Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Afturelding
Afturelding
Besta-deild karla
Malbikstöðin að Varmá
Skýnandi sól og smá vindur. Frábærar aðstæður og geggjuð mæting!
0 - 2
Valur
Valur
0 - 134' Patrick Pedersen (víti)0 - 241' Aron Jóhannsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Fyrsta tap Aftureldingar á heimavelli

Hvað réði úrslitum?

Afturelding komu sterkt inn í þennan leik og áttu töluvert af færum. En svo fékk Valur fyrsta færið sitt þegar Valur fékk víti. Eftir það tók Valur aðeins yfir í fyrra hálfleik og skoraði annað mark þeirra. Í seinni hálfleik spilaði Afturelding betur en það lág smá í loftinu að þetta yrði marklaus seinni hálfleikur.

Bestu leikmenn

1. Aron Jóhannsson

Flottur í að stjórna liðinu og skorar sitt fyrsta mark í ár. Þetta vonandi gefur honum mikið.

2. Lúkas Logi Heimisson

Mjög flottur í dag og var óheppinn að koma boltanum ekki inn í netið sjálfur. Hann fiskaði vítið og átti stoðsendinguna á Aron í örðu markinu.

Atvikið

Aðal atvik leiksins var vítið sem Helgi dæmdi á fyrir Val. Georg ýtir aðeins í Lúkas sem dettur niður inn í teig. Þetta var klaufalegt hjá Georg í brotinu og hann Lúkas nýtti sér það vel. Þetta víti breytti alveg leiknum.

Hvað þýða úrslitin?

Valur fer upp í 9. sæti í deildinni með 15 stig og Aftuelding liggja næst neðstir með 10 stig.

Vondur dagur

Mér fannst bæði lið eiga góðan og vondan dag í dag. Afturelding áttu góðan leik og spiluðu vel gegn Val. Þeir fengu mikið af færum en ná bara alls ekki að koma boltanum í markið, það vantaði alveg loka thoucið hjá þeim. Valur vann víst leikinn með einu víti og einu mjög skrítnu marki en þeir leyfðu Afturelding að vera mikið boltann og leyfðu þeim að eiga mikið af færum. Afturelding fara þó verst úr þessum leik með sitt fyrsta tap á heimavelli.

Dómarinn - 4

Mér fannst Helgi og teymið hans ekki eiga neinn sérstakan leik í dag. Það var ekki mikil snerting í vítadómnum fyrir Val. Lúkas er þó klókur og ég get skilið það að Helgi dæmir víti þarna. En Afturelding hefðu alveg geta fengið víti í seinni hálfleik ef Helgi ákvað að dæma á það fyrsta. Mér fannst Helgi ekki alveg vera með stjórn á leiknum og með frekar ójafna línu. Svo var það alveg nokkru sinnum þar sem línumennirnir giskuðu á fyrir hvern áttu að dæmi því þeir voru ekki vissir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.