Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Valur
Valur
Besta-deild karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
3 - 0
ÍBV
ÍBV
Jovan Mitrovic (sjm) 28'1 - 0Patrick Pedersen 29'2 - 0Birkir Heimisson 43'3 - 0
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Valur kláraði dæmið í fyrri hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Valur kláraði leikinn í fyrri hálfleik. Mark erftir horn var fylgt strax á eftir með góðu marki frá Patrick Pedersen áður en Birkir Heimis setti punktin ofan á i-ið fyrir hálfleik. Seinni hálfleikur var svo gott sem cruise control stýring út leikinn þar sem lítið var að frétta.

Bestu leikmenn

1. Birkir Heimisson

Skoraði þriðja markið, á hornspyrnuna sem fyrsta markið kemur úr og Valur heldur hreinu með hann í bakverði.

2. Patrick Pedersen

Gef dananum þetta bara. Enginn sem skaraði fram úr þannig séð í dag. Virkilega fagmannlega unninn leikur hjá Val.

Atvikið

Patrick Pedersen skorar annað markið í dag sem drepur leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Fagmannlegur sigur Vals sem fara í 12 stig upp í fjórða sæti deildarinnar. ÍBV sitja áfram með sín átta stig í 9.sætinu.

Vondur dagur

Eyjamenn gerðu ekki mikið í dag svo þeir mega bara deila þessu sín á milli.

Dómarinn - 7

Virkaði auðveldur leikur að dæma í dag. Sjaldan séð jafn lítið að gera hjá fjórða dómara að auki.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.