Leik lokið!
94. mín
Tvær mínútur búnar af viðbótinni, stefnir allt í jafntefli.
90. mín
Það er þremur mínútum bætt við!
Fáum við sigurmark?
89. mín
InnNadía Atladóttir
ÚtRagnheiður Þórunn Jónsdóttir
86. mín
Stjörnukonur jafna! Úlfa keyrir upp hægri kantinn, snýr inn á völlinn og klárar frábærlega upp í nærhornið. Mjög vel gert hjá henni
JÁ SÆLL!!! ALLT JAFNT!
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Stjarnan jafnar!! Frábært mark!Stjörnukonur jafna! Úlfa keyrir upp hægri kantinn, snýr inn á völlinn og klárar frábærlega upp í nærhornið. Mjög vel gert hjá henni
82. mín
InnSóley Edda Ingadóttir
ÚtEyrún Embla Hjartardóttir
Stjarnan gerir tvöfalda skiptingu fyrir lokasprettinn. Stjarnan í leit að jöfnunarmarki.
81. mín
InnFanney Lísa Jóhannesdóttir
ÚtHrefna Jónsdóttir
74. mín
InnÍsabella Sara Tryggvadóttir
ÚtFanndís Friðriksdóttir
Gestirnir gera tvöfalda skiptingu.
74. mín
InnMálfríður Erna Sigurðardóttir
ÚtBerglind Björg Þorvaldsdóttir
72. mín
Hailey með bolta inn á teig Stjörnunar. Guðrún nær skalla en boltinn framhjá.
70. mín
Stjarnan fær horn.
Valskonur hreinsa.
Valskonur hreinsa.
67. mín
Frábær varsla!
Stjarnan heldur áfram að sækja! Gyða með góða sendingu inn á Jessicu og hún er ein á móti markmanni. Fanney gerir vel, kemur út á móti og lokar lá hana. Jessica reynir að vippa honum yfir hana en Fanney ver.
65. mín
InnGuðrún Elísabet Björgvinsdóttir
ÚtÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
63. mín
Frábær tækling!
Jessica með komin inn fyrir vörn gestanna og með helling af plássi fyrri framan sig. Komin inn á tegin en þar er Natasha sem á geðveika tæklingu og vinnur boltan! Stjarnan fær horn.
Geggjað horn. Hannah Sharts stekkur hæst af öllum og stangar boltann í stöngina! Stjarnan að ógna!
Geggjað horn. Hannah Sharts stekkur hæst af öllum og stangar boltann í stöngina! Stjarnan að ógna!
62. mín
Valskonur fá horn. Stjarnan hreinsar en boltinn berst á Fanndísi sem er rétt fyrir utan teig. Hún á fast skot meðfram jörðinni sem Erin ver.
58. mín
InnArna Dís Arnþórsdóttir
ÚtHenríetta Ágústsdóttir
56. mín
Stjarnan að ógna!
Frábær sending á fjær frá Eyrúnu Emblu. Hulda Hrund er á fjær og nær að pota boltanum í átt að marki en hittir hann ekki nógu vel og Fanney handsamar knöttinn.
52. mín
Valskonur hafa byrjað þennan seinni hálfleik eins og þann fyrri. Mun meira með boltan og ógna grimmt.
49. mín
Rétt framhjá!
Fanndís Friðriks með gott vinstrifótar skot. Boltinn sleikir stöngina og fér rétt framhjá.
46. mín
Svipmyndir úr fyrri!
Tryggvi Már Gunnarsson, ljósmyndari er á leiknum!








46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Stjarnan rúllar seinni í gang.
45. mín
Hálfleikur
Valskonur leiða í hálfleik!
Hálfleikur í fjörugum leik í Garðabænum. Valur mikið betri aðilin framan af en eftir markið hefur Stjarnan unnið sig inn í þetta!
Tökum okkur korterspásu og komum svo með seinni hálfleikinn!
Tökum okkur korterspásu og komum svo með seinni hálfleikinn!
44. mín
Aðeins hægt á leiknum undir lok hálfleiksins.
37. mín
Boltinn berst á Katie Cousins eftir misheppnaða hreinsun frá Stjörnunni. Katie með fast skot sem er varið af Erin í markinu.
35. mín
Rétt yfir!
Jessica Ayers með gott skot rétt fyrir utan teig. Hittir hann vel en boltinn rétt yfir þverslána.
29. mín
Hætta!
Stjarnan sækir hratt. Gyða kemur með hættulegan bolta inn á teig gestanna. Hrefna í góður færi en nær ekki að stýra boltanum á markið.
28. mín
Stjarnan að ógna! Kemur bolti inn á teig gestanna sem Hrefna Jónsdóttir skallar framhjá.
26. mín
Valur fær horn.
Stjarnan hreinsar.
Stjarnan hreinsar.
21. mín
Langskot
Hulda Hrund á skot í átt að marki gestanna fyrir utan teig. Fast skot sem fer af varnarmanni og aftur fyrir endamörk. Stjarnan fær horn.
Ekkert verður úr horninu.
Ekkert verður úr horninu.
20. mín
Góð sending frá Ragnheiði innn á teig Stjörnunar. Boltinn á Fanndísi sem reynir skotið en hittir hann ekki.
17. mín
Færi!
Stjarnan gerir vel og sækir hratt. Kemur góður bolti inn fyrir vörn gestanna og nær Andrea Mist stjórn á honum. Tekur eina snertingu og skýtur svo á mark af stuttu færi. Skotið beint á Fanney í markinu sem ver.
13. mín
Fanndís Friðriksdóttir gerir vel á hægri kantnium og kemur með alveg frábæra sendingu inn á teig Stjörnunar. Þar er Berglind með nóg af plássi og stangar boltann í netið! Valur leiðir 1-0!

MAAARK!
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Valskonur komnar yfir!Fanndís Friðriksdóttir gerir vel á hægri kantnium og kemur með alveg frábæra sendingu inn á teig Stjörnunar. Þar er Berglind með nóg af plássi og stangar boltann í netið! Valur leiðir 1-0!

12. mín
Valskonur verið að sækja grimmt fyrstu tíu mínúturnar. Fanndís gerir vel úti hægra megin og gefur boltann inn á teigin. Ragnheiður nær til hanns en nær ekki að stýra honum á markið.
8. mín
Valskonur gera vel og búa sér til gott færi en Fanndís rangstæð í uppspilinu.
6. mín
Skot á mark!
Klaufagangur í vörn Stjörnunar og gestirnir vinna boltann hátt uppi á vellinum. Ragnheiður fær boltan og á fast skot á mark. Hittir hann vel en boltin tiltölulega beuint á Erin sem ver.
5. mín
Berglind Björg á marktilraun. Á skot sem ver af varnarmanni og Erin handsamar boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Valskonur byrja með boltann.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja!
Leikmenn ganga nú inn á völlinn. Styttist óðfluga í upphafsflautið!
Fyrir leik
Styttist í þetta!
Nú er korter í upphafsflautið hér í Garðabænum! Fínustu aðstæður: 14°C, gola og skýjað. Fáum vonandi fjörugan leik hér í kvöld!
Fyrir leik
Guðný Geirs spáir í spilin!
Guðný Geirsdóttir, markvörður ÍBV, er spákona umferðarinnar! Hún spáir Valskonum sigri hér í kvöld.
Stjarnan 1 - 3 Valur
Valskonur búnar að vera á góðri siglingu í sumar og ætla ekki að fara misstíga sig núna. 1-3 Úlfa Dís kemur með neglu fyrir Stjörnukonur en það verður ekki nóg í þetta skiptið.

Stjarnan 1 - 3 Valur
Valskonur búnar að vera á góðri siglingu í sumar og ætla ekki að fara misstíga sig núna. 1-3 Úlfa Dís kemur með neglu fyrir Stjörnukonur en það verður ekki nóg í þetta skiptið.
09.08.2024 14:30
Guðný Geirs spáir í 16. umferð Bestu deildar kvenna

Fyrir leik
Halla Margrét komin til Stjörnunnar!
Stjarnan tryggði sér í dag markvörð fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna en Halla Margrét Hinriksdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna. Stjarnan var með þær Auði Scheving og Erin McLeod sem börðust um markvarðastöðuna en Auður hélt til Bandaríkjanna í síðasta mánuði og er þar í háskólanámi. Stjarnan var því ekki með varamarkvörð í síðasta deildarleik. Meira um félagsskiptin má sjá í fréttinni hér fyrir neðan!

09.08.2024 10:23
Halla Margrét skiptir frá Breiðabliki í Stjörnuna (Staðfest)

Fyrir leik
Valur hafði betur fyrr í sumar
Liðin tvö mættust á Hlíðarenda fyrr í sumar. Valur hafði þar betur og sigraði 4-0. Ísabella Sara Tryggvadóttir fór á kostum í leiknum og skoraði þrennu!
Mörkin úr fyrri leik liðanna!

Mörkin úr fyrri leik liðanna!

Fyrir leik
Dómarateymið!
Arnar Ingi Ingvarsson verður á flautunni hér í kvöld og verða þeir Tomasz Piotr Zietal og Ragnar Arelíus Sveinsson sem verða honum til aðstoðar. Eftirlitsmaður er Skúli Freyr Brynjólfsson og varadómari er Reynir Ingi Finnsson.


Fyrir leik
Valur
Valur er í fyrsta sæti deildarinnar fyrir leikinn í kvöld og eru þar með 42 stig, þremur stigum fyrir ofan Breiðablik. Valur er á ótrúlegu skriði í deildinni en Valskonur hafa ekki tapað síðan í maí og eru markahæsta lið deildarinnar með 41 mark skorað í sumar. Valur mætti Blikum í algjörum stórleik í síðustu umferð. Valskonur komust yfir snemma leiks þegar Katherine Amanda Cousins kom þeim yfir eftir 9. mínútur. Mörkin urðu ekki fleiri og vann Valur því 1-0 sigur.

Félagaskiptaglugginn lokar 13. ágúst. Valur hefur hingað til fengið til sín tvo nýja leikmenn.
Komnar:
Helena Ósk Hálfdánardóttir frá FH (til baka úr láni)
Natasha Anasi frá Brann í Noreg
Farnar:
Amanda Andradóttir til Twente í Hollandi
Hanna Kallmaier í ÍH

Félagaskiptaglugginn lokar 13. ágúst. Valur hefur hingað til fengið til sín tvo nýja leikmenn.
Komnar:
Helena Ósk Hálfdánardóttir frá FH (til baka úr láni)
Natasha Anasi frá Brann í Noreg
Farnar:
Amanda Andradóttir til Twente í Hollandi
Hanna Kallmaier í ÍH
Fyrir leik
Stjarnan
Stjarnan er fyrir leikinn í 6. sæti deildarinnar með 19 stig. Stjarnan hefur verið að næla sér í góð úrslit síðan Jóhannes Karl tók við en leikurinn í kvöld verður hans sjötti leikur sem þjálfari Stjörnunnar. Stjarnan mætti Fylki í Árbænum í síðustu umferð. Stjarnan komst yfir eftir 10 mínútna leik er Hrefna Jónsdóttir skoraði. Mörkin voru ekki fleiri og tók Stjarnan því stigin þrjú. Nú styttist í að deildinni verði skipt upp í neðri og efri hluta og verður áhugavert að sjá hvort Stjörnukonur haldi sér í efri hlutanum!

Félagaskiptaglugginn lokar 13. ágúst. Stjörnukonur hafa hingað til fengið til sín tvo nýja leikmenn.
Komnar:
Mist Smáradóttir frá Grindavík (til baka úr láni)
Jessica Ayers frá Vittsjö í Svíþjóð
Farnar:
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir í HK (á lán)
Caitlin Cosme í Nantes í Frakklandi

Félagaskiptaglugginn lokar 13. ágúst. Stjörnukonur hafa hingað til fengið til sín tvo nýja leikmenn.
Komnar:
Mist Smáradóttir frá Grindavík (til baka úr láni)
Jessica Ayers frá Vittsjö í Svíþjóð
Farnar:
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir í HK (á lán)
Caitlin Cosme í Nantes í Frakklandi
Fyrir leik
Heil og sæl!
Góðan dag kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu á viðureign Stjörnunnar og Vals í Bestu deild kvenna! Leikurinn fer fram á Samsung-vellinum í Garðabænum og hefst kl. 18:00.








Viðtöl og skýrsla koma seinna í kvöld.
Takk fyrir mig!