Fotbolti.net
@fotboltinetGuðmundur Jónasson
Keflavík
Keflavík
Lengjudeild karla
HS Orku völlurinn
1 - 1
Fylkir
Fylkir
Muhamed Alghoul 4'1 - 01 - 187' Theodór Ingi Óskarsson
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Keflvíkingar misstigu sig gegn Fylki

Hvað réði úrslitum?

Fylkismenn héldu boltanum meira á meðan Keflavík var að reyna sækja hratt á þá. Fylkismenn koma svo boltanum upp hægra megin og renna boltanum inn í teig þar sem Theodór er aleinn og potar boltanum í markið og jafnar leikinn í lokinn.

Bestu leikmenn

1. Muhamed Alghoul

Muhamed var öflugur í þessum leik, góður að halda í boltann, skapa mikið af færum og skoraði svo mark heimamanna.

2. Theodór Ingi

Náði í stig fyrir fylkismenn og kom sér í nokkur góð færi.

Atvikið

Þegar Fylkismenn jafna, fannst þetta slakur varnaleikur hjá Keflvíkingum í markinu og fylkismenn ná að nýta það.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkismenn eru í 10 sæti með jafn mörg stig og Selfoss en með betri markatölu. Keflavík með 10 stig í 6.sæti en eru með leik til góða gegn grindavík.

Vondur dagur

Keflavík náðu ekki að sigla þessum sigri heim eftir að hafa verið 1-0 yfir þegar 4 mínútur voru eftir og voru mikið að treysta bara á skyndisóknir og leyfðu Fylki að stjórna leiknum.

Dómarinn - 7

Fannst Gunnar bara gera vel hér í kvöld, var með góða línu og lét leikinn fljóta vel. Keflvíkingar vildu vítaspyrnu en hann var með gott sjónahorn á það atvik og ég held hann hafi dæmt rétt með að gefa ekki víti.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.