Fotbolti.net
Besta deildin
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Fram
Fram
Besta-deild karla
Lambhagavöllurinn
9° gola og léttskýjað
1 - 2
KA
KA
Vuk Oskar Dimitrijevic 19'1 - 01 - 145' Ásgeir Sigurgeirsson 1 - 292' Jóan Símun Edmundsson
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: 5 meiðsli í dramatískum sigri KA

Hvað réði úrslitum?

KA liðið byrjaði leikinn ekkert sérlega vel og það nýttu Framarar sér og komust yfir. Framarar héldu áfram og voru betri aðilinn í fyrri hálfleik þangað til að KA skorar í uppbótartíma. Eftir það voru KA menn töluvert betra liðið og skora sigurmarkið í uppbótartíma seinni hálfleiks verðskuldað.

Bestu leikmenn

1. Bjarni Aðalsteinsson (KA)

Bjarni var frábær inn á miðjunni í dag. Á þátt í báðum mörkum KA, í fyrra markinu á hann sendinguna fyrir stoðsendinguna, svo á hann stoðsendinguna í sigurmarkinu.

2. Birgir Baldvinsson (KA)

Mér fannst Birgir hættulegasti maður KA fram á við áður en hann fór af velli meiddur. Svakaleg hlaupageta í honum upp og niður kantinn, svo er hann með alvöru gæði í löppunum.

Atvikið

Þegar fjórði dómarinn lyfti spjaldinu á 45. mínútu og það var stór rauð tólfa sem fór á loft. Ég hef aldrei séð uppbótartíma fyrri hálfleiks vera svona langur, en það átti rétt á sér þar sem leikurinn var svo mikið stopp vegna meiðsla.

Hvað þýða úrslitin?

KA menn fara tímabundið í 7. sæti deildarinnar með 11 stig, en Stjarnan geta farið upp fyrir þá með sigri á KR í kvöld. Fram er í fimmta sæti með 12 stig aðeins stigi á undan KA.

Vondur dagur

Meiðslalisti beggja liða varð töluvert stærri eftir leikinn. Már Ægisson og Alex Freyr Elísson fóru af velli meiddir fyrir Fram. Birgir Baldvinsson, Hrannar Björn Steingrímsson og Rodrigo Gomes Mateo fóru meiddir af velli fyrir KA.

Dómarinn - 7

Fínn leikur hjá Vilhjálmi og hans teymi. Hann tók hinsvegar kolranga ákvörðun þegar Jakob Snær sleppur í gegn og Viktor markvörður Fram sparkar hann niður. Þá dæmir hann á Jakob. Annað var held ég bara flott hjá honum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.