SKÝRSLAN: Jafnt í skemmtilegum leik á Avis
Hvað réði úrslitum?
Njarðvíkingar byrjuðu af krafti og voru betri aðilinn í byrjun. Mark Þróttara kom svolítið gegn gangi leiksins en um leið kveikti það upp í smá sjálfstrausti hjá heimamönnum. Njarðvíkingar jafna í upphafi seinni en aftur kemst Þróttur yfir með marki úr aukaspyrnu. Njarðvíkingar ná inn jöfnunarmarki í restina og jafntefli er mögulega þegar allt er tekið saman sanngjörn úrslit
Bestu leikmenn
1. Liam Daði Jeffs
Liam Daði Jeffs var proper handfull eins og þeir segja. Njarðvíkingar áttu í basli með hann. Skoraði fyrsta markið og svo er brotið á honum í aðdraganda annars marksins. Er að blómstra í liði Þróttara.
2. Sigurjón Már Markússon
Ég var mjög hrifinn af Sigurjóni Már í kvöld. Á allavega tvær risa tæklingar sem ég man eftir í þessum leik sem nánast bjarga marki þar á meðal eitt risa moment [Sjá atvikið]. Gef líka Amin Cosic shout sem átti tíðar áætlunarferðir upp vængin og var að skapa ursla.
Atvikið
Þróttur kemst í frábært færi í stöðunni 2-1 til að loka leiknum en Sigurjón Már gerir frábærlega að hlaupa uppi og trufla Viktor Andra sem á skot sem Aron Snær Friðriksson ver. Móment sem hefði getað gengið frá leiknum fyrir heimamenn.
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvíkingar eru áfram í öðru sætinu nú með 13 stig en taplausir. Þróttarar sitja í 5.sætinu með 11 stig.
Vondur dagur
Leiðinlegt atvik eftir leik sem svertir annars flottan fótboltaleik. Misgáfuleg orð látin falla og vonandi fyrir alla aðila er þetta bara einhver misskilningur sem verður leyst úr.
Dómarinn - 2
Twana missti algjörlega alla stjórn á leiknum undir lokin fannst mér. Var búið að vera á tæpu gráu svæði fyrir en tæklingar fengu að fljúga og miklu sleppt sem auðveldlega hefði getað verið dæmt á. Spurning hvort það hefði átt að koma rautt á Oumar Diouck? Fullt af atriðum úr þessum leik sem hægt að taka saman.



