Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetAlexander Tonini
Alexander Tonini
Fram
Fram
Besta-deild kvenna
Lambhagavöllurinn
2 - 0
FHL
FHL
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir 4'1 - 0Alda Ólafsdóttir 13'2 - 0
Dómari: Jovan Subic

SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Fram er fyllilega verðskuldaður

Hvað réði úrslitum?

Úrslitin réðust á fyrsta korteri þegar Fram skoraði tvö mörk í byrjun leiks. Heilt yfir fyllilega verðskuldað og stelpurnar í Fram miklu betri í þessum leik en gestirnir í FHL.

Bestu leikmenn

1. Alda Ólafsdóttir

Það gerist ekki betra en stoðsending og mark. Alda ógnaði marki FHL stöðugt í leiknum og hefði geta bætt við mörkum.

2. Kamila Elise Pickett

Erfitt val á milli hennar, Söru og Unu sem allar áttu frábæran leik hér í dag. Það má segja að allar stelpurnar í Fram áttu góðan leik.

Atvikið

FHL tókst ekki að hreinsa burt eftir hornspyrnu og boltinn ratar aftur inn á teig og beint í fæturnar á Öldu sem kláraði færið sitt vel með hnitmiðuðu skoti í hægra hornið, óverjandi fyrir Keelan í markinu. Eftir það var ekki aftur snúið fyrir FHL

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Fram fær stigin þrjú sem voru bæði lið nauðsynleg í þessum fallslag og lyftir sér af botninum og í leiðinni fella FHL á botn Bestu deildar.

Vondur dagur

Heilt yfir áttu stelpurnar í FHL ekki góðan dag og voru í stökustu vandræðum með stelpurnar í Fram sem mættu ákveðnar og grimmar til leiks. Varnarleikur, miðja og sóknarleikur FHL átti ekki góðan dag. Þess má þó get að Aida Kardovic átti flottan leik á miðjunni fyrir FHL.

Dómarinn - 5

Dómarinn þokkalegur í besta falli og atvikið sem ég man best eftir var þegar Alda var keyrð niður af varnamanni FHL og ekkert dæmt. Furðulegur dómur sá. Og svo voru önnur atvik eins og gult spjald á Alexiu í FHL fyrir nánast ekki neitt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.