Fotbolti.net
Þorsteinn Haukur Harðarson
Þorsteinn Haukur Harðarson
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur-Safamýri
Grindavík
Grindavík
3 - 0
Þór
Þór
Einar Karl Ingvarsson 19'1 - 0Dagur Ingi Hammer Gunnarsson 56'2 - 0Josip Krznaric 85'3 - 0
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Þetta er búið. Ákaflega sanngjarn sigur Grindavíkur
Grindavík
89. mín
InnAndri Karl Júlíusson Hammer
ÚtMatevz Turkus
Grindavík
88. mín
InnKwame Quee
ÚtAdam Árni Róbertsson
Grindavík
85. mín
MAAAARK!

Josip Krznaric

Daniel Ndi með fyrirgjöf. Þórsarar hreinsa frá en beint fyrir fæturnar á Josip sem skorar með hnitmiðuðu skoti
84. mín
Ágætis færi Grindvíkinga. Adam með skot en Aron ver vel.
Þór
82. mín
InnNökkvi Hjörvarsson
ÚtAron Kristófer Lárusson
Þór
81. mín
Gult spjald

Birkir Heimisson

Fullorðins tækling. Þórsarar að safna spjöldum
Þór
80. mín
Gult spjald

Elmar Þór Jónsson

Þór
74. mín
InnAron Einar Gunnarsson
ÚtMarc Rochester Sörensen
Aron inn á
73. mín
Ingimar fær gult spjald líka. Ég var búinn að setja gult spjald á hann í fyrri hálfleik og hélt hann væri að fara í sturtu núna - en það hefur greinilega verið einhver annar. Erfitt að sjá allt í þessum gámi sem er boðið upp á hérna í Safamýri
Grindavík
73. mín
Gult spjald

Nuno Jorge Nobre Barbosa Malheiro

Þór
67. mín
InnElmar Þór Jónsson
ÚtVilhelm Ottó Biering Ottósson
Þór
67. mín
InnSigfús Fannar Gunnarsson
ÚtKristófer Kristjánsson
Grindavík
67. mín
InnDaniel Arnaud Ndi
ÚtÁrmann Ingi Finnbogason
Þór
61. mín
Gult spjald

Marc Rochester Sörensen

Brýtur á Degi Inga
Grindavík
56. mín
Þetta var skrítið

Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (stoðsending: Nuno Jorge Nobre Barbosa Malheiro)

Nuno með fyrirgjöf sem Aron Birkir virðist vera að grípa auðveldlega en svo bara missir hann boltann ákaflega klaufalega og Adam Árni og Dagur eru mættir til að pota honum inn. Sýnist Dagur hafa komið honum inn fyrir línuna fyrst
54. mín
Þórsarar í hálffæri eftir horn. Laflaus skalli sem veldur ekki teljandi vandræðum
52. mín
Allt með rólegra móti þessar fyrstu mínútur í seinni hálfleik
Grindavík
46. mín
InnChristian Bjarmi Alexandersson
ÚtMarinó Axel Helgason
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Þór
45. mín
Gult spjald

Ingimar Arnar Kristjánsson

41. mín
Gott færi hjá Grindavík. Ármann Ingi sloppinn í gegn eftir flott samspil en skotið framhjá
35. mín
Þórsarar í mjög góðu færi eftir horn. Mikill pakki þarna og ég get ekki séð hver á skotið en það fer af varnarmanni og naumlega framhjá í annað horn
32. mín
Fyrsta sneringin að svíkja Dag Inga. Kominn í geggjaða stöðu eftir fyrirgjöf en missir boltann of langt frá sér og Þórsarar hreinsa frá
30. mín
Þórsarar fá horn. Aðeins að ná áttum eftir markið. Engin hætta skapast úr horninu
Grindavík
26. mín
Gult spjald

Ármann Ingi Finnbogason

Leikurinn stopp út af meiðslum varnarmanns Grindavíkur. Jóhann Ingi nýtir tækifærið og spjaldar Ármann Inga.. Verð að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um fyrir hvað
Grindavík
19. mín
BEINT ÚR AUKASPYRNU

Einar Karl Ingvarsson

Frábært mark. Úr aukaspyrnu sem þeir fengu rétt fyrir utan teiginn. Yfir vegginn og í bláhornið
Þór
18. mín
Gult spjald

Alexander Már Þorláksson

Stoppar vænlega sókn
16. mín
Þórsarar að komast í betri stöður núna.. Kannski engin dauðafæri en eru amk hættulegri þessa stundina
11. mín
Rólegra núna eftir stórskotahríð heimamanna í byrjun. Þórsarar halda betur í boltann núna
5. mín
DAUÐAFÆRI eftir hornið
Josip með viðstöðulaust skot af markteig eftir hornið en boltinn naumlega yfir. Þvílíkur kraftur í Grindjánum í upphafi leiks
4. mín
Enn sækir Grindavík. Aftur á dagur skot sem Aron ver í horn
3. mín
Þung pressa frá heimamönnum í byrjun. Ion var sloppinn í gegn en aftur ver Aron vel
2. mín
Dagur Ingi með skot fyrir utan teig sem Aron gerir vel í að verja í horn
1. mín
Leikur hafinn
Grindavík Byrjar með knöttinn
Fyrir leik
Dramatík seinast
Það var alvöru dramatík þegar þessi lið mættust fyrir norðan í fyrri umferðinni. Grindavík komst yfir í þeim leik en lenti svo 2-1 undir og missti tvo menn af velli með rautt spjald. Grindjánar náðu hinsvegar að jafna leikinn á 90. mínútu og lokatölur 2-2
Fyrir leik
Aron á bekknum
Byrjunarliðin eru komin inn. Þar er helst að frétta að Aron Einar Gunnarsson byrjar á bekknum
Fyrir leik
Byrjar Aron?
Það verður fróðlegt að sjá hvort Aron Einar Gunnarsson byrji leikinn fyrir Þór. Hann kom inn á sem varamaður gegn Njarðvík í fyrsta deildarleik sínum á Íslandi í einhver 18 ár og gjörsamlega breytti gangi leiksins.

Mynd: Skapti Hallgrímsson/Akureyri.net

   10.08.2024 23:45
Lið og leikmaður 16. umferðar - Aron Einar með frábæra innkomu
Fyrir leik
Þór
Þórsarar eru sömuleiðis búnir að vera frekar kaldir. Náðu í jafntefli gegn Njarðvík í seinasta leik en höfðu tapað þremur í röð þar á undan.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir leik
Grindavík
Grindjánar hafa verið í vægast sagt miklu brasi seinustu vikurnar en liðið hefur tapað 5 leikjum í röð. Seinasta stig þeirra kom einmitt í 22 jafntefli gegn Þór fyrir rúmum mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir leik
Það er mikið undir hérna í kvöld. Liðin eru hlið við hlið í töflunni. Þór með 18 stig í 8. sæti og Grindjánar með einu stigi minna í 9. sætinu. Sex leikir eftir og liðin þurfa nauðsynlega 3 stig í dag ætli þau að slíta sig frá fallsvæðinu og eiga einhvern möguleika á að berjast um að komast í umspilssæti.


Staðan
1. Fjölnir - 32 stig
----------------------
2. ÍBV - 31
3. Keflavík - 27
4. Njarðvík - 26
5. ÍR - 26
----------------------
6. Afturelding - 21
7. Þróttur - 20
8. Þór - 18
9. Grindavík - 17
10. Leiknir - 16
----------------------
11. Dalvík/Reynir - 13
12. Grótta - 13

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

miðvikudagur 14. ágúst
18:00 Dalvík/Reynir-Afturelding (Dalvíkurvöllur)
18:00 ÍBV-ÍR (Hásteinsvöllur)
18:00 Grindavík-Þór (Stakkavíkurvöllur-Safamýri)
19:15 Þróttur R.-Grótta (AVIS völlurinn)
19:15 Njarðvík-Fjölnir (Rafholtsvöllurinn)
19:15 Leiknir R.-Keflavík (Domusnovavöllurinn)
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Grindavíkur og Þórs í Lengjudeildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.