Fotbolti.net
Besta deildin
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir
Þróttur R.
Þróttur R.
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
1 - 0
Tindastóll
Tindastóll
Freyja Karín Þorvarðardóttir 1'1 - 0
Dómari: Bríet Bragadóttir

SKÝRSLAN: Þróttur sigraði Tindastól í Laugardalnum

Hvað réði úrslitum?

Þróttarar byrjuðu leikinn strax og Freyja Karín skoraði mark eftir 28 sekúndna leik. Eftir það gerðist lítið sem ekkert og lítið annað sem skildi liðin að í dag.

Bestu leikmenn

1. Mist Funadóttir

Mist Funadóttir var áræðin og kraftmikil í dag. Hún átti góðar fyrirgjafir sem leikmenn Þróttar hefðu getað nýtt betur. Hún lagði upp markið eftir góðan sprett á vinstri kantinum og hefði hæglega getað lagt upp fleiri mörk í dag.

2. Katherine Grace Pettet

Þróttarar reyndu hvað þær gátu að finna glufur í þéttri varnarlínu Tindastóls. Katherine stoppaði ófáar sóknir Þróttar, vann boltann vel, skallaði fyrirgjafir frá og fór fyrir skot.

Atvikið

Markið sem Freyja Karín skoraði á 28 sekúndu leiksins var án efa atvik leiksins og fátt annað markvert gerðist.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur situr eftir leikinn í 3. sæti deildarinnar með 10 stig jafn mörg stig og FH og Breiðablik sem eru fyrir ofan þær á töflunni. Tindastólskonur eru hins vegar enn bara með 3 stig eftir einn sigur sem kom í fyrstu umferð og hafa nú tapað þrem leikjum í röð.

Vondur dagur

Makala Woods, framherji Tindastóls, komst í mjög góð færi og átti að skora í leiknum en var lengi að athafna sig í teignum og nýtti ekki góð færi.

Dómarinn - 8

Bríet og félagar komust vel frá leiknum í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.