SKÝRSLAN: Lygileg endurkoma í Grindavík
Hvað réði úrslitum?
Rauða spjald Adams Árna. Vanalega er það liðið sem er manni færri sem fær að finna fyrir því en ekki í þetta sinn. HK-ingar virtust hreinlega hætta að reyna eftir rauða spjaldið á meðan Grindvíkingar tvíefldust.
Bestu leikmenn
1. Ármann Ingi Finnbogason
Breytti leiknum með hraða og snerpu á hægri vænginum. Lagði upp bæði mörk Grindavíkur og hann hefði átt að ljúka leik með fleiri stoðsendingar
2. Arnþór Ari Atlason
Skoraði mark HK í leiknum og var stanslaus ógn á miðsvæðinu, með og án bolta.
Atvikið
Jöfnunarmark Grindavíkur á 83 mínútu. Ármann Ingi lék þá á mann og annan áður en hann kom boltanum beint á Sindra Þór sem gat ekki annað en skorað og endurkoma Grindavíkur formlega hafinn.
Hvað þýða úrslitin?
Grindvíkingar eru nú með 10 stig eftir sex umferðir, ásamt því að eiga leik til góða. HK-ingar eru áfram með 11 stig og munu sennilega falla niður úr þriðja sæti áður en hvítasunnan er búin.
Vondur dagur
Allir HK-ingar sem hreinlega hættu að reyna eftir að liðið varð manni fleirri.
Dómarinn - 8
Ekkert hægt að sakast út í Arnar í dag.



