SKÝRSLAN: Þróttarar fóru í Lautarferð og sóttu þrjú stig
Hvað réði úrslitum?
Þróttur gerði bara meira en heimamenn í kvöld. Voru ofan á í baráttunni, vörðust vel sem lið og skoruðu fleiri mörk en Fylkir. Leikurinn byrjaði mjög rólega en Þróttarar náðu inn marki sem leiddi þá með forskot inn í hálfleik. Síðari hálfleikurinn var svipaður. Þróttur komst í 2-0 en Fylkismenn náðu að klóra sér inn í leikinn en það kom bara of seint og sigur Þróttarar staðreynd
Bestu leikmenn
1. Kári Kristjánsson (Þróttur R)
Frábær inn á miðjunni hjá Þrótt í kvöld. Lagði upp fyrsta markið á Aron Snæ
2. Aron Snær Ingason
Skoraði fyrsta mark Þróttar í kvöld og var gríðarlega öflugur varnarlega í kvöld en varnarleikur byrjar frá fremsta manni og hann pressaði gríðarlega vel á öftustu leikmenn Fylkis.
Atvikið
Fyrsta mark Þróttar Aron Snær skoraði - Var rosalega tæpur á að vera rangstæður en þetta var mjög tæpt. Ég fagna því að sóknarmenn fá að njóta vafans.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir situr í 5 sæti deildarinnar og liðið er með fimm stig. Þróttur Reykjavík lyftir sér upp í fjórða sæti deildinnar og er liðið með sjö stig.
Vondur dagur
Eyþór Wöhler - Fékk dauðafæri í fyrri hálfleik en náði ekki að nýta það, fyrir utan það sást hann ekki og var tekinn útaf eftir 68 mínútur. Orri Segatta leit einnig mjög ílla í fyrsta marki Þróttar.
Dómarinn - 6
Arnar Þór og félagar voru fínir. Hefðu mátt leikinn fljóta meira. Svo setja einhverjir eflaust spurningamerki á fyrsta mark Þróttar.



