Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
Vestri
0
1
Víkingur R.
0-1 Viktor Örlygur Andrason '27 , víti
29.05.2025  -  14:00
Kerecisvöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Maður leiksins: Oliver Ekroth
Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
3. Anton Kralj ('79)
4. Fatai Gbadamosi
5. Thibang Phete
6. Gunnar Jónas Hauksson
7. Vladimir Tufegdzic ('79)
10. Diego Montiel ('79)
23. Silas Songani ('71)
28. Jeppe Pedersen ('88)
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson (f)
40. Gustav Kjeldsen
- Meðalaldur 30 ár

Varamenn:
1. Benjamin Schubert (m)
15. Guðmundur Arnar Svavarsson ('79)
17. Guðmundur Páll Einarsson ('88)
18. Marinó Steinar Hagbarðsson
19. Emmanuel Duah ('79)
20. Óskar Ingimar Ómarsson
22. Elmar Atli Garðarsson
29. Kristoffer Grauberg ('79)
77. Sergine Fall ('71)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Jón Hálfdán Pétursson
Friðrik Rúnar Ásgeirsson
Þorsteinn Goði Einarsson
Vladan Djogatovic
Vignir Snær Stefánsson
Ferran Montes I. Corominas

Gul spjöld:
Anton Kralj ('27)
Gustav Kjeldsen ('35)
Eiður Aron Sigurbjörnsson ('54)
Thibang Phete ('56)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sigur Víkinga í afar krefjandi leik fyrir þá staðreynd. Þeir eru á toppnum og verða það næstu daga. Eina markið af vítapunktinum í dag en þau telja jafnmikið og hin.

Skýrsla væntanleg
97. mín
Uppgefinn uppbótartími liðin en kæmi mér ekki á óvart að við ættum enn tvær mínútur eftir. Gengið hægt þessi uppbótartími og mikið um stopp.
96. mín Gult spjald: Matthías Vilhjálmsson (Víkingur R.)
Bakkar undir Fatai í skallaeinvígi sem lendir mjög illa.

Aðhlynning kölluð til en Fatai er fljótur á lappir.
94. mín
Vestramenn í færi!
Guðmundur Arnar með boltann fyrir markið frá vinstri. Guðmundur Páll mætir á endan á sendingunni og nær skoti úr miðjum teignum en Ekroth hendir sér fyrir boltann.
91. mín
Atli Þór með hættulegan bolta fyrir markið frá hægri en Stígur of seinni í hlaupinu og ekkert verður úr.
90. mín
Sex mínútur í uppbótartíma.
Hvernig sú tala er fundinn skil ég ekki alveg. Lítið verið um tafir í þessum seinni hálfleik.
89. mín Gult spjald: Viktor Bjarki Arnarsson (Víkingur R.)
Eitthvað að tuða í boðvangnum og fær gult.
88. mín
Inn:Guðmundur Páll Einarsson (Vestri) Út:Jeppe Pedersen (Vestri)
86. mín
Heimamenn sækja aukaspyrnu út við hornfána hægra megin.

Boltinn skallaður út fyrir teiginn þar sem hann dettur fyrir Fatai sem á hörkuskot í varnarmann og afturfyrir.
82. mín
Inn:Atli Þór Jónasson (Víkingur R.) Út:Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
82. mín
Víkingar eru að fá horn eftir sprett Stígs sem sparkar boltanum beint útaf. Sigurður Hjörtur sér það ekki og dæmir þeim horn.
81. mín
Rétt tæpar 10 mínútur eftir að hefðbundnum 90 mínútum. Víkingar stýrt umferðinni í þessum seinni hálfleik að mestu og heimamenn ekki komist nálægt þeim svo neinu nemi.
79. mín
Inn:Kristoffer Grauberg (Vestri) Út:Anton Kralj (Vestri)
79. mín
Inn:Emmanuel Duah (Vestri) Út:Diego Montiel (Vestri)
79. mín
Inn:Guðmundur Arnar Svavarsson (Vestri) Út:Vladimir Tufegdzic (Vestri)
75. mín
Góð spyrna frá Gylfa yfir vegginn og stefnir í hornið en Guy ver í horn.
74. mín
Víkingur fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Fatai brýtur á Daníel við D-bogann ögn út til hægri.
72. mín
Erlingur strax mættur upp hægri vænginn og reynir að finna Stíg í teignum. Sergine Fall mættur og hreinsar í horn.
71. mín
Inn:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.) Út:Ali Basem Almosawe (Víkingur R.)
71. mín
Inn:Sergine Fall (Vestri) Út:Silas Songani (Vestri)
67. mín
Vestri vinnur hornspyrnu. Sína fimmtu í leiknum.
63. mín
Inn:Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.) Út:Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
63. mín
Inn:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.) Út:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
Tvöföld breyting hjá Víkingum
63. mín
Víkingar verið mjög solid síðustu mínútur. Haldið boltanum vel og haldið heimamönnum algjörlega niðri.
57. mín
Daníel kveinkar sér og fær aðhlynningu.

Fáum tölfræði um brot á meðan.

Vestri leiðir í brotum 11-4
56. mín Gult spjald: Thibang Phete (Vestri)
Alltof seinn í Daníel Hafsteins og uppsker gult spjald.
54. mín Gult spjald: Eiður Aron Sigurbjörnsson (Vestri)
Tekur Valdimar niður í skyndisókn og uppsker gult spjald.

Hans fyrsta gula í Bestu deildinni í sumar.
49. mín
Ekroth með skalla að marki Vestra eftir horn frá Gylfa. Hittir ekki markið og Guy býr sig undir að spyrna frá marki sínu.
47. mín
Montiel með lúmskan bolta fyrir markið frá hægri. Tufa skrefinu of seinn og kemst í boltann sem endar hjá Ingvari í marki Víkinga.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn Heimamenn í Vestra sparkar þessu af stað á ný.
46. mín
Inn:Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.) Út:Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
45. mín
Hálfleikstölfræði af Stöð 2 Sport Með boltann: 47% - 53%
Marktilraunir: 6-10
Á mark: 2-3
Hornspyrnur: 4-5
Heppnaðar sendingar: 159-189
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Hálfleikur
Flautað hér til hálfleiks eftir hörku fyrri hálfleik. Jafn leikur á flestum sviðum en það eru Víkingar sem leiða. Víkingar hafa verið ögn meira með boltann og átt fleiri marktilraunir en heimamenn verið hættulegir á köflum við teig Víkinga.

Tökum okkur korter og fáum okkur kaffi og mætum svo aftur til leiks.
45. mín
Uppbótartíminn er að lágmarki ein mínúta.
45. mín
Silas með skalla að marki eftir sendingu frá Jeppe. Nær ekki stefnunni réttri og boltinn flýgur talsvert yfir markið.
43. mín Gult spjald: Tarik Ibrahimagic (Víkingur R.)
Teikar Silas. Það er bannað segir Sigurður Hjörtur og spjaldar hann.
41. mín
Frábært spil Vestra
Tufa sendur í gegn og leggur boltann fyrir markið.

Flaggið á loft en það er einfaldlega kolrangur dómur. Davíð Atla spilar hann réttstæðan og Vestramenn skiljanlega ósáttir enda frábær staða sem þeir voru að komast í.
39. mín
Hörkuskot
Silas með fínt skot frá vinstra vítateigshorni sem Ingvar þarf að slá frá.

Vestri fær horn.
38. mín
Niko Hansen í dauðafæri!
Boltinn yfir vörn Vestra og Nikolaj hefur betur í baráttunni og nær að taka boltann niður í teignunm. Á hins vegar ömurlegt skot úr teignum sem fer langt framhjá.

Verður að gera betur.
36. mín
Matti Villa aleinn á markteignum eftir aukaspyrnuna og reynir flugskalla en hittir ekki boltann.
35. mín Gult spjald: Gustav Kjeldsen (Vestri)
Ali að tæta og trylla og fer framhjá hverjum Vestramanninum á fætur öðrum. Gustav Kjeldsen fær nóg af því og keyrir hann niður.
33. mín
Nikolaj í fínu færi í teignum eftir hornið en skóflar boltanum yfir markið úr teignum.
33. mín
Kjeldsen með hörmulega sendingu úr vörninni beint á Ali í liði Víkinga. Hann leggur boltann fyrir sig og lætur vaða en Guy slær í horn.
31. mín
Víkingar fá hornspyrnu.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Tufa með skalla eftir góða sóknarlotu en beint á Ingvar í marki Víkinga.
27. mín Gult spjald: Anton Kralj (Vestri)
27. mín Mark úr víti!
Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)

Gríðarlega öruggt, bíður lengi og sendir Guy af stað í hornið og rúllar boltanum í gagnstætt horn.
26. mín
Víkingar eru að fá vítaspyrnu!
Eiður Aron brýtur á Tarik og viti dæmt
25. mín Gult spjald: Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
Of seinni í Montiel og fær réttilega gult spjald
20. mín
Skyndisókn Vesta
Silas sleppur innfyrir varnarlínu Víkinga sem stóð hátt. Silas fer illa með stöðuna og reynir að setja boltann á nærstöngina framhjá Ingvari en skýtur langt framhjá.
19. mín
Víkingar í hörkufæri!
Matthías með hörkuskot úr teignum eftir hornið sem fer í bakið á Kjeldsen. Víkingar halda pressunni og vinna annað horn sem ekkert verður úr.
18. mín
Víkingar sækja sína fyrstu hornspyrnu.
12. mín
Ali Basem með lélegt skot eftir skyndisókn Víkinga. Leikur inn völlinn frá hægri en á laust skot beint á Guy af D-boganum.
11. mín
Víkingar að komast í álitlega st0ðu. Boltinn upp völlinn og berst á Viktor Örlyg úti til vinstri. Hann reynir að lyfta boltanum yfir á fjærstöng en setur of mikið púður í sendinguna og markspyrna niðurstaðan.
8. mín
Víkingar haldið boltanum mikið þessar fyrstu mínútur en ekki fundið neinar opnanir á liði Vestra til þessa.
4. mín
Heimamenn vinna fyrstu hornspyrnu leiksins.

Diego Montiel með skot eftir hornið en boltinn í varnarmann og út á væng.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað á Ísafirði. Það eru Víkingar sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Fyrsti leikur Vestra í “toppbaráttu“ og við gerum ráð fyrir að þeir verði mjög þéttir til baka plús að þeir eru án síns besta manns fram á við sem hefur verið mjög mikilvægur í þeirra sóknarleik, Undir 3 á Epic er á stuðlinum 1,70 sem þýðir 70% ávöxtun, undir 2,5 er á 2.20 fyrir þá sem eru djarfari.
Fyrir leik
Liðin mætt í hús Hjá Vestra er Daði Berg Jónsson fjarverandi en hann er á láni hjá Víkingum. Inn í lið Vestra í hans stað frá 3-1 sigrinum gegn Stjörnunni kemur Silas Songani.

Margar breytingar hjá Víkingum og Gylfi á bekknum
Víkingar gera þó nokrrar breytingar frá 2-1 sigrinum gegn ÍA. Sveinn Gísli Þorkelsson, Erlingur Agnarsson, Helgi Guðjónsson. Gylfi Sigurðsson og Stígur Diljan Þórðarson detta úr byrjunarliði þeirra. Inn í þeirra stað koma Viktor Örlygur Andrason, Davíð Örn Atlason. Ali Basem Almosawa og Matthías Vilhjálmsson.
Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið Vestra
Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið Víkinga
Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fyrir leik
Kári Sigfússon spáir Kári Sigfússon, leikmaður Keflavíkur, spáir í leiki umferðarinnar, Keflvíkingar eru á toppi Lengjudeildarinnar sem stendur.

Hann fylgir á eftir Aroni Guðmundssyni sem var með fjóra leiki rétta þegar hann spáði í síðustu umferð.


Um leik Vestra og Víkinga sagði Kári.


Vestri 1 - 2 Víkingur

Vestri búnir að vera geðveikir, Guzcut er að spila eins og Scott McTominay. Þvílíkur leikmaður sem hann er, hefði verið gott að fá hann til KR að líma saman varnar- og sóknarleik liðsins. Guz opnar leikinn með marki eftir klafs í leiknum. Gylfi Sig verður hins vegar í stuði og skilar tveimur G/A.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarinn
Sigurður Hjörtur Þrastarson er dómari leiksins á Ísafirði í dag. Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Eðvarðsson eru honum til aðstoðar og Sveinn Arnarson er fjórði dómari. Magnús Sigurður Sigurólason fullkomnar svo teymið frá KSÍ og sinnir eftirlitinu með dómurum og framkvæmd leiks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Vestri Eru heimamenn í Vestra að spila yfir getu eða eru þeir bara svona góðir?

Það væri rosalega auðvelt að skrifa þetta á að þeir séu með fleiri stig en þeir ættu að vera miðað við getu en ég sé það bara ekki þannig. Davíð Smári og hans teymi hafa verið að smíða virkilega gott lið á Ísafirði og bætt aðstaða liðsins hefur eflaust hjálpað mikið.

Liðið hefur getað æft töluvert betur yfir veturinn fyrir þetta tímabil en oftast áður og er sú hugsun freistandi að segja að lið Vestra sé að mæta til leiks fullmótað frá fyrsta leik í fyrsta sinn.

„Auðvitað bjuggust ekki margir við því að þeir væru við toppinn. En það bara sýnir sig hvað maður kemst langt á grunnatriðunum í fótbolta, ef þau eru til staðar þá nær maður ansi langt bara á því einu. Davíð hefur gert rosalega vel með þetta lið þegar kemur að því og svo núna eru þeir búnir að þróa sinn leik. Þeir eru með blússandi sjálfstraust, byrjaðir að pressa lið og byrjaðir að spila boltanum. Þeir eru bara að grípa gæsina akkúrat núna og gera það gríðarlega vel." Sagði Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga um lið Vestra í viðtali hér á síðunni í gær.

Grunngildin hafa líka fleytt þeim langt og hefur verið skemmtilegt að sjá menn eins og Eið Aron njóta sín í botn á vellinum í sumar. Óskar Smári Haraldsson þjálfari Fram í Bestu deild kvenna sagði enda á dögunum að Eiður Aron hefði verið bestur í mótinu til þessa og ég er fullkomnlega sammála honum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Toppsætið undir í það minnsta tímabundið.
Vinni Víkingar verða þeir á toppnum að umferðinni lokinni óháð úrslitum í leik Breiðabliks og ÍA. Vestri getur komist á toppinn um stund með sigri en vinni Breiðablik ná þeir grænklæddu toppsætinu á markatölu.
Fyrir leik
Daði Berg Daði Berg Jónsson er maðurinn sem allir ræða um í kringum þennan leik. Daði sem er á láni frá Víkingum hjá Vestra hefur verið frábær í upphafi móts. Það er því skarð fyrir skildi fyrir Vestramenn að Daði mun ekki spila leikinn í dag.

Þessi nítján ára leikmaður er hjá Vestra á láni frá Víkingi og samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður hann í stúkunni. Vestri mun samkvæmt samkomulagi við Víking þurfa að borga 2,5 milljónir til að spila Daða í þessum leik. Vestri er ekki til í að borga þá upphæð. Sagði í frétt Fótbolta.net um málið í gær.


Sitt sýnist hverjum um þetta mál og tók Alexander Angelo Tonini sig til og skrifaði skemmtilegan pistil um það. Mæli klárlega með lestri á honum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Toppslagur á Kerecis vellinum Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá toppslag Vestra og Víkinga í Bestu deild karla. Flautað verður til leiks á Kerecisvellinum á Ísafirði klukkan 14:00.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

fimmtudagur 29. maí

Besta-deild karla
14:00 Vestri-Víkingur R. (Kerecisvöllurinn)
16:15 Afturelding-Valur (Malbikstöðin að Varmá)
16:15 ÍBV-FH (Þórsvöllur Vey)
16:15 Fram-KA (Lambhagavöllurinn)
16:15 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
19:15 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
8. Viktor Örlygur Andrason
11. Daníel Hafsteinsson ('82)
12. Ali Basem Almosawe ('71)
20. Tarik Ibrahimagic
23. Nikolaj Hansen ('46)
24. Davíð Örn Atlason ('63)
25. Valdimar Þór Ingimundarson ('63)
27. Matthías Vilhjálmsson
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
80. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
7. Erlingur Agnarsson ('71)
9. Helgi Guðjónsson
15. Róbert Orri Þorkelsson
17. Atli Þór Jónasson ('82)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('63)
32. Gylfi Þór Sigurðsson ('46)
77. Stígur Diljan Þórðarson ('63)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Viktor Bjarki Arnarsson (Þ)
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Hajrudin Cardaklija
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson
Grímur Andri Magnússon

Gul spjöld:
Davíð Örn Atlason ('25)
Tarik Ibrahimagic ('43)
Viktor Bjarki Arnarsson ('89)
Matthías Vilhjálmsson ('96)

Rauð spjöld: