Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
HK
HK
Lengjudeild karla
Kórinn
1 - 3
Njarðvík
Njarðvík
0 - 16' Tómas Bjarki JónssonDagur Orri Garðarsson 40'1 - 11 - 249' Dominik Radic1 - 396' Amin Cosic
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Njarðvík sótti sigur í hlýjunni

Hvað réði úrslitum?

Til að gera langa sögu stutta voru Njarðvíkingar klínískari. Bæði lið áttu kafla þar sem þau skiptust á að vera með völd á leiknum. Njarðvík komst snemma yfir eftir horn sem létti aðeins yfir þeim en HK jafnar stuttu fyrir hálfleik með góðri sókn. Í síðari hálfleik byrjaði HK með meiri krafti en Njarðvíkingar tóku þó forystu þegar þeir náðu góðum bolta fyrir markið. HK reyndi að ná inn jöfnunarmarkinu og ýttu Njarðvíkingum aftarlega á loka mínútum en Njarðvíkingar refsa með skyndisókn og fá mikilvæg þrjú stig á töfluna.

Bestu leikmenn

1. Sigurjón Már Markússon

Var frábær í vörn Njarðvíkur í kvöld. Öryggið uppmálað og bjargaði því sem bjarga þurfti í kvöld. Átti gott sem game winning tæklingu þegar hann náði að henda sér fyrir Arnþór Ara í leiknum sem átti bara eftir að rífa nýtt gat á netið miðað við hvernig hann hlóð í skotið stutt frá marki.

2. Tómas Bjarki Jónsson

Kemur Njarðvíkingum yfir og fagnar því skemmtilega. Er búin að vera frábær á miðjunni hjá Njarðvík og var virkilega öflugur í kvöld.

Atvikið

Amin Cosic skorar þriðja markið fyrir Njarðvík. Uppalinn HK-ingur sem leiddist ekkert að skora á móti sínu gamla félagi. HK voru búnir að þrýsta Njarðvíkingum vel aftur áður en Amin klárar svo leikinn endanlega og fagnar því að hætti húsins.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvíkingar halda sér í öðru sætinu nú með átta stig. HK hinsvegar eru áfram með sín fimm stig um miðja deild.

Vondur dagur

Í raun ekki hægt að taka neinn sérstakan fyrir hérna. Enginn sem átti sérstaklega dapran dag.

Dómarinn - 7

Ekki fullkomið og oft smá óöryggi hjá aðstoðardómara en vann vel á eftir því sem leið á leikinn. Nokkur atriði sem hefði verið hægt að pikka út en heilt yfir ekkert sem hafði áhrif á úrslit leiksins.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.