Fotbolti.net
Þorsteinn Haukur Harðarson
Þorsteinn Haukur Harðarson
Sambandsdeild UEFA - Umspil
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
5 - 0
Santa Coloma
Santa Coloma
Nikolaj Hansen 29'1 - 045' Christian GarciaAron Elís Þrándarson (f) (misnotað víti) 45'Valdimar Þór Ingimundarson (víti) 52'2 - 0Valdimar Þór Ingimundarson (misnotað víti) 64'Gunnar Vatnhamar 66'3 - 0Valdimar Þór Ingimundarson 75'4 - 0Nikolaj Hansen 90'5 - 0
Dómari: Ante Culina (Króatía)
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Dómarinn flautar af

Víkingar komnir með annan fótinn í evrópu
Víkingur R.
90. mín
MAAAARK!

Nikolaj Hansen

90+5


Þetta er Mark.

Eftir VAR skoðun er markið gott og gilt
90. mín
90+4

90+4

Nikolaj Hansen kemur boltanum í netið en aðstoðardómarinn búinn að flagga. VAR er að skoða
90. mín
90+2

Valdimar nálægt því að fullkomna þrennuna eftir sendingu frá Óskari en Alex Ruiz ver í markinu. Þá nær Helgi Guðjóns að pota í boltann en Alex ver aftur
90. mín
Fimm mínútum bætt við
89. mín
Víkingar fengu sína tólftu hornspyrnu rétt í þessu. Ekkert kom úr henni
87. mín
NIKO
Nikolaj Hansen reynir bakfallsspyrnu eftir horn.. Ekki galin tilraun en endar í fanginu á Alex Ruiz
Víkingur R.
83. mín
InnÓskar Örn Hauksson
ÚtErlingur Agnarsson
Afmælisbarnið kemur inn á
Óskar Örn Hauksson kemur inn á. Hann á einmitt 40 ára afmæli í dag. Fær söng úr stúkunni og við óskum honum til hamingju með daginn
Víkingur R.
83. mín
InnHelgi Guðjónsson
ÚtAri Sigurpálsson
82. mín
Á meðan ég er að skrifa um meiðsli og skiptingar á Valdimar Þór skot í slá. Nálægt því að skora fimmta markið
Santa Coloma
82. mín
InnFranco de Jesús
ÚtBilal El Bakkali
Nikolaj Hansen sest í teignum og virðist hafa lokið leik
Santa Coloma
80. mín
InnFranco de Jesús
ÚtBilal El Bakkali
Víkingur R.
75. mín
GAME OVER

Valdimar Þór Ingimundarson (stoðsending: Aron Elís Þrándarson (f))

Aron með geggjaða sendingu á fjær þar sem Valdimar mætir og setur boltann í netið
73. mín
Enn skapast mikil hætta eftir hornspyrnur heimamanna. Nálægt því að skora fjórða markið
Víkingur R.
70. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtGísli Gottskálk Þórðarson
heimamenn gera aðra skiptingu í leiðinni
Víkingur R.
70. mín
InnTarik Ibrahimagic
ÚtDavíð Örn Atlason
Staðfest
69. mín
Davíð Atlason, sem kom inn á fyrir 9 mínútum síðan er sestur í grasið og virðist hafa lokið leik.
68. mín
Víkingar nálægt því að bæta við fjórða markinu eftir horn. Eftir barning í teignum nær Ruiz í markinu að handsama boltann
Santa Coloma
67. mín
InnJorge Bolívar
ÚtJoaquinete
Santa Coloma
67. mín
InnAlexandre Martínez
ÚtYoussef El Ghzaoui
Víkingur R.
66. mín
MAAAARK!

Gunnar Vatnhamar (stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson)

Hornspyrna sem fer í gegnum allan pakkann. Þar bíður Gunnar á fjær og skorar í autt markið
Víkingur R.
64. mín
HÁTT YFIR

Valdimar Þór Ingimundarson

Önnur vítaspyrnan sem þeir klikka á í kvöld. Verður vonandi ekki dýrkeypt
62. mín
Hendi eftir hornspyrnu. Erfitt að sjá hver fær hann í höndina. líklega El Ghzaoui
62. mín
ÞRIÐJA VÍTI VÍKINGA
Víkingur R.
60. mín
InnDavíð Örn Atlason
ÚtJón Guðni Fjóluson
Fyrsta skipting heimamanna
56. mín
Mikill gæðamunur
Ég er bara ekki að sjá hvernig Coloma liðið ætti að koma til baka í þessu einvígi
Víkingur R.
52. mín
Mark úr víti!

Valdimar Þór Ingimundarson

Skorar af miklu öryggi
Santa Coloma
50. mín
Gult spjald

Jesus Rubio

50. mín
VÍTI
Aftur fá víkingar víti.. Eftir stórsókn þar sem það er hreint ótrúlegt að Nikolaj hafi ekki komið boltanum inn fær varnarmaður gestaliðsins boltann í höndina
46. mín
Leikur hafinn
Santa Coloma
46. mín
InnEric Ruiz
ÚtVirgili
Santa Coloma
46. mín
InnJesus Rubio
ÚtMiguel Lopez
45. mín
Hálfleikur
heimamenn leiða í hálfleik
45. mín
d45+2

Eftir vítavörsluna eiga Víkingar horn. Aron Elís skallar að marki en það er bjargað á línu. Aron vill meina að boltinn hafi verið kominn inn en dómarinn ekki sammála því
Víkingur R.
45. mín
NEI!

Aron Elís Þrándarson (f)

Aron Elís lætur Alex Ruiz verja frá sér
Santa Coloma
45. mín
VAR breytir spjaldinu í rautt!

Christian Garcia

Fékk fyrst gult en eftir VAR skoðun rautt. Reyndi ekki við boltann þegar hann braut og það er rautt.
42. mín
VAR að skoða þetta. Spurning hvort Nikolaj hafi verið rangstæður
42. mín
Víkingar fá víti
Nikolaj að sleppa í gegn. Brotið á honum og dómarinn bendir á punktinn
39. mín
Færahrina hjá Víkingum
Fyrst er Valdimar kominn í ákjósanlega stöðu til að skjóta en snertingin svíkur hann. Boltinn berst á Ara sem á skot framhjá
38. mín
Eftir að hafa séð endursýningu er ég viss um að dómarinn tók rétta ákvörðun. Aldrei víti
37. mín
Spurning um víti
Valdimar Þór fellur inn í teig og vill víti. Dómarinn ekki á sama máli. Virðist ekki eiga að skoða sérstaklega í VAR og Víkingar fá víti sem ekkert verður úr
36. mín
Aron Elís með skallatilraun eftir horn en ekki mikil hætta á ferð
33. mín
Adrian Da Cunha, vinstri bakvörður Coloma, er ekki að eignast neina vini í stúkunni í kvöld. Svolítið í því að henda sér í grasið og vera með leiðindi. Fær baul úr stúkunni
Víkingur R.
29. mín
Ísinn brotinn

Nikolaj Hansen (stoðsending: Ari Sigurpálsson)

Góður samleikur Jóns Guðna og Ara endar með því að Ari á sendingu fyrir teiginn. Þar er Nikolaj Hansen mættur og potar boltanum í netið
28. mín
Youssef El Ghzaoui með skottilraun fyrir utan teig en það boltinn fer yfir markið.
27. mín
Leikurinn fer eiginlega bara fram á vallarhelmingi gestaliðsins. Víkingar umtalsvert líklegri til afreka hér í kvöld
21. mín
Gestirnir skapa hættu í fyrsta sinn.

Keyra hratt upp völlinn og eru þrír á móti þremur. Fyrirgjöf fyrir markið en El Bakkali, sóknarmaður Coloma nær ekki til boltans
18. mín
Miðað við þessar fyrstu átján mínútur er ég ekki að sjá hvernig Santa Coloma ætlar að vinna þetta einvígi. Ekki sýnt mikil gæði hingað til. Er vonandi ekki að jinxa neitt
16. mín
Nikolaj fellur við í teignum eftir fyrirgjöf. Einhverjir í stúkunni biðja um víti en ég held að það sé óhætt að segja að það hefði verið strangur dómur
13. mín
Aftur færi
Ari Sigurpáls með skot eftir flotta sókn en Alex Ruiz í marki Coloma ver vel í horn
10. mín
Valdimar í færi
Fær sendingu innfyrir frá Jóni Guðna, fer framhjá varnarmanni og á skot sem fer af leikmanni gestanna og í horn
8. mín
Gestirnir fá aukaspyrnu á álitlegum stað eftir tæklingu frá Aroni Elís. Fannst þetta bara góð tækling. Ekkert verður úr aukaspyrnunni
4. mín
Rólegar upphafsmínútur. Víkingar aðeins meira með boltann
1. mín
Leikur hafinn
Víkingar byrja með boltann.

KOMASVO
Fyrir leik
Leikmaður í íslenska boltanum fyrrum leikmaður UE Santa Coloma
Simon Colina, núverandi leikmaður Víkings Ó. lék með þessu liði árið 2022. Spilaði 8 leiki
Fyrir leik
Eins og flestir vita fer seinni leikurinn fram ytra eftir viku. Degi síðar, þann 30. ágúst verður síðan dregið í þessa nýju deildarkeppni og þá mun koma í ljós hvaða lið mætast innbyrðis. Við vonum auðvitað innilega að Víkingar verði í pottinum þegar dregið verður.

En fyrsta skref er þá að vinna í dag
Fyrir leik
Komin spenna í mann
Jæja. Það er hálftími í leikinn.

Fólk er farið að mæta í stúkuna og liðin eru að hita upp
Fyrir leik
Uppstilling Víkinga eins og hún er sett fram á UEFA
Mynd: Sverrir Örn Einarsson

Fyrir leik
Arnar Gunnlaugs, þjálfari Víkings:
„Ég held að við höfum verið heppnir með drátt á þessu stigi keppninnar. Ef einhver hefði sagt við mig að við færum í úrslitaleiki við lið frá Andorru, þá hefði ég örugglega tekið því með fullri virðingu. Ég átti ekki von á að lið frá Andorra myndi komast svona langt en svo ferðu að horfa á þetta lið og þá sérðu ýmislegt í þeirra leik sem gerir það að verkum að þeir áttu skilið að komast svona langt. Við berum mikla virðingu fyrir því sem þeir hafa gert og mætum til leiks með 100 prósent einbeitingu."

   21.08.2024 15:42
Arnar Gunnlaugs: Það blindar aðeins fótboltaáhugamanninn
Fyrir leik
Nikolaj Hansen, fyrirliði Víkings:
„Þetta er risastór leikur fyrir félagið, fyrir leikmennina og stuðningsmennina. Við ætlum að standa okkur vel. Undirbúningurinn hefur verið mjög góður og við höfum horft á mikið af myndböndum eins og við gerum alltaf. Núna er það undir leikmönnunum komið að vera 100 prósent og skila góðri frammistöðu."

   21.08.2024 16:30
„Klúðraði mikilvægri vítaspyrnu en kannski var það gott eftir á"
Fyrir leik
Íkornarnir mæta í Víkina
UE Santa Coloma, fullu nafni Unió Esportiva Santa Coloma, er ekki sama lið og FC Santa Coloma sem hefur einnig mætt íslenskum liðum áður.

Gælunafn UE Santa Coloma er Esquirols, eða íkornarnir enda krökkt af þeirri dýrategund í kringum bæinn þeirra. Á lokaleik hvers tímabils mætir fjöldi stuðningsmanna liðsins í íkornabúning.

Félagið var stofnað 23. september 1986 en fótboltalið var endurstofnað árið 2006 eftir að hafa legið lengi í dvala.

Þeir unnu sinn fyrsta Evrópuleik í síðasta mánuði þegar þeir unnu Ballkani frá Kosovo í forkeppni Meistaradeildarinnar. Þeir eru fyrsta liðið frá Andorra sem kemst í umspilsleik í UEFA keppni þegar þeir mæta Víkingum í dag.

   21.08.2024 13:44
Mjög sýnd veiði en tvær staðreyndir sem gætu hrætt Víkinga
Fyrir leik
Dómarateymið
Dómarateymið í dag kemur frá Króatíu en um er að ræða sex manna teymi með VAR dómurunum tveimur.

Dómarinn heitir Ante Culina. Hann er 31 árs og hefur dæmt alþjóðlega leiki síðan 2022.

Aðstoðarmenn hans á línunum eru þeir Luka Pusic og Dario Kolarevic. Skiltadómarinn er Ante Terzic.

VAR dómarinn er Fran Jovic og aðstoðarmaður hans er Dario Bel.

Fyrir leik
Ekki lengur riðlakeppni
Ef Víkingur kemst í Sambandsdeildina munu Íslandsmeistararnir ekki fara í riðlakeppni heldur deildarkeppni. Búið er að breyta fyrirkomulaginu í Evrópukeppnunum.

Búið er að leggja niður riðlakeppnina og í stað hennar er komin sérstök deildarkeppni. Gjörbreyting á fyrirkomulaginu.

Í hverri Evrópukeppni eru 36 lið sem komast í lokakeppnina og raðast á eina deildartöflu, þrjú stig fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli eins og við þekkjum, og af þessum 36 liðum eru 24 sem fara í útsláttarkeppni.

Í Sambandsdeildinni keppir hvert lið sex leiki á móti sex mismunandi andstæðingum (í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni eru leikirnir átta). Hvert lið fær þrjá heimaleiki og þrjá útileiki.

Fyrir leik
Leikdagur í Víkinni
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Víkings og Santa Coloma.

Þetta er fyrri umspilsleikur liðanna um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:00 á Víkingsvelli í Fossvoginum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.