Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Stjarnan
Stjarnan
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
4 - 2
KR
KR
Emil Atlason 2'1 - 0Alex Þór Hauksson 9'2 - 0Benedikt V. Warén 11'3 - 03 - 145' Aron SigurðarsonÖrvar Eggertsson 56'4 - 14 - 294' Hjalti Sigurðsson
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Skipin eru svo sannarlega brennd

Hvað réði úrslitum?

Byrjun Stjörnumanna gerði nánast út um vonir KR strax eftir 10 mínútur. Stjörnumenn sluppu trekk í trekk í gegn en leikstíll KR-inga býður upp á þá hættu. Greinilegt er að KR-ingar bakka ekki út, líkt og einhver myndi segja þá eru skipin brennd, þrátt fyrir meiðsli í öftustu línu liðsins. Stjörnumenn aðlöguðu sig að því og var því fagurfræðin ekki í fyrirrúmi. KR-ingar héldu mun betur í boltann og sköpuðu fín færi en færanýtingin var ekki til framdráttar.

Bestu leikmenn

1. Alex Þór Hauksson

Mætti sínum gömlu félögum og var frábær í dag. Tvær stoðsendingar og frábært mark aðeins eftir 11 mínútur.

2. Emil Atlason

Emil reyndist varnarmönnum KR erfiður í dag. Skoraði eftir 100 sekúndur og lagði upp.

Atvikið

Mark Benedikts Waréns kom Stjörnunni í 3-0 stöðu eftir aðeins ellefu mínútna leik. Fyrirfram bjóst maður við markaleik en aldrei þessari stöðu.

Hvað þýða úrslitin?

Stjörnumenn skutu sér upp í fimmta sætið og eru með þrettán stig. KR-ingar eru í níunda sæti með 10 stig nú þegar þriðjungur er búinn af mótinu.

Vondur dagur

Matthias Præst fékk ótal færi en náði ekki að nýta þau, hann er eflaust svekktur með sjálfan sig eftir leik. Hjalti og Ástbjörn voru í brasi í upphafi leiks sem hafsentar en sem leið á leikinn stigu þeir upp, sem er við hæfi á degi sem þessum.

Dómarinn - 8

Verð að gefa aðstoðardómurum leiksins mikið hrós, fannst þeir negla allar ákvarðanir. KR-ingar leika með háa línu og erfitt að skera úr hvort að um rangstöðu sé að ræða eða ekki en allar ákvarðanir réttar í dag. Gunnar Oddur þó mögulega full spjaldaglaður.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.