Fotbolti.net
@GunnarBjarturGunnar Bjartur Huginsson
Þróttur R.
Þróttur R.
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
10° og skýjað - fínustu aðstæður
4 - 1
Völsungur
Völsungur
Aron Snær Ingason 14'1 - 01 - 117' Ismael Salmi YagoubLiam Daði Jeffs 21'2 - 1Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson 74'3 - 1Viktor Andri Hafþórsson 82'4 - 1
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson

SKÝRSLAN: Öruggur sigur Þróttar í Laugardalnum

Hvað réði úrslitum?

Gæði Þróttar sóknarlega voru einfaldlega of mikil. Þeir sundurspiluðu Völsung og úrslitin eftir því.

Bestu leikmenn

1. Aron Snær Ingason

Besti maður vallarins með nokkrum yfirburðum. Skorar og leggur upp. Hann fór ansi illa oft með vörn Völsungs.

2. Liam Daði Jeffs

Skorar í dag og er alltaf iðinn við kolann. Gestirnir réðu ekkert við hann.

Atvikið

Fjórða mark varamannsins Viktors Andra. Algerlega frábært mark.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Þróttarar eru komnir í efsta sætið sem stendur en heil umferð er enn þá eftir í Lengjudeildinni. Völsungur situr í 6. sæti en, eins og fyrr segir, þá hafa þeir spilað einum fleiri leik en hin liðin.

Vondur dagur

Varnarlína Völsungs. Heimamenn áttu í engum vandræðum með að brjóta niður vörnina og.voru allt of oft hættulegir sóknarmenn Þróttar einir og ótruflaðir inni í teig.

Dómarinn - 8

ÞÞÞ leysti þetta verkefni bara nokkuð vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.