Man Utd ætlar að hreinsa til í leikmannahópnum - Vardy orðaður við Valencia
Besta-deild karla
KR
LL 2
3
Fram
Lengjudeild karla
HK
LL 1
3
Njarðvík
Lengjudeild karla
Keflavík
LL 6
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
ÍR
LL 2
0
Selfoss
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 1
2
Þróttur R.
Valur
1
1
Víkingur R.
Fanndís Friðriksdóttir '30 1-0
1-1 Dagný Rún Pétursdóttir '54
Jordyn Rhodes '96 , misnotað víti 1-1
23.05.2025  -  18:00
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta-deild kvenna
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
6. Natasha Anasi
7. Elísa Viðarsdóttir (f)
10. Berglind Rós Ágústsdóttir
11. Anna Rakel Pétursdóttir
14. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
16. Elín Metta Jensen ('56)
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir
28. Kolbrá Una Kristinsdóttir
30. Jordyn Rhodes
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
20. Björk Björnsdóttir (m)
5. Bryndís Eiríksdóttir
13. Nadía Atladóttir ('56)
17. Arnfríður Auður Arnarsdóttir
24. Auður Björg Ármannsdóttir
26. Ása Kristín Tryggvadóttir
32. Ágústa María Valtýsdóttir
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)
Kristján Guðmundsson (Þ)
Jóhann Emil Elíasson
María Hjaltalín
Fjalar Þorgeirsson
Anna Sóley Jensdóttir

Gul spjöld:
Elín Metta Jensen ('35)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þvílíkar lokamínútur! Sigurborg nær að verja víti og bjarga stigi fyrir Gestina. Lokatölur 1-1!

Viðtöl koma inn seinna í kvöld. Takk fyrir samfylgdina!
96. mín Misnotað víti!
Jordyn Rhodes (Valur)
SIGURBORG VER Þvílíkur endir á leiknum!
95. mín
VALUR FÆR VÍTI Á síðustu sekúndum leiksins!!
94. mín
Víkingur að vinna auaksapyrnu á hættulegum stað Ná gestirnir að stela sigrinum?!

Hættulegur bolti inn á teiginn en enginn nær til hans
91. mín
Inn:Júlía Ruth Thasaphong (Víkingur R.) Út:Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Víkingur R.)
90. mín
Uppbótartími er 5 mínútur.
89. mín
Skalli á mark! Jordyn Rhodes á skalla á mark en auðvelt fyrir Sigurborgu í markinu.
88. mín
Þórdís á skot á mark en Tinna ver.
86. mín
Jordyn Rhodes við það að sleppa í gegn en er dæmd rangstæð.
85. mín
Fimm mínútur eftir af þessu. Fáum við sigurmark í þetta?!
84. mín
Inn:Selma Dögg Björgvinsdóttir (Víkingur R.) Út:Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (Víkingur R.)
Ísfold höltrar útaf og getur ekki haldið leik áfram.
83. mín
Ísfold er löggst í grasið og þarfnast aðhlynningar. Vonandi ekkert alvarlegt.
82. mín
Skot á mark! Natasha á skot á mark innan úr teig gestanna. Skotið er fast en Sigurborg ver.
78. mín
Rétt yfir! Boltinn dettur fyrir Önnu eftir hornspyrnu sem á hörkuskot sem fer rétt yfir markið.
76. mín
Rétt framhjá! Fanndís á hörkusprett upp allan völlinn, kemur sér inn á teig og lætur vaða. Skotið rétt framhjá fjærstönginni.
75. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað Fanndís að vinna aukaspyrnu fyrir Valskonur á hættulegum stað. Hún gerir sig líklega til að taka hana.

Fanndís á skot sem fer beint á Sigurborgu í markinu.
73. mín Gult spjald: Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (Víkingur R.)
69. mín
Elísa gefur hán bolta fyrir en enginn rauð treyja nær til hans. Valur uppsker horn.

Natasha á skalla í kjölfar hornsins sem fér rétt framhjá.
67. mín
Langskot Freyja á skot á mark. Skýtur fyrir utan D-bogan. Auðvelt fyrir Tinnu í markinu.
61. mín
Yfir Kolbrá fær boltann inn á teig gestanna og skýtur. Boltinn rétt yfir markið.
60. mín
Valskonur sækja hratt. Jordyn Rhodes kemst næstum í skotfæri en gestirnir verjast vel.
59. mín
Víkingur fær horn. Þórdís með góðan bolta inn á teiginn en Valur hreinsar.
56. mín
Inn:Nadía Atladóttir (Valur) Út:Elín Metta Jensen (Valur)
Fyrsta skipting leiksins.
54. mín MARK!
Dagný Rún Pétursdóttir (Víkingur R.)
MAARK!! Víkingur jafnar!

Þórdís á góðann bolta inn á teig Valsara og Freyja flikkar honum áfram. Boltinn berst til Dagnýjar sem er yfirveguð, kemur sér í skotfæri og klárar vel framhjá Tinnu í markinu,

Allt jafnt!
50. mín
Hætta! Geggjuð fyrirgjöf inn á teig Valsara frá Þórdísi Hrönn. Bergdís með pláss inn á teignum og skallar á markið en boltinn tiltölulega beint á Tinnu sem ver.
48. mín
Valur fær hornspyrnu sem Ragnheiður tekur. Fínn bolti inn á teiginn en Víkingur hreinsar.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Víkingur byrjar með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Valskonur leiða í hálfleik Hálfleikstölur 1-0 fyrir Val. Valur verið betri aðilinn en Víkingur ekki náð að skapa sér nein almennileg færi nema undir lok hálfleiksins. Fáum vonandi spennandi seinni 45!

Tökum korterspásu og komum svo með seinni hálfeikinn.
45. mín
Rétt yfir Bergdís gerir vel inn á teig Valsara og á gott skot sem fer rétt yfir markið.
45. mín
+1 uppbótartími fyrri hálfleiks er að minnsta kosti tvær mínútur.
45. mín
Þvílík varlsa! Skyndisókn hjá Valskonum. Fanndís með góða stungusendingu inn á Jordyn Rhodes sem gerir vel og kemur sér ein á móti markmanni. Skýtur en Sigurborg ver glæsilega í markinu.
42. mín
Skyndisókn hjá gestunum. Freyja gefur boltann á fjær en þar er engin og sóknin fjarar út. Hefur gengið brösulega hjá Víkingum að skapa sér færi.
37. mín
Stöngin! Vel unnin skyndisókn hjá Valskonum og kemst Ragnheiður í mjög þröngt færi. Hún skýtur og boltinn í fjærstöngina. Spurning hvort hún hafi ætlað að gefa hann fyrir þarna en boltinn allavega í innanverða stöngina.
35. mín Gult spjald: Elín Metta Jensen (Valur)
33. mín
Sigurborg liggur eftir samstuð og þarfnast aðhlynningar. Vonandi ekkert alvarlegt.

Leikurinn hafinn á ný og Sigurborg heldur áfram.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín MARK!
Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
Stoðsending: Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
MAAAARK! Valskonur komnar yfir!

Ragnheiður Þórunn með góða hornspyrnu inn á teig Víkings. Fanndís tekur gott hlaup á nærstöngina og skalla boltann afturfyrir sig og í fjærhornið og Valur tekur forystuna!
28. mín
Gestirnir fá horn sem Bergdís tekur en Valsarar bægja hættunni frá
24. mín
Leikurinn aðeins jafnari um þessar mundir. Gestirnir að koma sér inn í þetta.
19. mín
Víkingur að fá horn.

Þórdís fleytir boltanum inn á teiginn en Valur skallar í annað horn.

í þetta sinn ná Valskonur að hreinsa
17. mín
Valskonur mun líklegri Valur verið að ógna síðastliðnar mínútur. Jordyn Rhodes á skot innan úr teig sem fer rétt framhjá fjærstönginni.
15. mín
Valur að fá annað horn.

RÉTT YFIR
Góður bolti inn á teiginn og Lillý Rut nær að skalla boltann. Boltinn í átt að marki en rétt yfir.
14. mín
Skot á mark! Ragnheiður keyrir inn á teiginn og neglir á markið. Boltinn tiltölulega beint á Sigurborg sem ver í horn.

Smá darraðadans inn á teig gestanna í kjölfar hornsins en Víkingur hreinsar.
12. mín
Leikurinn farið rólega af stað. Liðin skipst á að vera með boltann en enginn hættuleg færi litið dagsins ljós. Valskonur átt tvö skot en hvorugt þeirra ratað á markið.
7. mín
Ragnheiður Þórunn með fínan sprett upp hægri kantinn, snýr inn á völlinn og lætur vaða. Boltinn vel framhjá.
3. mín
Framhjá Anna Rakel fær boltann rétt fyrir utan teig og skýtur í átt að marki Víkings. Þéttingsfast skot meðfram jörðinni en boltinn framhjá.
2. mín
Gestirnir að vinna aukaspyrnu. Fínasta tækifæri til að koma boltanum inn á teiginn.

Emma Steinsen gefur hann fyrir en Valskonur hreinsa
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið í gang! Valskonur byrja með boltann.
Fyrir leik
Aukaspyrna á hættulegum stað Gestirnir að vinna aukaspyrnu á hættulegum stað. Gott tækifæri til að koma boltanum inn á teiginn.

Bergdís lyftir boltanum inn á teiginn en Áslaug á lausan skalla sem endar í höndunum hjá Tinnu.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja! Liðin ganga inn á völlinn. Styttist óðfluga í upphafsparkið.
Fyrir leik
Valskonur hafa hikstað aðeins í upphafi móts en eru engu að síður taldar líklegri til sigurs hér í dag samkvæmt stuðlunum á Epic. Stuðullinn á sigur Vals er 1.33 á meðan stuðullinn á sigur Víkings er 8,00.
Mate Dalmay
Fyrir leik
Fínustu aðstæður 10°C, skýjað og gola á Hlíðarenda eins og er. Byrjunarliðin eru komin í hús og má sjá hér til hliðar!


Fyrir leik
Guðrún Karítas spáir í spilin! Guðrún Karítas Sigurðardóttir, sóknarmaður Fylkis, er spákona umferðarinnar. Hún spáir Valskonum sigur hér í kvöld.

Valur 2 - 1 Víkingur
Tvö lið sem hafa ekki náð sínu besta fram að þessu mætast í jafnri viðureign. Valur vinnur nauman sigur þar sem Fanndís Friðriksdóttir skorar fyrir Val og Linda Líf skorar fyrir Víking. Ég finn síðan á mér að Elín Metta muni skora sitt fyrsta mark eftir barnsburð og tryggja þeim þrjú stigin.

Mynd: Helgi Bjarnason

Fyrir leik
Dómarateymið Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson er aðaldómari hér í kvöld og honum til halds og trausts eru þeir Magnús Garðarsson og Tryggvi Elías Hermannsson. Eftirlitsmaður KSÍ er Kristján Halldórsson og Varadómari er Róbert Þór Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Staðan í deildinni Svona lítur deildin út nú þegar sex umferðum er lokið.

Breiðablik - 16 stig
Þróttur R. - 16 stig
FH - 13 stig
Þór/KA - 12 stig
Stjarnan - 9 stig
Valur - 7 stig
Tindastóll - 6 stig
Fram - 6 stig
Víkingur R. - 3 stig
FHL - 0 stig

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingur Víkingur hefur átt slaka byrjun á mótinu en liðið situr í 9. Sæti deildarinnar með einungis einn sigur eftir sex leiki. Víkingur tók á móti Tindastól í síðustu umferð en þar enduðu leikar 4-1 Tindastól í vil.

Víkingi var fyrir tímabilið spáð 3. sætinu, en augljóst er að eitthvað er ekki að ganga upp í Fossvoginum. John Andrews, þjálfari Víkings var spurður út í gengi liðsins eftir síðasta leik og sagði þá:

„Við áttum von á því að vera með tíu til tólf stig á þessum tímapunkti enda erum við með þannig leikmannahóp. Hlutirnir eru ekki að falla með okkur og við þurfum að breyta því og við munum gera það."

Það má því búast við hörkuleik hér í kvöld þar sem bæði lið þurfa á sigri að halda til þess koma sér í gang
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Valur Valskonur hafa verið í brasi upp á síðkastið en liðið hefur tapað síðustu þremur leikjum. Valur situr eins og er í 6. sæti deildarinnar með sjö stig eftir sex umferðir. Valur mætti toppliði Breiðabliks í síðustu umferð. Þar rúlluðu Blikar yfir Valsara og unnu öruggann 4-0 sigur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góðan og gleðilegan! Komið þið sæl og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu á viðureign Vals og Víkings í Bestu deild kvenna. Leikurinn fer fram á Hlíðarenda og hefst klukkan 18:00.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (m)
3. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
4. Erna Guðrún Magnúsdóttir
5. Emma Steinsen Jónsdóttir
7. Dagný Rún Pétursdóttir
9. Freyja Stefánsdóttir
16. Jóhanna Elín Halldórsdóttir
20. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
21. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('84)
26. Bergdís Sveinsdóttir (f)
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('91)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Ásta Sylvía Jóhannsdóttir (m)
30. Eva Ýr Helgadóttir (m)
2. Gígja Valgerður Harðardóttir
10. Selma Dögg Björgvinsdóttir ('84)
11. Júlía Ruth Thasaphong ('91)
22. Birgitta Rún Yngvadóttir
28. Rakel Sigurðardóttir
34. Anika Jóna Jónsdóttir
35. Arna Ísold Stefánsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
John Henry Andrews (Þ)
Birta Birgisdóttir
Linda Líf Boama
Mikael Uni Karlsson Brune
Ingólfur Orri Gústafsson
Björn Sigurbjörnsson
Valgerður Tryggvadóttir

Gul spjöld:
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('73)

Rauð spjöld: