SKÝRSLAN: Maraþonleikur í Boganum
Hvað réði úrslitum?
Þórsarar sköpuðu lítið manni fleiri en þegar þeir náðu skoti að marki var Vilhelm Þráinn Sigurjónsson í marki ÍR mjög öruggur en hann hefði hins vegar getað gert betur í markinu sem hann fékk loks á sig.
Bestu leikmenn
1. Aron Birkir Stefánsson
Frábær í markinu í dag. Bjargaði stigi fyrir Þórsara, varði dauðafæri ÍR-inga í tvígang.
2. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson
Erfitt að velja einhvern einn næst bestann. ÍR-ingar gerðu mjög vel manni færri og Vilhelm var heilt yfir mjög öruggur í markinu. Arnór Sölvi var mjög flottur og skoraði mark ÍR áður en hann þurfti síðan að fara af velli vegna meiðsla.
Atvikið
Rauða spjaldið sem Marc McAusland fær. ÍR-ingar nýbúnir að ná forystunni og fyrirliðinn fær verðskuldað rautt spjald og setur sína menn í erfiða stöðu. Þeir gerðu hins vegar mjög vel og hefðu vel getað farið suður með öll stigin í pokanum.
Hvað þýða úrslitin?
ÍR-ingarnir áfram á toppnum og komnir með 15 stig. En liðið getur misst Njarðvík yfir sig ef Njarðvíkingar vinna Þrótt í kvöld. Þór er 4. sæti með 11 stig en getur verið í 5. sæti seinna í kvöld ef Þróttur vinnur.
Vondur dagur
Þórsarar manni fleiri stóran hluta úr leiknum en fóru ansi illa með margar góðar stöður. Boginn hefur oft á tíðum verið mikið virki fyrir Þórsliðið en þeim hefur aðeins tekist að vinna einn af fimm heimaleikjum sínum í sumar.
Dómarinn - 7
Tvö verðskulduð rauð spjöld fóru á loft. Þórsarar vildu hins vegar fá vítaspyrnu áður en ÍR-ingar skoruðu og þá var Sigurður fyrir leikmanni Þórs í kjölfarið.


