Fotbolti.net
Daníel Darri Arnarsson
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
Skýjað og smá vindur
Þróttur R.
Þróttur R.
3 - 1
Grótta
Grótta
0 - 126' Kristófer MelstedViktor Steinarsson 51'1 - 1Kári Kristjánsson 81'2 - 1Liam Daði Jeffs 94'3 - 1
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Leik lokið!
Frábær sigur hjá Þrótti og mikilvægir 3 punktar.

Skýrsla og viðtöl á leiðinni, TAKK FYRIR MIG.
Grótta
94. mín
Gult spjald

Rafal Stefán Daníelsson

Þróttur R.
94. mín
Litla spilið!

Liam Daði Jeffs (stoðsending: Kostiantyn Iaroshenko)

Gróttumenn að kvarta yfir rangstöðu og hún gæti alveg hafa verið þarna en ekkert dæmt. Frábærlega útfærð aukaspyrna sem endar með að Liam dettur í gegn og klárar þetta í autt mark! 3-1 staðreynd.
Grótta
93. mín
Gult spjald

Grímur Ingi Jakobsson

92. mín
LIAM DAÐI
HVERNIG FÓR RAFA AÐ ÞESSU! Aron leggur hann í gegn á Liam sem er bara 1 á 1 gegn Rafa en Rafa étur hann bara vá!
Grótta
89. mín
Gult spjald

Valdimar Daði Sævarsson

Þróttur R.
87. mín
Gult spjald

Kári Kristjánsson

85. mín
Grótta fær horn...dramatík í þessu?

Kristófer Orri situr hann á fjær þar liggur Ísak Daði sem á síðan hörkuskot framhjá!
Þróttur R.
84. mín
InnEmil Skúli Einarsson
ÚtBrynjar Gautur Harðarson
Þróttur R.
84. mín
InnKostiantyn Iaroshenko
ÚtVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Grótta
83. mín
InnHilmar Andrew McShane
ÚtAlex Bergmann Arnarsson
Þróttur R.
81. mín
VÁÁÁ ÞEIR ERU KOMNIR YFIR!

Kári Kristjánsson (stoðsending: Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson)

Þróttarar eru komnir yfir, Þróttarar vinna boltan ofarlega á vellinum og sýndist þetta vera Vilhjálmur Kaldal sem svona missir boltan til Kára sem á alvöru sprett og situr hann síðan bara stöngin inn! Alvöru mark!!!
79. mín
Sláinnnn!!!!
Þróttur fær horn...

Hlynur með hörkuskalla í slánna!
Grótta
76. mín
InnValdimar Daði Sævarsson
ÚtAxel Sigurðarson
Grótta
76. mín
InnKristján Oddur Bergm. Haagensen
ÚtTómas Orri Róbertsson
74. mín
Vilhjálmur Kaldal með skemmtilega takta á kantinum og fiskar horn...

Hornið er tekið og sýnist þetta vera Patrik Orri sem heldur um hausinn og leikurinn er stoppaður.
73. mín
Grótta fær horn...

Þórhallur handsamar þennan og kastar bara Liam í gegn og Liam rúllar honum á Aron sem neglir í varnarmann og Þróttur fær horn hinum megin.

Ekkert verður úr henni.
Þróttur R.
71. mín
InnLiam Daði Jeffs
ÚtSigurður Steinar Björnsson
Steinar búinn að vera drullu góður hér í dag en hefur lokið leik og inn fyrir hann kemur Liam Daði Jeffs.
70. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað...
Kári tekur hana og situr hann framhjá.
69. mín
Steinar gerir vel og vinnur horn fyrir Þrótt..

Rafa slær þetta út á Eirík sem á slaka fyrirgjöf sem Grótta hreinsar.
67. mín
Sýnist Þróttarar vera undirbúa skiptingu.

Liam Daði incoming.
65. mín
Þróttur fær horn... Kári tekur

Rafa handsamar þetta.
60. mín
Unnar steinn með frábæran bolta í gegn á Aron Snæ en Alex gerir frábærlega varnarlega og vinnur hann. mikilvægur varnarleikur þarna hjá Alex þar sem Aron var að sleppa í gegn.
Grótta
56. mín
Gult spjald

Rasmus Steenberg Christiansen

Þróttur R.
51. mín
Heimamenn að jafna!!

Viktor Steinarsson

Virkilega vel gert hjá Steinari sem keyrir bara endalínuna og situr hann fyrir á Vilhjálm Kaldal sem skýtur en Alex ver á línu en Þar er Viktor sem neglir honum í netið og skorar sitt fyrsta meistaraflokksmark!
48. mín
Sýnist þetta byrja eins og fyrri hálfleikurinn Gróttumenn bakka og Þróttarar að reyna finna glufur á vörn Gróttu.
46. mín
Engar breytingar í hálfleik.
45. mín
Þróttarar fá 2 hornspyrnur sem eru hreinsaðar í burt og verður ekkert úr og Arnar flautar hér til hálfleiks.

Skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki tökum korters pásu.

43. mín
STEIIINNNAAR!
VÁ litla skotið, þessi var að fara í skeitina en Rafa er bara mættur og ver hann vá! Rafa eru að halda Gróttumönnum inn í þessu.
39. mín
Þróttur fær horn...

ekkert verður úr því.
38. mín
Sýndist þetta vera Kristófer Orri með boltan á Pétur sem skallar hann rétt framhjá stönginni, Grótta er að vakna.
35. mín
Þetta mark er bara búið að slökkva svolítið á Þrótturum og þeir eru bara búnir að hleypa Gróttu inn í þetta eftir lélega byrjun.
32. mín
Frábærlega vel gert Hjá Aroni Snæ sem situr hann á Kára sem er enn og aftur aleinn á d-boganum en situr hann framhjá.
30. mín
Meðan við gang leiksins er ótrúlegt að Gróttumenn séu komnir yfir, wake up call á Gróttu?
Grótta
26. mín
GRÓTTA komnir yfir!

Kristófer Melsted (stoðsending: Kristófer Orri Pétursson )

Gróttumenn sem hafa bara varla verið með sóknarlega hérna eru komnir yfir!!! Kristófer tekur hornspyrnu sem var alltof stutt í fangið á Þórhall sem er með hönd á boltanum en ekkert dæmt og hreinsað síðan aftur til Kristófer og hann hendir honum fyrir þar er Kristófer Melsted sem neglir honum í varnarmann Þróttar og erfitt fyrir Þórhall að sjá hann og í netið!!! 1-0
25. mín
Grótta fær hornspyrnu.

Alex Bergmann situr hann í varnarmann Þróttar og þeir fá aðra hornspyrnu...

21. mín
Mætti segja að það væri mark í loftinu hjá heimamönnum.
20. mín
ÚFFF
Hnoð inná teig Gróttu sem endar með að Eiríkur fyrirliði Þróttar situr hann út á Kára sem á hörkuskot sem Rafa ver frábærlega, litla varslan maður!
18. mín
Fyrsta sókn Gróttu kominn á blað, ísak gerir svakalega vel og labbar framhjá Kristófer og situr hann til vinstri á Tómas Orra sem situr hann beint á Þórhall í markinu. Fín sókn hjá Gróttu.
12. mín
Frábær sending!
Sýndist þetta fyrirliðin sjálfur sem kemur með sturlaðan bolta og brýtur upp all vörn Gróttumanna og sendir Vilhjálm Kaldal í gegn sem situr hann rétt framhjá hefði alveg getað komið heimamönnum þarna yfir.
10. mín
Gróttumenn eru þéttir til baka og verður erfitt fyrir Þróttara að brjóta þá upp.
6. mín
Þróttarar að byrja svakalega vel hérna, halda í boltan og eru bara leyfi mér að segja að yfirspila Gróttu hérna fyrstu mínútur leiksins.
2. mín
Þróttarar byrja svakalega vel hérna flott spil á milli Arons og Kára upp vinstri kantinn sem endar með hörkuskoti Kára beint á Rafa sem ver hann upp í loftið og grípur hann síðan, Frábær byrjun hérna hjá Þrótti.
1. mín
Arnar flautar þetta á, vonandi fáum við markaveislu hérna á Avis takk.
Fyrir leik
Liðin labba inná og leikurinn fer að hefjast.
Fyrir leik
Gaman að sjá fyrrum Venezia spilara ísak Daða sem er að byrja hérna hjá Gróttu í kvöld en hann byrjaði tímabilið með Þrótti og var kallaður til baka úr láni af Víkingum og var síðan lánaður aftur en þá bara í Gróttu.
Fyrir leik
Grótta missti lykilmann á gluggadegi
Grótta missti lykilmann á lokadegi félagaskiptagluggans í gær. Tarek Shihab gekk þá í raðir HK. Shihab er 23 ára gamall miðjumaður sem spilaði með akademíu Brighton á Englandi, en hann gekk í raðir Gróttu fyrir tveimur árum.

Hann lék 31 leik í deild- og bikar með Gróttu á tveimur tímabilum sínum þar en hefur nú skipt yfir í HK.

Fyrir leik
Brazell var rekinn í vikunni
Chris Brazell var rekinn úr starfi þjálfara Gróttu í vikunni og ekki hefur verið tekin ákvörðun um hver tekur við af honum.

Aðstoðarþjálfarinn, Dom Ankers, og markmannsþjálfari meistaraflokks, Simon Toftegaard Hansen, eru áfram starfsmenn Gróttu og hafa stýrt æfingum í vikunni. Búast má við að þeir stýri liðinu í kvöld.

   12.08.2024 13:30
„Ákvörðun sem á sér mjög skamman aðdraganda"
Fyrir leik
Tveir Gróttumenn í banni
Grótta verður án tveggja leikmanna í dag sem taka út leikbann, þeir Arnar Þór Helgason og Aron Bjarki Jósepsson og munar um minna!
Aron Bjarki tekur út leikbann. | Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Fyrir leik
Staðan í deildinni
Heimamenn í Þrótti eru í 7. sæti deildarinnar með 20 stig en þeim hefur ekki tekist að landa sigri í síðustu þremur leikjum, eitt tap og tvö jafntefli.

Gestirnir í Gróttu sitja í botnsæti deildarinnar með 13 stig og þar á bæ hefur ekkert gengið né rekið í sumar.

Staðan
1. Fjölnir - 32 stig
----------------------
2. ÍBV - 31
3. Keflavík - 27
4. Njarðvík - 26
5. ÍR - 26
----------------------
6. Afturelding - 21
7. Þróttur - 20
8. Þór - 18
9. Grindavík - 17
10. Leiknir - 16
----------------------
11. Dalvík/Reynir - 13
12. Grótta - 13
Fyrir leik
Dómarateymið
Arnar Ingi Ingvarsson dæmir leikinn, honum til aðstoðar á línunum eru þeir Bergur Daði Ágústsson og Nour Natan Ninir. Gylfi Þór Orrason er eftirlitsmaður KSÍ og fylgist með störfum dómara og umgjörð leiksins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikdagur í Laugardalnum
Góðan daginn, verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þróttar og Gróttu í Lengjudeild karla.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 á Avis vellinum í Laugardalnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

miðvikudagur 14. ágúst
18:00 Dalvík/Reynir-Afturelding (Dalvíkurvöllur)
18:00 ÍBV-ÍR (Hásteinsvöllur)
18:00 Grindavík-Þór (Stakkavíkurvöllur-Safamýri)
19:15 Þróttur R.-Grótta (AVIS völlurinn)
19:15 Njarðvík-Fjölnir (Rafholtsvöllurinn)
19:15 Leiknir R.-Keflavík (Domusnovavöllurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.