SKÝRSLAN: ÍBV í undanúrslit í Mjólkurbikarnum eftir sigur á Króknum
Hvað réði úrslitum?
Fyrstu mínúturnar fannst mér Stóla liðið fara mjög ofarlega á völlinn, þá meira en þær eru vanar sem er kannski eðlilegt þegar þú ert að spila við lið úr neðri deild en það kom smá í bakið á þeim, fyrsta mark ÍBV kom þannig og svo sköpuðust nokkur svipuð færi eftir það. ÍBV var betri allan leikinn nema kannski eftir markið hjá Stólunum, þá voru stólarnir betri þanngað til að ÍBV fékk víti.
Bestu leikmenn
1. Olga Sevcova
Mér fannst Olga frábær í dag úti á kannti, hún gerði frábærlega að komast í hlaup aftur fyrir vörnina og uppiskar með marki
2. Avery Mae Vanderven
Mér fannst Avery Mae einnig frábær í hjarta varnarinnar, hún komst nánast í alla bolta og vann flestar baráttur
Atvikið
Atvikið í dag er líklega þetta víti sem að ÍBV fékk, því að Stólarnir voru þá loksins að ná tökum á leiknum. Boltinn fór klárlega í hendina á Nicolu Hauk en það heyrðist frá hliðarlínunni að hún hafi verið fyrir utan, en ég er nú samt ekki viss um það, held að þetta hafi verið verðskuldað víti
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitinn þýða að Stólarnir eru dottnar úr bikarnum á meðan ÍBV heldur áfram í undanúrslit, þetta var fyrsti leikurinn í þessari umferð þannig það er ekki komið á hreint hvaða liðum þær geta mætt
Vondur dagur
Á tandur hreinni íslensku fannst mér allt Stóla liðið vera slakt í dag, Makala Woods komst lítið í leikinn og oft lélegt body languege á henni, miðjann kom litlu spili í gang og vörninn var alltof mikið að missa menn framhjá sér í hlaupum. Erfit að setja þetta á einn leikmann
Dómarinn - 4
Mér fannst vítið vera réttur dómur, en það var margt sem mér fannst skrítið í dómgæslunni, skrítinn lína sem hann setti, stundum leyfði hann hörku og stundum ekki.


