Fotbolti.net
Besta deildin
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Kópavogsvöllur
4 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Heiða Ragney Viðarsdóttir 10'1 - 0Agla María Albertsdóttir (víti) 17'2 - 0Agla María Albertsdóttir 38'3 - 0Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 80'4 - 0
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson

SKÝRSLAN: Breiðablik er alltaf Breiðablik á Kópavogsvelli

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn byrjaði frekar rólega en þegar Breiðablik stúlkur kveiktu á sér þá komu þær inn þremur mörkum og gerðu í raun bara útum leikinn í fyrri hálfleik. Víkingar reyndu og reyndu í þeim síðari en ekkert gerðist og Breiðablik kláraði leikinn endanlega undir lok leiksins.

Bestu leikmenn

1. Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)

Fyrirliðin var frábær í dag. Var mikið í boltanum og það skapaðist alltaf hættur þegar hún var á boltanum. Agla skoraði eitt og lagði upp tvö í dag.

2. Birta Georgsdóttir (Breiðablik)

Birta annan leikinn í röð var frábær og öflug sóknarlega hjá Blikum í kvöld. Birta skoraði eitt og lagði upp fjórða mark Blika.

Atvikið

Markið sem kveikti á Blikum. Agla tók hornspyrnu frá hægri inn á teiginn og Heiða Ragney setti boltnan í netið eftir mikin darraðadans.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik eru áfram á toppi deildarinnar og er liðið komið með 10.stig. Víkingar eru áfram í 6.sætinu með þrjú stig.

Vondur dagur

Sóknarleikur Víkinga - Voru að koma sér í fínar stöður en náðu ekki að klára þær með marki.

Dómarinn - 9

Brynjar Þór og hans teymi voru frábær í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.