Palace opið fyrir því að selja enska tvíeykið - Real Madrid vill að Man Utd nýti endurkaupsrétt sinn á Alvaro - Vardy orðaður við Leeds
Þór/KA
0
3
FH
0-1 Valgerður Ósk Valsdóttir '22
0-2 Berglind Freyja Hlynsdóttir '27
0-3 Elísa Lana Sigurjónsdóttir '38
03.05.2025  -  14:30
Boginn
Besta-deild kvenna
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Maður leiksins: Aldís Guðlaugsdóttir
Byrjunarlið:
20. Jessica Grace Berlin (m)
3. Kolfinna Eik Elínardóttir ('46)
8. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('75)
10. Sandra María Jessen (f)
13. Sonja Björg Sigurðardóttir ('75)
14. Margrét Árnadóttir
18. Bríet Jóhannsdóttir
19. Agnes Birta Stefánsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir ('75)
24. Hulda Björg Hannesdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
2. Angela Mary Helgadóttir
4. Ellie Rose Moreno ('75)
6. Hildur Anna Birgisdóttir ('75)
7. Amalía Árnadóttir ('75)
11. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir
15. Eva S. Dolina-Sokolowska
17. Emelía Ósk Kruger
21. Henríetta Ágústsdóttir ('46)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þ)
Steingerður Snorradóttir
Krista Dís Kristinsdóttir
Iðunn Elfa Bolladóttir
Sigurbjörn Bjarnason
Aron Birkir Stefánsson
Jóhann Hilmar Hreiðarsson
Eva Rut Ásþórsdóttir

Gul spjöld:
Margrét Árnadóttir ('95)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Búið Leikurinn fjaraði út og endar 0 - 3 fyrir FH
95. mín Gult spjald: Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
Hrinti varnarmanni
90. mín
höfuðmeiðsl Leikur stopp vegna höfuðmeiðsla Söndru Maríu en hún jafnar sig.
89. mín
Þung sókn Þór/KA sækir stíft að marki FH þessar mínútur og heldur boltanum en nær ekki að skapa neitt.
85. mín
Inn:Hildur Þóra Hákonardóttir (FH) Út:Birna Kristín Björnsdóttir (FH)
Tvöföld skipting hjá FH
85. mín
Inn:Hrönn Haraldsdóttir (FH) Út:Thelma Karen Pálmadóttir (FH)
Tvöföld skipting hjá FH
84. mín
hálffæri FH sækri hratt og Maya fær boltann utan teigs en skotið laust sem Jessica á ekki í neinum vandræðum með.
82. mín
Hálffæri Henríetta nær fyrirgjöf frá vinstri og Sandra nær að setja höfuðið í boltann en framhjá.
80. mín
Góð sókn Þór/KA Þór/KA kemst upp vinstra megin og láta boltann ganga framan við vítateig FH uns Margrét fær boltann í skotfæri en hittir ekki rammann.
76. mín Gult spjald: Elísa Lana Sigurjónsdóttir (FH)
Peysutog
75. mín
Inn:Amalía Árnadóttir (Þór/KA) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
þreföld skipting Þór/KA setur inn ferska fætur fyrir lokamínúturnar.
75. mín
Inn:Hildur Anna Birgisdóttir (Þór/KA) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
þreföld skipting Þór/KA setur inn ferska fætur fyrir lokamínúturnar.
75. mín
Inn:Ellie Rose Moreno (Þór/KA) Út:Sonja Björg Sigurðardóttir (Þór/KA)
þreföld skipting Þór/KA setur inn ferska fætur fyrir lokamínúturnar.
73. mín
Horn Eftir horn hægra megin skapast hætta við FH markið á fjær en bjargað í horn. Upp úr því horni fær Hulda ósk skot yfir
71. mín
Skyndisókn FH brýst upp hratt sem endar með skoti frá Maya en Jessica ver í horn.
70. mín
Inn:Harpa Helgadóttir (FH) Út:Berglind Freyja Hlynsdóttir (FH)
Skipting FH
69. mín
Fyrirgjöf Karen sendir út á hægri kant á Huldu sem nær ekki að koma fyrirgjöfinni framhjá Aldísi í markinu. Þarna voru komnar tvær, þrjár sem vildu fá betri fyrirgjöf.
68. mín
Skot Þór/KA í góðri sókn sem endar með skoti frá Söndru yfir markið
65. mín
Gott skot Eftir þunga sókn Þór/KA nær FH að létta pressunni og komast upp völlinn. Thelma nær góðu skoti sem Jessica blakar yfir markið.
63. mín
Aukaspyrna Aukaspyrna rétt utan teigs vinstra megin sem Karen tekur og skýtur vel yfir markið.
62. mín
Fyrirgjöf Sandra kemst upp vinstra megin og nær sendingu á nærstöngina en engin er mætt. Þór/KA vinnur strax boltann aftur og aftur fær Sandra boltann vinstra megin og brotið á henni þar.
62. mín
Inn:Hildur Katrín Snorradóttir (FH) Út:Valgerður Ósk Valsdóttir (FH)
FH gerir skiptingu
61. mín
Dauðafæri Sonja fær sendingu inn í teig, alveg við markteiginn og leggur boltann snyrtilega fyrir Margréti sem nær góðu skoti en beint á Aldísi. Þarna hefði hún átt að gera betur.
57. mín
Skot Elísa er óhrædd við að skjóta, nú af löngu færi en framhjá.
55. mín
Víti? Varnarmaður krækir í fót Margrétar sem er að reyna að leggja boltann fyrir sig í skot. Truflar Margréti sem nær ekki skotinu en ekkert dæmt. Hafði tvímælalaust af henni mjög gott skotfæri innan teigs.
54. mín
Skot Henríetta brýst upp völlinn með boltann, hann berst til Margrétar sem nær skoti en framhjá.
52. mín
Fyrirgjöf Henríetta með góða sendingu upp í vinstra hornið á Margréti sem á góða fyrirgjöf sem Aldís nær en missir. Nær þó boltanum aftur áður en Sonja áttar sig.
51. mín
Fyrirgjöf Hulda Ósk nær fyrirgjöf frá hægri en engin Þór/KA leikmaður nær boltanum áður en Aldís handsamar hann. Þarna var möguleiki
50. mín Gult spjald: Maya Lauren Hansen (FH)
Peysutog
47. mín
Markskot. Þór/KA byrjar vel og Henríetta kemur boltanum á Karen sem á gott skot en yfir markið.
46. mín
Inn:Henríetta Ágústsdóttir (Þór/KA) Út:Kolfinna Eik Elínardóttir (Þór/KA)
Leikurinn hafinn Seinni hálfleikur byrjaður og það eru sömu leikmenn sem luku þeim fyrri og byrja þann seinni, fyrir utan að Kolfinna er farin út af en Henríetta kemur í hennar stað. Ég hef trú á því að eitthvað hefur verið lesið yfir leikmönnum heimaliðsins og þær munu leggja allt í sölurnar.
45. mín
Hálfleikur
Kaflaskiptur hálfleikur Þór/KA byrjaði leikinn mun betur og fékk nokkur mjög góð færi til að komast yfir í leiknum. Eftir að FH náði svo að skora sitt fyrsta mark var eins og einhver hefði slökkt á heimamönnum, bæði miðjumenn og varnarmenn urðu óöruggir og fóru fjær FH stelpunum sem þar með fengu frið með boltann sem þær nýttu sér vel. Þær bættu við tveimur mörkum sem voru verðskulduð á þeim kafla leiksins. Alveg í lok hálfleiksins náðu Þór/KA vopnum sínum til baka og héldu boltanum og pressuðu á FH.
45. mín
Sóknarfæri Sandra reynir skot af góðu færi en vel yfir markið. Þór/KA er alla vega að reyna þessar lokamínútur fyrri hálfleiks
43. mín
Markamínútan Þór/KA þarfnast svo sannarlega að nýta þessar mínútur sem eftir eru til að koma sér inn í leikinn sem er í eigu FH eins og er.
38. mín MARK!
Elísa Lana Sigurjónsdóttir (FH)
3 - 0 EFtir góða sókn upp vinstri kantinn þar sem heimastúlkur voru skildar eftir kom góð fyrir gjöf frá Berglindi á Elísu sem hamraði boltann í netið.
32. mín
Hvar er pressan Miðjumenn Þórs/KA eru ekki að gera varnarmönnum sínum neinn greiða með því að vera of langt frá FH leikmönnum og sleppa þeir því ítrekað í gegn og á varnarmennina.
En að sama skapi vel gert hjá FH.
31. mín
Gjörbreyting Eftir fyrra mark FH hefur leikurinn gjörbreyst. FH sækir meira og nær skotum á mark Þórs/KA. Varnarleikur og sjálfstraust heimastúlkna ekki til staðar í augnablikinu.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Dauðafæri Valgerður skeiðar upp völlinn og setur Elísu í gegn en skotið lélegt.
28. mín
Gott færi Bríet missir boltann klaufalega frá sér til Valgerðar sem kemur honum strax á Thelmu sem ætlar sér of mikið og missir boltann frá sér til Jessicu.
27. mín MARK!
Berglind Freyja Hlynsdóttir (FH)
FH skorar aftur Eftir barning fyrir utan teig þar sem Thelma og Hulda Björg áttust við barst boltinn inn í teigi á Berglindi sem afgreiddi hann í fyrsta undir í netið. Jessica hefði e.t.v. getað gert betur.
26. mín
hálffæri Thelma kemst upp hægra megin en Hulda Björg verst vel þannig að skotið er víðs fjarri markinu.
22. mín MARK!
Valgerður Ósk Valsdóttir (FH)
FH skorar FH vinnur boltann á miðjum vallarhelmingi Þórs/KA og Valgerður fær boltann inni í teig. Nær að snúa sér og leika á Bríeti áður en hún skorar örugglega undir Jessicu. Það er óhætt að segja að þetta sé gegn gangi leiksins.
21. mín
Horn Valgerður tekur hornið sem kemur á fjær söngina. Boltinn lagður út á Birnu sem á bylmingsskot sem Jessica ver.
21. mín
Hálffæri Elísa aftur á ferðinni og kemst inn í teig. Leggur þar boltann fyrir Berglindi sem á skot í varnarmann og út af.
19. mín
Hálffæri Elísa sólar sig inn í teig og leggur boltann fyrir Maya sem nær skoti en varnarmaður kemst fyrir.
17. mín
Skotfæri Þór/KA vinnur boltann við vítateig FH og Karen fær frítt skot frá vítateig en naumlega framhjá.
17. mín
Skot Aftur fær Elísa boltann lagðan fyrir sig en nú er það samherji. Boltinn fer í varnarmann og í horn.
15. mín
Gott skotfæri Klaufagangur í vörn Þór/KA sem verður til þess að Elísa fær boltann beint fyrir framan sig við vítateigshornið. Nær góðu skoti en Jessica er fljót niður og ver vel.
13. mín
Aðvörun Maya grípur aftan í leikmann Þór/KA og fær tiltal.
10. mín
Dauðafæri Þór/KA fékk innkast hægra megin og Hulda fékk boltann og kom með góða fyrirgjöf sem Margrét náði að skalla að marki en Aldís var vel vakandi og varði vel niðri í horninu.
7. mín
Meiðsli Þór/KA sækir upp vinstra megin og Hulda nær góðri fyrirgjöf sem siglir yfir á fjærstöng. Þar nær Sandra boltanum og kemur aftur með fyrirgjöf sem Sonja fer upp í með markmanni sem hnjaskast í leiðinni en jafnar sig. Dæmt brot á Sonju.
5. mín
Færi FH kemst upp hægra megin og Thelma leggur boltann út á Berglindi sem hittir boltann illa og hann fer vel framhjá.
3. mín
Dauðafæri Kimberley sendir upp í hornið hægra megin þar sem Hulda Ósk tekur varnarmann FH á og nær góðu skoti frá markteig en rétt framhjá.
2. mín
Dauðafæri Sandra er send ein í gegn en Aldís kemur vel út á móti og ver vel skot Söndru. Sannkallað dauðafæri.
1. mín
Leikur hafinn
Byrjað Þór/KA byrjar að spila undan vindi, nei djók, inni í Boganum og hér er 15 stiga hiti og blankalogn. Þór/KA spilar í norðurátt, en FH spilar í átt að miðbænum, í suður.

Þetta verður skemmtun.
Fyrir leik
Styttist í leik Fáir áhorfendur mættir en enn er nægur tími til að dröslast fram úr sófanum og drífa sig í Bogann. Það eru ekki nema 5 mínútur hingað úr ystu byggðum Akureyrar (nema Grímsey og Hrísey). Drífa sig.
Fyrir leik
Útlendingar í liðunum Það er gott að sjá að útlendingahersveitir skipa ekki liðin í dag. Þá fá fleiri íslenskar stelpur / konur að spila í sínu liði. Alltaf gaman af því þegar uppaldir leikmenn fá möguleika á að spila með meistaraflokki og uppskera þá vinnu sem lögðu hefur verið í framfarirnar.
Það er ekkert að því að hafa útlendinga í liðum í dag, en þá verða þeir að bæta í liðið og vera betri en þeir leikmenn sem fyrir eru.
Fyrir leik
Þjálfarar Jóhann Kristinn þjálfar Þór/KA og hefur náð góðum árangri í gegnum tíðina með liðið og stefnir á að halda því góða starfi áfram í sumar.
Bræðurnir Guðni og Hlynur Svan Eiríkssynir þjálfa FH. Guðni hefur þjálfað FH síðan 2019 og ári síðar bættist Hlynur í þjálfarahópinn og hafa þeir þjálfað óslitið síðan. Hlynur þjálfaði Þór/KA 2011 og þjálfaði og spilaði með karlaliði Þórs á árum áður.
Fyrir leik
Dómgæslan Dómarar á leiknum í dag eru þau:

Ásmundur Þór Sveinsson sem blæs í flautuna,
Sveinn Þórður Þórðarson og Leyla Ósk Jónsdóttir sjá um að flagga
Aðalsteinn Tryggvason sér svo um að allt fari vel fram utan vallar sem fjórði dómari.
Fyrir leik
Staðan í deildinni FH er í 3ja sæti með 7 stig á eftir Val og Breiðablik en með jafn mörg stig. Þór/KA er með 6 stig í 5ta sæti með 6 stig. FH gerði jafntefli við Val í fyrstu umferð og vann svo "nafna" sinn í FHL og Fram. Þór/KA vann Víking og Tindastól áður en þær lágu fyrir Val á Hlíðarenda. Bæði lið því í efri hlutanum og sigur í dag treystir stöðu sigurvegaranna í toppbaráttunni.
Fyrir leik
Viðureignirnar í fyrra Þór/KA og FH áttust við þrisvar í deild og drógust líka saman í bikar. Þór/KA vann þrisvar, bikarleikinn í 8 liða úrslitum, 1 - 0 með marki Söndru Maríu, sem einnig skoraði sigurmarkið í leiknum í efri hlutanum sl haust. Sandra skoraði auk þess öll mörkin í 0- 4 sigri í Kaplakrika.
FH náði í eina sigur sinn á Þórsvellinum þegar Ída Hermanns (Hreiðarssonar) skoraði eina mark leiksins.
Sandra María setti því 6 mörk á FH í fyrra og sér eflaust færi á því að opna markareikning í bestudeildarbankanum í dag.
Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir ('85)
3. Erla Sól Vigfúsdóttir
5. Arna Eiríksdóttir (f)
6. Katla María Þórðardóttir
7. Thelma Karen Pálmadóttir ('85)
8. Valgerður Ósk Valsdóttir ('62)
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir ('70)
13. Maya Lauren Hansen
17. Elísa Lana Sigurjónsdóttir
23. Deja Jaylyn Sandoval
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
4. Vigdís Edda Friðriksdóttir
15. Hrönn Haraldsdóttir ('85)
16. Margrét Brynja Kristinsdóttir
19. Hildur Katrín Snorradóttir ('62)
22. Hildur Þóra Hákonardóttir ('85)
36. Harpa Helgadóttir ('70)
37. Jónína Linnet
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Dagur Óli Davíðsson
Guðmundur Jón Viggósson
Brynjar Sigþórsson
Harpa Finnsdóttir

Gul spjöld:
Maya Lauren Hansen ('50)
Elísa Lana Sigurjónsdóttir ('76)

Rauð spjöld: