Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Stjarnan
Stjarnan
Besta-deild kvenna
Samsungvöllurinn
1 - 0
Valur
Valur
Jakobína Hjörvarsdóttir 38'1 - 0
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson

SKÝRSLAN: Stjarnan hirti öll stigin gegn Val

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan lagði einfaldlega aðeins meira á sig til að landa sigrinum. Það voru þær sem fóru af þessum extra 10% krafti inn í öll návígji og unnu þau flest fyrir vikið. Uppskáru gott mark úr föstu leikatriði sem að endingu dugði til. Á sama tíma var lið Vals í basli með að finna leiðir gegn skipulögðum og kraftmiklum varnarleik Stjörnunar.

Bestu leikmenn

1. Jakobína Hjörvarsdóttir

Að skora mark er alltaf gott en varnarleikur Jakobínu í dag var til fyrirmyndar í alla staði. Kraftur, áræðni og jákvæð orka streymdi frá henni á vellinum í dag og átt hún frábæran leik.

2. Anna María Baldursdóttir

Fyrir utan markið mætti svo sem gera copy/paste á allt sem ég skrifaði um kollega fyrirliða Stjörnunar í vörninni. Stýrir varnarlínunni gríðarlega vel og það er vel að merkja að lið Stjörnunar saknaði Önnu í upphafi móts. Góður leikur hjá henni í dag og verðskuldaður sigur hjá liðinu.

Atvikið

Markið stendur upp úr í annars nokkuð tíðindalitlum leik heilt yfir. Aukaspyrna utan af kanti berst inn á teig Vals þar sem vörn gestaliðsins er steinsofandi sem Jakobína nýtir sér og skorar gott mark sem reyndist sigurmark.

Hvað þýða úrslitin?

Lið Stjörnunar fer í 6 stig og lyftir sér upp í sjötta sæti deildarinnar. Valur með sín sjö stig situr svo í því fjórða.

Vondur dagur

Sóknarleikur Vals var heilt yfir heldur dapur. Fengu vissulega sín færi en tilfinningin var eins og það vantaði eitthvað. Einsleit uppbygging og nokkuð fyrirsjáanleg sem gerði verkefnið þægilegra fyrir varnarmenn Stjörnunar. Frá mínum bæjardyrum séð er allavega eins og það vanti eitthvað í sóknarlínu Vals.

Dómarinn - 8

Ekkert út á Stefán Ragnar og hans teymi að setja í dag. Ekki erfiðasti leikur sem hann mun dæma á ferlinum en þeir krefjast samt þess sama af dómurum og aðrir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.