SKÝRSLAN: Frábær endurkoma ÍBV
Hvað réði úrslitum?
Færanýting FH var ekki upp á marga fiska í dag og þeir hefðu hæglega getað lokað leiknum í fyrra hálfleik. En eins og oft áður þá er manni refsað fyrir að sóa færum sínum og Eyjamenn gerðu það í seinni hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Hermann Þór Ragnarsson
Var öflugur og kraftmikill í sóknarleik ÍBV. Gerir mjög gott mark og mesta hættan var í kringum hann í sóknarleik ÍBV.
2. Vicente Valor
Kemur inn á og breytir leiknum. Það kom miklu meiri ró yfir ÍBV liðið og hann hélt bolta vel og tók góðar ákvarðanir. Mjög gott fyrir ÍBV að hann sé að koma sterkur inn.
Atvikið
Ég myndi segja að atvikin væru tvö. Fyrir það fyrsta mark FH. ÍBV á markspyrnu og skyndilega var FH búið að skora eftir mistök Marcel í marki ÍBV. Einnig átti ÍBV hugsanlega að fá vítaspyrnu þegar Alex Freyr fyrirliði ÍBV var tekinn niður snemma leiks.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV eru komnir upp í 6. sætið og FH í því níunda stigi á eftir ÍBV. Deildin er aftur á móti mjög jöfn frá 5.-12. sæti. Munar aðeins þremur stigum.
Vondur dagur
Sigurður Bjartur framherji FH. Komst einn í gegn í fyrri hálfleik en skaut beint á Marcel í marki ÍBV auk þess að fá önnur færi til að mynda í seinni hálfleik þegar hann fær boltann inn í teig, einn og óvaldaður en skaut með vinstri niður í Herjólfsdal. Það voru reyndar fleiri FHingar sem fengu færi eins og Björn Daníel sem fékk boltann á sinn góða vinstri fót við vítateiglínu en setti hann framhjá. Björn Daníel eins og ég þekki hann skorar úr svona færi í 9 af hverjum 10 skiptum.
Dómarinn - 7
Nokkuð vel dæmt eins og 7 gefur til kynna. En auðvitað er ativikið í byrjun leiks, víti eða ekki víti, vafasamt.



