Al Hilal undirbýr stórt tilboð í Fernandes - Bayern vill Mitoma - Delap og Doak til Everton?
Besta-deild karla
Vestri
LL 3
1
Stjarnan
Besta-deild karla
Víkingur R.
LL 2
1
ÍA
Besta-deild karla
KA
LL 1
0
Afturelding
Besta-deild karla
Valur
LL 3
0
ÍBV
KA
1
0
Afturelding
Hallgrímur Mar Steingrímsson '80 1-0
24.05.2025  -  17:00
Greifavöllurinn
Besta-deild karla
Aðstæður: 7° "hiti" og smá rigning
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Áhorfendur: 525
Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason
8. Marcel Ibsen Römer ('61)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson ('84)
28. Hans Viktor Guðmundsson
29. Jakob Snær Árnason ('72)
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('61)
77. Bjarni Aðalsteinsson
- Meðalaldur 30 ár

Varamenn:
12. William Tönning (m)
7. Jóan Símun Edmundsson ('61)
9. Viðar Örn Kjartansson ('72)
14. Andri Fannar Stefánsson
22. Hrannar Björn Steingrímsson ('61)
25. Dagur Ingi Valsson
26. Ingimar Torbjörnsson Stöle ('84)
44. Valdimar Logi Sævarsson
88. Dagbjartur Búi Davíðsson
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Halldór Hermann Jónsson
Petar Ivancic
Steingrímur Örn Eiðsson
Michael Charpentier Kjeldsen

Gul spjöld:
Marcel Ibsen Römer ('38)
Ásgeir Sigurgeirsson ('43)
Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('45)
Bjarni Aðalsteinsson ('48)
Birgir Baldvinsson ('70)
Jóan Símun Edmundsson ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
KA menn vinna gríðarlega mikilvægan sigur! Þessi 1-0 sigur var sannarlega vel þeginn á Brekkunni! Það var stórglæsilegt mark Hallgríms sem að skildi liðin að í miklum baráttuleik.

Viðtöl og skýrsla koma inn von bráðar. Takk fyrir mig!
94. mín
Hallgrímur Mar vinnur innkast við vítateig Aftureldingar.
93. mín
Steinþór Már handsamar boltann!
93. mín Gult spjald: Jóan Símun Edmundsson (KA)
Allir inni í teig KA. Aukaspyrna við miðju.
92. mín
Þrjár mínútur í uppbót. Nú fer hver að verða síðastur.
92. mín Gult spjald: Andri Freyr Jónasson (Afturelding)
Fyrir hvað... veit ég ekki.
91. mín
JÓAN SETUR HANN Í STÖNGINA! Gestirnir fámennir baka til og Hallgrímur Mar setur Færeyinginn í gegn. Hann kemst í dauðafæri einn á móti Jökli, en setur boltann í stöngina!
90. mín
Afturelding búnir að festa KA menn við eigin vítateig. Langt innkast í vændum.
88. mín
Ívar nálægt því að setja pönnuna í boltann, en sneiðir hann talsvert framhjá.
88. mín
Jóan Símun vinnur hornspyrnu eftir baráttu við Hrannar Snæ.
87. mín
Elmar tekur Birgi Baldvins niður úti á vinstri kantinum. Virtist lítið, en KA fólk kallar eftir seinna gula.
84. mín
Inn:Ingimar Torbjörnsson Stöle (KA) Út:Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
84. mín
Inn:Andri Freyr Jónasson (Afturelding) Út:Sævar Atli Hugason (Afturelding)
83. mín
SKALLI Í SLÁ! Sýndist það vera Axel Óskar sem að setti hann í slána! KA menn stálheppnir!
83. mín
Gestirnir fá hornspyrnu. Þeir pressa stíft í kjölfar marksins.
80. mín MARK!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Stoðsending: Bjarni Aðalsteinsson
VÁÁÁÁÁÁ!! Það hefur ekki allt gengið upp í dag hjá Hallgrími í dag, en maður lifandi! Hrannar Björn gerir virkilega vel í að halda boltanum inná úti við hliðarlínuna. Hann leggur hann á Bjarna, sem að finnur svo Hallgrím.

Hallgrímur er ekkert að tvínóna við hlutina og hamrar boltann með vinstri af sirka 25 metrunum upp í samskeytin fjær!

1-0!
77. mín
Hrannar Snær snýr Hrannar Björn af sér inni í teig KA og kemur með fastan og lágan bolta fyrir. Þar mætir Benjamin Stokke, en Hans Viktor fylgir honum vel á eftir og blokkar skotið hans.
76. mín Gult spjald: Elmar Kári Enesson Cogic (Afturelding)
75. mín
Hrannar Snær skilur Hrannar Björn eftir í ryki, en nær ekki að finna samherja inná teig KA. Setti í 8. gír þarna.
74. mín Gult spjald: Enes Þór Enesson Cogic (Afturelding)
Brýtur á Rodri. Kom alvöru sársaukaöskur frá Spánverjanum.
73. mín
Og Twana dæmir aukaspyrnu. Það hefur gerst í sirka 85% tilfella þegar að föst leikatriði eiga í hlut.
72. mín
Hörkupressa hjá KA þessa stundina. Þvinga Jökul í hræðilega hreinsun og vinna boltann ofarlega á vellinum. Langt innkast í vændum hja Ívari.
72. mín
Inn:Viðar Örn Kjartansson (KA) Út:Jakob Snær Árnason (KA)
70. mín Gult spjald: Birgir Baldvinsson (KA)
Togar í Elmar Cogic. Hárrétt.
69. mín
Inn:Enes Þór Enesson Cogic (Afturelding) Út:Þórður Gunnar Hafþórsson (Afturelding)
66. mín
DAUÐAFÆRI! Jakob Snær skallar í stöngina! Og eftir það berst boltinn út í teig, þar sem að mér Bjarni Aðalsteinsson eiga skot sem að Ásgeir Sigurgeirsson náði svo ekki að stýra á markið.

Langbesta færi leiksins!
65. mín
Hætta! Hans Viktor var nálægt því að skalla þessa hornspyrnu inn! En aftur fyrir fer boltinn og enn ein hornspyrnan niðurstaðan fyrir KA.
64. mín
Elmar liggur eftir Hann og Birgir Baldvins sættast heilum sáttum eftir barning. KA á hornspyrnu.
61. mín
Inn:Hrannar Björn Steingrímsson (KA) Út:Guðjón Ernir Hrafnkelsson (KA)
Tvöföld skipting hjá KA. Römer virtist hissa á að vera að koma útaf.
61. mín
Inn:Jóan Símun Edmundsson (KA) Út:Marcel Ibsen Römer (KA)
60. mín
Gott spil hjá gestunum! Georg Bjarnason kemst í ágætis skotfæri utarlega í teig KA, en það er blokkað aftur fyrir.
57. mín
Hallgrímur Mar vinnur hornspyrnu. Virtist vera brotið á honum í aðdragandanum.

Gestirnir koma boltanum frá og KA missa boltann svo klaufalega aftur fyrir.
55. mín
Hallgrímur Mar kemst í skotstöðu fyrir utan teig Aftureldingar, en skot hans fer af varnarmanni og aftur fyrir.

Hornspyrna Hallgríms fer aftur fyrir áður en hún fer inná teiginn og Twana flautar réttilega.
51. mín
Aukaspyrna dæmd á KA. Fór í hendina á einhverjum KA manninum, það var helvíti erfitt að greina hver átti í hlut.
51. mín
Enn ein hornspyrnan sem að KA fær.
48. mín Gult spjald: Bjarni Aðalsteinsson (KA)
47. mín
Hallgrímur Mar setur aukaspyrnuna í varnarmann og aftur fyrir. KA menn fá hornspyrnu.

Hornspyrna Hallgríms ratar á kollinn á Ívari Erni, en skallinn er laus og yfir markið.
46. mín
Jakob Snær nælir í aukaspyrnu úti á hægri kantinum. Þetta er fyrirgjafarséns.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Það eru heimamenn sem að koma seinni hálfleiknum í gang.
45. mín
Hálfleikur
Jafnt þegar liðin ganga til búningsklefa Nokkuð tíðindalitlum fyrri hálfleik lokið. Það hefur verið hart barist, en við erum ekki beinlínis að drukkna í sóknargæðum - enn sem komið er.

Lína dómarans hefur verið ójöfn og Twana Khalid Ahmed þarf eiginlega að endurstilla sig í hálfleik til að átta sig á því hvar hann vill að umrædd lína sé.
45. mín
+2 Uppbótartíminn var 3 mínútur.

Ívar Örn liggur eftir. Georg Bjarnason var að reyna að snúa með boltann inná teig inni í teig KA, en slæmdi óvart hendi í Ívar. Algjört óviljaverk.
45. mín Gult spjald: Guðjón Ernir Hrafnkelsson (KA)
+1 Brýtur á Hrannari Snæ úti á kanti. Þetta er aldrei gult spjald, en áfram gakk.
45. mín
Mikið af smábrotum. Mér hefur fundist sum af þeim ódýr og bara eiginlega rangir dómar.
43. mín Gult spjald: Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Ásgeir var fyrir Jökli þegar hann tók útspark. Ásgeir er ósammála Twana Khalid Ahmed, en það breytir litlu.
40. mín
KA menn fá hornspyrnu. Hallgrímur Mar röltir að boltanum.

Hrannar Snær skallar frá og Marcel Römer reynir skot á lofti úr vonlausri stöðu og boltinn flýgur yfir markið.
38. mín Gult spjald: Marcel Ibsen Römer (KA)
Stoppar Georg Bjarnason í skyndisókn.
36. mín
Elmar er kominn á fætur og virðist ætla að halda leik áfram.
35. mín
Elmar Cogic á virkilega flottan sprett og vinnur aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi KA.

Hann liggur sárkvalinn á vellinum í kjölfarið.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Guðjón er mættur aftur til leiks og fer beint í baráttu við Hrannar á nýjan leik.
29. mín
Guðjón Ernir liggur eftir Guðjón og Hrannar Snær voru í einhverjum barningi á úti við hliðarlínu og bakvörður KA þarfnast aðhlynningar. Mér sýndist sömuleiðis Hrannar Snær kenna sér meins á afar viðkvæmum stað.
27. mín
Römer í skotfæri! Birgir Baldvins kemst aftur upp að endamörkum og rennir boltanum út í teiginn. Þar mætir Marcel Römer á ferðinni og ætlar að leggja boltann innanfótar í fjærhornið, en setur hann framhjá.
24. mín
Það er aðeins meiri kraftur í KA liðinu þessa stundina. Hafa komist nokkuð reglulega upp vinstra megin þar sem að Birgir Baldvinsson hefur verið sprækur og tengt vel við Hallgrím Mar.
20. mín
Jakob í færi! Glimrandi fín sókn hjá KA. Birgir Baldvinsson kemst inná teig Aftureldingar og vippar honum á fjær. Þar fær Jakob Snær boltann og hamrar boltann viðstöðulaust á lofti í varnarmann og rétt framhjá stönginni!

17. mín
Aukaspyrnan er skölluð frá og boltinn berst út til Þórðar Gunnars. Hann setur boltann inn á teig, en þar rís Steinþór Már hæst og grípur hann.
16. mín
Gestirnir fá aukaspyrnu á fínasta stað Guðjón Ernir tekur Hrannar Snær niður úti á vinstri kantinum eftir mikla baráttu.
14. mín
Gestirnir fá hornspyrnu.

Aukaspyrna dæmd og KA menn hefja sókn.
9. mín
Ekkert kemur úr spyrnu Hallgríms. Held að það hafi verið dæmt brot, frekar en rangstaða.
8. mín
Aukaspyrna á ágætis stað fyrir KA Hrannar Snær tekur Guðjón Erni niður og KA menn dæla stóru mönnunum inná teig.
7. mín
Hrannar Snær gerir vel í að klippa inn af vinstri kantinum og nær skoti fyrir utan teig KA, en það er laflaust og beint á Steinþór Má.
5. mín
Aron Elí í góðu utanáhlaupi fyrir Hrannar Snæ. Hann kemur boltanum inná teig KA, en Hans Viktor er vel staðsettur og hreinsar.
4. mín
Liðin skiptast á að klappa boltanum hér fyrstu mínúturnar.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir sem að koma þessu af stað!
Fyrir leik
Byrjunarliðin Hallgrímur Jónasson gerir fáeinar breytingar á liði KA frá því í síðasta leik. Á bekkinn setjast Jóan Símun Edmundsson, Viðar Örn Kjartansson og Hrannar Björn Steingrímsson. Inn koma Guðjón Ernir Hrafnkelsson, Hans Viktor Guðmundsson og Jakob Snær Árnason.

Þórður Gunnar Hafþórsson kemur inn í lið Aftureldingar í stað Arons Jóhannssonar, en Aron er ekki í leikmannahópi gestanna í dag.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Magnúsar minnst fyrir leik Áhorfendur klappa í mínútu fyrir Magnúsi Björnssyni, fyrrum formanni KA. Magnús lést þann 5. maí síðastliðinn.
Fyrir leik
Það hefur verið smá brekka á Brekkunni en samkvæmt stuðlunum á Epic eru þeir líklegri til sigurs hér í dag á stuðlinum 2,05 á meðan stuðullinn á gestina úr Mosfellsbæ er 3,25.
Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Dómarinn Það er Twana Khalid Ahmed sem að dæmir leik dagsins. Honum til aðstoðar eru Birkir Sigurðarson og Þórður Arnar Árnason. Eftirlitsmaður er Valdimar Pálsson og varadómari leiksins er Arnar Þór Stefánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Twana Khalid Ahmed verður með flautuna í dag.
Fyrir leik
Hrannar Snær framlengir Mosfellingar gátu svo fagnað enn frekar þar sem að Afturelding staðfesti í gær að Hrannar Snær Magnússon væri búinn að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Hrannar hefur verið skorað þrjú mörk í 7 deildarleikjum á tímabilinu og allt geta þau kallast stigamörk. Hann gerði sigurmörkin gegn bæði KR og Víkingum og skoraði svo fyrsta mark liðsins í 3-0 sigri á Stjörnunni.

,,Afturelding fagnar því að Hrannar hafi framlengt samning sinn og spennandi verður að sjá hann taka áframhaldandi framförum í Mosfellsbæ,'' segir í yfirlýsingu Aftureldingar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar hefur reynst Aftureldingu gríðarlega vel. Hann framlengir samning sinn til ársins 2027.
Fyrir leik
Andi í Mosfellsbænum Nýliðar Aftureldingar hafa farið betur af stað en margir reiknuðu með og unnu nú síðast 4-3 sigur á KR-ingum í stórkostlegum fótboltaleik.

Liðið þurfti tvívegis að koma til baka í leiknum, en gáfust aldrei upp og uppskáru eftir því og það ætlaði allt um koll að keyra í Mosfellsbæ þegar að Hrannar Snær Magnússon skoraði sigurmark Aftureldingar á 80. mínútu. Áður höfðu Benjamin Stokke (2) og Aron Elí Sævarsson jafnað leikinn.

1180 mættu á leikinn og því vallarmet slegið þar. Magnús Már Einarsson, þjálfari liðsins, sagðist hafa búist við því að metið myndi falla.

,,Ég vissi það ekki, en frábært. Ég bjóst við því að vallarmetið myndi falla í dag. Frábær upphitun í Hlégarði þar sem að Steindi og Dóri sungu nýja lagið sem hlýtur að fara í spilun, það er gott.''

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var ástæða til að henda þumalputta upp eftir 4-3 sigur á KR!
Fyrir leik
Stoppað í götin í Eyjum Eftir að hafa verið í gjafastuði í 2-4 tapinu gegn Fram í Mjólkurbikarnum náðu KA menn að halda hreinu í Vestmannaeyjum þegar að liðið gerði 0-0 jafntefli við ÍBV. Þessa leiks verður seint minnst fyrir leiftrandi sóknarbolta, en það var augljóst á uppleggi Hallgríms Jónasarsonar að fyrst og fremst átti að stoppa í götin.

,,Ég er jákvæður, virkilega ánægður með hugarfarið í liðinu og ánægður með varnarleikinn. Það er það sem að við höfum verið að vandræðast með. Við settumst niður og töluðum saman og mér fannst ég fá gott svar í dag,'' sagði Hallgrímur eftir leikinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Jónasson átti gott spjall við sína menn og var ánægður með viðbrögðin.
Fyrir leik
Langt síðan síðast Það er orðið nokkuð langt síðan að KA og Afturelding mættust síðast í deildarkeppni, en það var í Lengjudeildinni árið 2009, eða 1. deild karla eins og hún hét þá. Þá spiluðu liðin á Akureyrarvelli og þar vann KA 2-1 sigur á Mosfellingum.

Þrír núverandi leikmenn KA voru á skýrslu í þeim leik og þar af voru tveir þeirra í byrjunarliðinu. Þeir Hallgrímur Mar Steingrímsson og Andri Fannar Stefánsson spiluðu allan leikinn, en Steinþór Már Auðunsson var á bekknum sem varaskeifa fyrir Sandor Matus.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Strákslegur Hallgrímur Mar fagnar marki með Ungverjanum David Diztl.
Fyrir leik
Góðan daginn! Hér mun fara fram textalýsing á leik KA og Aftureldingar í Bestu-deild karla. KA menn sitja á botni deildarinnar með 5 stig, en gestirnir úr Mosfellsbæ eru í 6. sæti og hafa nælt sér í 10 stig - jafn mörg stig og Stjarnan og KR, en eru með lakari markatölu.
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson
3. Axel Óskar Andrésson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
10. Elmar Kári Enesson Cogic
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
19. Sævar Atli Hugason ('84)
20. Benjamin Stokke
21. Þórður Gunnar Hafþórsson ('69)
25. Georg Bjarnason
77. Hrannar Snær Magnússon
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Arnar Daði Jóhannesson (m)
4. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
8. Aron Jónsson
9. Andri Freyr Jónasson ('84)
22. Rikharður Smári Gröndal
23. Sigurpáll Melberg Pálsson
27. Enes Þór Enesson Cogic ('69)
30. Oliver Sigurjónsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Baldvin Jón Hallgrímsson
Enes Cogic
Gunnar Ingi Garðarsson
Garðar Guðnason
Þórður Ingason

Gul spjöld:
Enes Þór Enesson Cogic ('74)
Elmar Kári Enesson Cogic ('76)
Andri Freyr Jónasson ('92)

Rauð spjöld: