baráttu á hinum enda töflunnar. Í dag eru þeir í 4. sæti deildarinnar en aðeins einu stigi á eftir Augnablik sem eru í 2. sætinu.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
0. mín
Vængirnir
Vængir Júptíters slógu KV út í 32-liða úrslitunum og KFK í 16-liða úrslitunum. Vængirnir eru í bullandi fallbaráttu í 3. deildinni aðeins tveimur stigum frá KV sem eru í fallsæti en Grafarvogsbúarnir eru í 10. sæti deildarinnar. Það sem er athyglisvert í þeirri deild er að Vængirnir eiga markahæsta leikmann deildarinnar, hann Rafel Mána Þrastarson. Hann er búinn að skora 12 mörk í 14 deildarleikjum.
Mynd: Vængir Júpíters / Bergur Steingrímsson
0. mín
Sú yngsta og sprækasta!
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu útsendingu frá leik Vængi Júpíters og Árbæjar í .net bikarnum. Leikið verður á gervigrasinu við Egilshöllina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.