Fotbolti.net
Hilmar Jökull Stefánsson
Hilmar Jökull Stefánsson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
1 - 2
Þór
Þór
0 - 133' Sverrir Páll Ingason0 - 252' Rafael Alexandre Romao VictorAxel Sigurðarson 69'1 - 2
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Leik lokið!
90. mín
Fjórar í uppbót
Fjórar mínútur í viðbót af þessari veislu!
88. mín
Rólegt
Rólegt yfir leiknum þessa stundina. Virðist eins og þessi lið hafi að engu að keppa. Allavega enginn að flýta sér.
Grótta
82. mín
InnÍsak Daði Ívarsson
ÚtAxel Sigurðarson
Þór
79. mín
InnVilhelm Ottó Biering Ottósson
ÚtAron Kristófer Lárusson
Aron tæpur
Aron búinn að vera tæpur síðustu 10, væntanlega verið að hlífa honum.
78. mín
2009 módel á vellinum
Fyrsti leikur Birgis í bikar eða deildarkeppni. Ungur og efnilegur.
Grótta
76. mín
InnBirgir Davíðsson Scheving
ÚtGrímur Ingi Jakobsson
Grótta
76. mín
InnTómas Orri Róbertsson
ÚtEirik Soleim Brennhaugen
Grótta
76. mín
InnRagnar Björn Bragason
ÚtAlex Bergmann Arnarsson
72. mín
Skot frá Ingimar í hliðarnetið eftir að Sverrir komst inn á teiginn.
Grótta
69. mín
Sturlað spil

Axel Sigurðarson (stoðsending: Gabríel Hrannar Eyjólfsson)

Glæsilegt spil hjá Gróttumönnum sem endar á frábærri sendingu Gabríels inn á Axel sem skorar vel.
67. mín
Þór í sókn
Ingimar keyrir upp vinstri kantinn, köttar inn á hægri og tekur lélegt skot sem fer í menn á teignum og svo í hendur Rafal.
Þór
65. mín
InnBjarki Þór Viðarsson
ÚtRagnar Óli Ragnarsson
Fjórfjöld skipting
Siggi Höskulds gerir fjórfalda breytingu.
Þór
65. mín
InnMarc Rochester Sörensen
ÚtAron Ingi Magnússon
Fjórfjöld skipting
Siggi Höskulds gerir fjórfalda breytingu.
Þór
65. mín
InnAlexander Már Þorláksson
ÚtRafael Alexandre Romao Victor
Fjórfjöld skipting
Siggi Höskulds gerir fjórfalda breytingu.
Þór
65. mín
InnÁrni Elvar Árnason
ÚtEinar Freyr Halldórsson
Fjórfjöld skipting
Siggi Höskulds gerir fjórfalda breytingu.
Grótta
65. mín
InnHilmar Andrew McShane
ÚtKristján Oddur Bergm. Haagensen
64. mín
Kristó skýtur yfir
Bara slöpp aukaspyrna og skiptingar fyrir bæði lið.
Þór
63. mín
Auka rétt fyrir utan teig

Birgir Ómar Hlynsson

62. mín
Grótt sækir og sækir
Grótta
56. mín
Óþarfa brot

Gabríel Hrannar Eyjólfsson

Þór
52. mín
Þetta mark …

Rafael Alexandre Romao Victor (stoðsending: Ýmir Már Geirsson)

Rosalegt einstaklingsframtak hjá Rafael Victor. Fyrirgjöf frá hægri sem skoppar inn á teignum en einhvern vegin nær Rafael stjórn á honum í loftinu, setur hann upp og klippir hann sjálfur inn. Galið mark!!
50. mín
Svakalegur börger
Fékk hérna mjög djúsí hamborgara hjá gestgjöfum dagsins. Verð bara að hrósa honum, algjör 7,5/10.
48. mín
Skot framhjá
Kristján Oddur, 17 ára miðjumaður Gróttu, á skot sem að hittir ekki á markið.
47. mín
Hálfleikur
Fáum okkur kaffi
Gestirnir leiða 0-1 í hálfleik.
46. mín
Aftur af stað
Grótta sparkar þessum seinni hálfleik í gang!
43. mín
Skot á mark
Aron Ingi með skot á mark Gróttu en það var í raun beint á Rafal sem þurfti ekki að hafa sig neitt við til að verja það.
41. mín
Aron Bjarki skýtur framhjá
Aron Birkir kemur út í teiginn til að kýla aukaspyrnu út en hann hittir boltann illa, sem dettur fyrir fætur Arons Bjarka en Aron hittir boltann eiginlega verr heldur en nafni sinn og setur boltann framhjá á meðan að Aron Birkir liggur.
39. mín
Aron Kristófer sestur
Aron þarf aðhlynningu. Búnar að vera skrýtnar síðustu mínútur. Rangir dómar sem eru að pirra menn mikið.
Þór
33. mín
Auðvelt

Sverrir Páll Ingason (stoðsending: Aron Kristófer Lárusson )

Þórsarar óðu upp vinstri kantinn við enga mótspyrnu Gróttu. Aron fékk að flengja boltann inn í og á nær var mættur Sverrir til að pota boltanum inn.
29. mín
SKOT Í SLÁ
Birkir Heimis nær skoti á markið sem Rafal ver í slána. Loksins eitthvað líf í þessu.
Grótta
27. mín
Rangur dómur

Grímur Ingi Jakobsson

Kristján Oddur átti að fá þetta fyrir að stoppa skyndisókn.
25. mín
Pétur Theodór pabbi
Pétur Theodór Árnason er ekki í leikmannahópi Gróttu í dag. Hann var að eignast sitt fyrsta barn í vikunni. Óskum við hjá Fótbolta.net honum innilega til hamingju með það.
22. mín
Aukaspyrna sem fer í horn
Kristófer Orri með auka sem Þórsarar skalla í horn en ekkert verður úr horninu
19. mín
Horn fyrir Þór
Þór ná að koma boltanum að marki en vel hreinsað hjá Gróttu í tvígang.
Grótta
17. mín
Stórfurðulegur dómur

Kristófer Melsted

Kristófer óskar eftir að fá að skipta um bolta og Aðalbjörn spjaldar hann, þrátt fyrir að vita nákvæmlega hvað Kristó var að gera. Taktlaust.
15. mín
Skot beint á markið
Grímur með skot rétt fyrir utan teig en það fer beint á rammann endar auðveldlega í höndum Arons í marki Þórs.
13. mín
Flott spil hja Gróttu
Ná samt ekki skoti á markið eftir margar sendingar í kringum teiginn
8. mín
Gabríel með loftbolta á markið
Aldrei hætta og Aron Birkir grípur þetta auðveldlega.
5. mín
Rólega af stað
Bæði lið aðeins að þreifa fyrir sér og augljóst á spilamennsku beggja lið að þessi leikur hefur litla þýðingu.
1. mín
Leikur hafinn
Í gang með þetta
Heimamenn í Gróttu sækja í átt að vitanum á meðan að Þórsarar sækja í átt að sundlaug Seltjarnarness.
Fyrir leik
Leikmenn og dómarar ganga inn á völlinn
Þetta fer að bresta á.
Fyrir leik
Ennþá laus sæti!
Ef það er einhver þarna úti sem er að lesa þetta og er að spá hvort hann eigi að skella sér á völlinn, þá get ég lofað viðkomandi því, að það verða laus sæti. Sé allavega 6 sæti sem eru ótekin. Allavega 6. Allir á völlinn!
Fyrir leik
Grótta fallið og Þór fastir
Eins og sagði í síðustu færslu þá er þessi leikur ekki upp á neitt nema stoltið. Grótta féll í síðustu umferð, þegar liðinu mistókst að sigra ÍR og á sama tíma vann Þór Dalvík/Reyni og tryggði þar með veru sína í Lengjudeildinni að ári.
Fyrir leik
Leikur upp á ekkert
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi, þar sem Grótta og Þór eigast við í lokaumferð Lengjudeildarinnar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.