Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Keflavík
Keflavík
Lengjudeild karla
HS Orku völlurinn
Gætu verið verri veðurfarslega, völlurinn fínn.
6 - 0
Leiknir R.
Leiknir R.
Gabríel Aron Sævarsson 10'1 - 0Kári Sigfússon 18'2 - 0Ernir Bjarnason 52'3 - 0Kári Sigfússon 61'4 - 0Kári Sigfússon 80'5 - 0Ari Steinn Guðmundsson 94'6 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Endurtekin martröð Leiknis í Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Ólafur Hrannar Kristjánsson þjálfari Leiknis komst sennilega rétt að orði er hann sagði Keflavík einfaldlega margfalt betra lið en Leikni í dag. Sigurinn var vissulega sanngjarn og tilfinningin sú að Keflavík hefði eflaust getað unnið stærra ef þeir hefðu verið á fullu gasi allar 90 mínútur leiksins.

Bestu leikmenn

1. Kári Sigfússon

Er hægt að líta framhjá þrennu? Frábæri við teig Leiknis og uppskar þrjú góð mörk. Rökrétt framhald á góðum seinni hluta tímabilsins hjá þessum mjög svo skemmtilega karakter.

2. Sindri Snær Magnússon

Kraftur og áræðni og bara einn gír áfram á fullu. Stoðsendingar, tæklingar, barátta og almenn læti. Hvað viljið þið meira?

Atvikið

Mark Ernis Bjarnasonar. Snudda með vinstri í skeytin af 20 metrum. Hann mun reyna þetta aftur á næstu æfingu en mun aldrei takast það þó hann reyni þúsund sinnum.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík heldur toppsætinu og situr þar með 9 stig að loknum fjórum umferðum og stórgóða markatölu 13-4. Leiknir áfram á botni deildarinnar með 1 stig og alls ekki jafn góða markatölu 2-12

Vondur dagur

Varnarleikur Breiðhyltinga var á köflum dapur í dag. Mér fannst vanta upp á að ráðast á boltann enda unnu Keflvíkingar vel flesta seinni bolta og voru yfir í allri baráttu á vellinum heilt yfir. Stórt verkefni framundan hjá Ólafi Hrannari og hans teymi að berja trú í brjóst manna í efri byggðum Breiðholts.

Dómarinn - 8

Solid í dag hjá Gunnari Oddi og hans teymi. Rauði greifinn eins og ég hef kosið að kalla Gunnar Odd að undanförnu tók meira að segja upp á því að skilja rauða spjaldið eftir inn í klefa í þetta sinn. Sem var svo sem vel enda ekki nokkurt tilefni til þess að nota það.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.