Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Grindavík
Grindavík
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
3 - 4
Þór
Þór
Ingi Þór Sigurðsson 2'1 - 01 - 128' Viktor Guðberg Hauksson (sjm)1 - 230' Sigfús Fannar GunnarssonBreki Þór Hermannsson 47'2 - 22 - 372' Orri Sigurjónsson2 - 475' Sigfús Fannar GunnarssonÁrmann Ingi Finnbogason (víti) 98'3 - 4
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson

SKÝRSLAN: KR Lengjudeildarinnar

Hvað réði úrslitum?

Grindvíkingar byrjuðu báða hálfleikana vel en voru hvorki fugl né fiskur eftir bæði mörkin. Þórsarar voru bara með yfirhöndina mest megnið af leiknum og unnu þetta mjög sanngjarnt.

Bestu leikmenn

1. Sigfús Fannar Gunnarsson

Hefur byrjað tímabilið frábærlega og var stórkostlegur í þessum leik. Mér fannst hann alltaf vera að ógna þegar hann fékk boltann og skoraði tvö í dag. Hann hefur byrjað leiktíðina vel og mun eiga gott sumar.

2. Ingimar Arnar Kristjánsson

Mér fannst hann mjög góður í dag. Ég hefði getað valið fleiri hér þar sem Þórsararnir voru góðir en Ingimar fær þetta.

Atvikið

Þegar Sigfús Fannar skoraði 4-2 markið vissi maður að þetta væri komið hjá Þórsurunum. Þetta var mjög verðskuldaður sigur og skemmtilegur leikur.

Hvað þýða úrslitin?

Þórsarar vinna sinn annan sigur á tímabilinu og fara upp í 4. sætið með 7 stig á meðan Grindvíkingar eru í 9. sætinu með 4 stig. Þór og Grindavík mega eiga það að þetta eru skemmtileg lið. Grindavík er með markatöluna 11-11 eftir 4 leiki og Þór 11-9 eftir jafn marga leiki. Grindavík er eiginlega KR Lengjudeildarinnar og Þórsarar að einhverju leyti líka.

Vondur dagur

Erfitt að benda á einvhern einn þar sem varnarleikur Grindvíkinga er alls ekki nógu góður í heild sinni. Viktor fyrirliði heimamanna var óheppinn að skora sjálfsmark. Hann átti ekki góðan dag og tekur vondan dag á sig fyrir allt liðið.

Dómarinn - 7

Bara vel dæmdur leikur hjá ÞÞÞ í dag. Eitt og eitt atvik sem ég var ósammála annars var hann fínn í dag ásamt sínum mönnum. Eina stóra atvikið sem var líklega rangt var tækling Vilhelms Ottó í seinni hálfleik. Það var lykt af rauðu spjaldi þar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.